Það er heil umferð í Bestu deild kvenna í kvöld. Jóhann Fjalar Skaptason, sem hefur komið inn í Bestu mörkin á Sýn Sport á þessu tímabili, spáir í leikina að þessu sinni.
Fram 1 - 1 Þór/KA (16:00 í dag)
Hèr mætast stálin stinn, Fram náði í sín fyrstu stig í síðustu umferð og ná hér í annað stig. Þór/KA hafa byrjað þetta tímabil illa, og þurfa að finna lausnir, en það verður ekki í dag.
ÍBV 3 - 3 Grindavík/Njarðvík (16:00 í dag)
Massa spennandi leikur. Nýliðaslagur af bestu gerð. Bæði lið byrjað mótið frábærlega, og þessi leikur verður veisla ef allar eru með. Verður skemmtilegasti leikur umferðarinnar þar sem mörkin flæða. Ef Lowry er með setur hún tvennu og Olga með 1. Farkas neglir í þrennu.
Þróttur R. 3 - 2 Stjarnan (19:15 í kvöld)
Hér verður annar skemmtilegur leikur á ferðinni. Þróttur að tengja saman sigra meðan að Stjarnan er ekki alveg að finna sig. Þróttur vinnur þennan og kemst í 3-0 en Óskar finnur svo ON takkan á Úlfu sem setur tvö en það verður of seint.
Breiðablik 2 - 2 FH (19:15 í kvöld)
Hér mætast liðin sem var spáð tveimur efstu sætunum. Þetta verður hörkuleikur, þar sem FH kemst í 0-1 með marki frá Niu. Blikar jafna fyrir hlé, Ása setur þar gott mark. FH tekur aftur forystu með marki frá Ídu, og Blikar jafna svo í uppbótartíma með marki frá Öglu Maríu.
Víkingur R. 2 - 1 Valur (19:15 í kvöld)
Vikes vinna þennan leik nokkuð öruggt setja bæði mörkin í fyrri, Bergdís og Freyja með mörkin. Valur mun samt sýna takta og minnka þegar 10 eru eftir en það er of seint. Fáum eitt rautt í þennan leik líka, verður ein glórulaus tækling!
Fyrri spámenn:
Aldís Kara (4 réttir)
Ásta Eir (4 réttir)
Mist Rúnars (3 réttir)
Katrín Ásbjörns (3 réttir)
Arna Eiríks (2 réttir)


