Bayern á eftir ungstirni Bournemouth - Konate eftirsóttur
Lengjudeild karla
Njarðvík
45' 0
0
Grótta
Lengjudeild karla
Völsungur
45' 0
2
Ægir
Lengjudeild karla
ÍR
45' 0
0
Vestri
Vináttulandsleikur
Japan
LL 1
0
Ísland
Japan
1
0
Ísland
Koki Ogawa '87 1-0
31.05.2026  -  10:25
MUFG Stadium (Tókýó)
Vináttulandsleikur
Dómari: Damian Kos (Pólland)
Byrjunarlið:
1. Zion Suzuki (m) ('82)
4. Kou Itakura ('71)
6. Wataru Endo ('46)
7. Ao Tanaka ('71)
8. Takefusa Kubo ('71) ('82)
10. Ritsu Doan ('46)
13. Keito Nakamura
14. Junya Ito ('46)
15. Takehiro Tomiyasu ('82)
18. Ayase Ueda ('46)
22. Maya Yoshida ('15)

Varamenn:
12. Keisuke Osako (m)
23. Tomoki Hayakawa (m) ('82)
2. Yukinari Sugawara ('46)
3. Shogo Taniguchi ('82)
5. Yuto Nagatomo ('46)
9. Keisuke Goto ('71)
11. Daizen Maeda
16. Tsuyoshi Watanabe ('71)
17. Ao Tanaka
19. Koki Ogawa ('46)
20. Ayumo Seku ('46)
21. Hiroki Ito ('15)
24. Kaishu Sano ('82)
25. Junnosuke Suzuki
26. Kento Shiogai ('71)

Liðsstjórn:
Hajime Moriyasu (Þ)

Gul spjöld:

Rauð spjöld:
Leik lokið!

Þokkaleg frammistaða að mörgu leyti í tapi gegn Japan. Sóknarlega var liðið þó ekki að gera mikið þó vörnin hafi staðið vel að mestu.
97. mín
Logi með góðann bolta inn á teiginn sen Hayakawa kýlir frá, Boltinn fellur fyrir Hjört á 20 metrunum sem reynir skotið en boltinn framhjá.
96. mín
Dagur Dan með aukaspyrnu inn á teig Japan sem siglir yfir allt og alla og endar í markspyrnu.

Síðasti möguleikinn farinn þarna?
93. mín
Japanir verjast, Ísland fær hornspyrnu. Sína fyrstu í leiknum.

Ísak Snær með skot eftir hornið en Japanir koma boltanum frá.
92. mín
Ísland fær aukaspyrnu á álitlegum stað.
91. mín
Inn:Stefán Ingi Sigurðarson (Ísland) Út:Hörður Björgvin Magnússon (Ísland)
90. mín
Uppbótartíminn er 6 mínútur
Skal engan undra með allar þessar skiptingar og vatnspásu.
87. mín MARK!
Koki Ogawa (Japan)
Stoðsending: Yukinari Sugawara
Mark! Sugawara með góða fyrirgjöf frá hægri. Ogawa kemur sér framfyrir Aron Einar við markteiginn og sneiðir boltann snyrtilega með kollinum í stöngina fjær og inn.
85. mín
Af einhverjum ástæðum hefur Ísak ekki enn fengið að fara inná.
84. mín
Inn:Ísak Snær Þorvaldsson (Ísland) Út:Kristian Hlynsson (Ísland)
84. mín
Inn:Hjörtur Hermannsson (Ísland) Út:Daníel Leó Grétarsson (Ísland)
83. mín
Einn leikmaður úr byrjunarliði Japan eftir inn á vellinum.
82. mín
Inn:Kaishu Sano (Japan) Út:Takefusa Kubo (Japan)
82. mín
Inn:Tomoki Hayakawa (Japan) Út:Zion Suzuki (Japan)
82. mín
Inn:Shogo Taniguchi (Japan) Út:Takehiro Tomiyasu (Japan)
82. mín
Logi reynir skot eftir snögga sókn Íslands en hittir ekki markið.
81. mín
Hajime Moriyasu á í hörku samræðum við fjórða dómara leiksins sem þarf að hafa sig allan við að reyna róa manninn. Hvers vegna skil ég samt ekki.
79. mín
Takefusa Kubo hleypur með boltann í gegnum allan teiginn áður en hann nær skoti, boltinn í varnarmann og Ísland hreinsar.
78. mín
Hajime Moriyasu sem er afar snyrtilega klæddur er ekkert yfir sig ánægður með spilamennsku sinna manna í leiknum og lætur þá aðeins heyra það.
77. mín
Mikael Egill liggur í teignum og heldur um andlit sitt. Fengið eitthvað högg á kjálkann þegar Japan tók hornið.
76. mín
Aukaspyrna tekinn inn á teiginn og boltinn af Aroni Einari í átt að marki, Hákon ekki viss og slær boltann frá í horn.
75. mín Gult spjald: Stefán Teitur Þórðarson (Ísland)
Peysutog
74. mín
Inn:Aron Einar Gunnarsson (Ísland) Út:Andri Fannar Baldursson (Ísland)
74. mín
Inn:Benóný Breki Andrésson (Ísland) Út:Brynjólfur Willumsson (Ísland)
Fyrsti A-landsleikur Benóný Breka
71. mín
Inn:Kento Shiogai (Japan) Út:Takefusa Kubo (Japan)

71. mín
Inn:Tsuyoshi Watanabe (Japan) Út:Kou Itakura (Japan)

71. mín
Inn:Keisuke Goto (Japan) Út:Ao Tanaka (Japan)

69. mín
Vatnspása síðari hálfleiks Meira um Yuto Nagatomo. Margir muna eflaust eftir honum í búningi Inter Milan á árunum 2011 til 2018. Hann kunni afar vel við sig í Mílanó, svo mjög reyndar að hann bað konunnar sinnar japönsku leikkonunar Airi Taira á grasinu á San Siro.

Eina merkta mynd má finna af Nagatomo í myndabanka Fótbolta.net.

Mynd: Einar Sigurðsson
64. mín
Nakamura fer illa með góða stöðu. Kemst inn að teignum og velur að skjóta með Daníel Leó í andlitinu á sér. Samherji laus hinum megin í teignum en sem betur fer velur Nakamura lakari kostinn.
63. mín
Koki Ogawa í fínu færi við vítateigslínuna en setur boltann framhjá markinu.
62. mín
Hinn bróðirinn núna.
Logi með góðan bolta fyrir markið frá vinstri, Brynjólfur í góðri stöðu en nær að stýra skallanum á markið.

Átti hreinlega að gera betur þarna.
60. mín
Willum í hörkufæri!
Fær boltann í teignum eftir fasta sendingu frá Mikael Agli en setur boltann fram hjá úr prýðisgóðu færi.
55. mín
Nagatomo með skot á lofti eftir fyrirgjöf frá hægri, nær litlum krafti í skotið og veldur Hákoni ekki vandræðum með því.
53. mín
Hornspyrna til Japan eftir ágæta rispu hins 39 ára Yuto Nagatomo
51. mín
Viðbragsvarsla hjá Hákoni
Hornspyrnan tekinn frá vinstri yfir á fjærstöng þar sem Itakura nær til boltans. Nær fínu skoti en Hákon nær að slá boltann frá í hendina á Andra Fannari og afturfyrir.

Japnir malda eitthvað í móin og vilja víti en Pólverjinn segir nei.
50. mín
Japan sækir hornspyrnu.
46. mín
Inn:Willum Þór Willumsson (Ísland) Út:Gísli Gottskálk Þórðarson (Ísland)
Alls fimm skiptingar í hálfleik 4 hjá Japan en þetta sú eina íslenska
46. mín
Inn: Koki Ogawa (Japan) Út:Ayase Ueda (Japan)
46. mín
Inn: Yukinari Sugawara (Japan) Út: Ritsu Doan (Japan)
46. mín
Síðari hálfleik hafinn
Ísland hefur hér leik í síðari hálfleik.
46. mín
Inn:Ayumo Seku (Japan) Út:Wataru Endo (Japan)
46. mín
Inn:Yuto Nagatomo (Japan) Út: Junya Ito (Japan)
45. mín
Hálfleikur
Tölfræði fyrri hálfleiks Með bolta: Jap 57%-43% Ísl
Skot: Jap 7-3 Ísl
Sendingar: Jap 363-271 Ísl
45. mín
Hálfleikur

Flautað til hálfleiks í Tókýó og staðan markalaus. Eftir hæga byrjun komst lið Íslands betur inn í leikinn en engin klár dauðafæri litið dagsins ljós.
45. mín
+3 Takehiro Tomiyasu með skot á lofti eftir góða sókn Japan, boltinn tiltölulega beint á Hákon sem heldur þó ekki boltanum en kastar sér á eftir honum og handsamar að lokum.
45. mín
Uppbótartíminn er að lágmarki 4 mínútur
Skipting Yoshida og vatnspásan telja drjúgt.
44. mín
Suzuki þarf að verja!
Dagur Dan með lagleg tilþrif við D-bogann og nær fínu skoti sem Suzuki þarf að slá til hliðar.
39. mín
Ao Tanaka með tilraun af einhverjum 30 metrum. Beint á Hákon.
38. mín
Keito Nakamura með skalla að marki eftir fyrirgjöf frá hægri. Hákon slær boltann yfir markið. Fyrsta hornspyrna leiksins.
36. mín
Takefusa með skot af löngu færi, Hákon með auðvelda vörslu.
35. mín
Gísla Gottskálk langar rosalega í treyju Ritsu Doan leikmanns Frankfurt og gerir heiðarlega tilraun til að klæða hann úr henni. Sleppur með spjaldið.
33. mín Gult spjald: Kristian Hlynsson (Ísland)

Stígur létt á ristina á Endo og uppsker fyrir það gult.
32. mín
Tölfræðin að lagast 59%-41% er Possession tölfræðin
Er kominn tími á pizzu? Nú er stutt í hálfleik og fullkominn tími til að panta pizzu til að njóta með seinni hálfleiknum! Kíktu á Dominos.is
31. mín
Logi!
Fínt spil Íslands upp völlinn endar meö hörkuskoti frá Loga Tómassyni, Boltinn því miður hárfínt fram hjá stönginni.
24. mín
Vatnspása Hitinn í Tókýó er um 27 gráður og menn fá nú tækifæri til að vökva sig og fá eflaust skilaboð hjá þjálfurum sínum.
23. mín
Gengið betur að halda boltanum síðustu mínútur, ekkert náð að skapa opnanir samt.
18. mín
Með boltann Japan verið 78% með boltann hér þessar fyrstu tæpu tuttugu mínútur.
17. mín
Junya Ito með boltann úti til vinstri og reynir að finna samherja á stönginni fjær. Setur alltof mikið púður í fyrirgjöfina sem svífur hátt yfir teiginn og afturfyrir.
15. mín
Inn: Hiroki Ito (Japan) Út:Maya Yoshida (Japan)

Eitt stk varnarmaður Bayern Munchen mætir í hans stað.
13. mín
Goðsögn kveður Japanska landsliðið
Maya Yoshida er að hætta að leika með landsliði Japan. Bæði lið stila sér upp og standa heiðursvörð fyrir hann er hann gengur af velli í sínum síðasta landsleik.

Fallega gert og svo sannarlega vel við hæfi.
9. mín
Aftur er Nakamura að ógna, boltinn fellur fyrir hann í teignum en skot hans af varnarmanni og út.
8. mín
Stórhætta í teig Íslands
Japanir spila sig í gegnum vörn Íslands úti til vinstri. Keito Nakamura í þröngu færi við vinstra markteigshorn en setur boltann framhjá stönginni fjær.
6. mín
Heimamenn haldið boltanum töluvert í upphafi en ekkert náð að ógna marki Íslands.
2. mín
Fyrsta skotið er Íslands, tilraun af mjög löngu færi frá Degi Dan sem Zion í marki Japan á ekki í nokkrum vandræðum með.
1. mín
Leikur hafinn
Þetta er farið af stað í Tókýó, það eru heimamenn sem sparka þessu af stað.
Fyrir leik
Japanska liðið er gríðarlega vel mannað. Margir leikmenn Japans spila með gríðarsterkum liðum í Evrópu. Wataru Endo þekkja íslendingar vel sem Leikmann Liverpool en hann er síður en svo sá eini. Ao Tanaka er einnig á Englandi og leikur með Leeds. Markvörðurinn Suzuki spilar með Parma og Hioki Ito varnarmaðurinn sterki er leikmaður Bayern Munchen.

Mynd: EPA

Fyrir leik
Liðið að sjálfsögðu mætt á völlinn
Fyrir leik
Byrjunarliðið klárt og líkleg uppstilling
Mynd: Sverrir Örn Einarsson

Fyrir leik
Ganga á leikdegi
Fyrir leik
Japan gerir alltaf aðeins meira með hlutina Vináttuleikur er þetta vissulega en þeir í Japan vilja gera hlutina á ögn meira "grand" hátt. Leikurinn hefur því að sjálfsögðu nafn. Kirin Challenge Cup er því undir í leiknum.

Og já það er nánast örugglega bikar í boði fyrir sigurliðið.
Fyrir leik
Fjórða viðureignin við Japan frá upphafi Ísland hefur þrívegis mætt Japan áður á knattspyrnuvellinum.

Fyrsti leikurinn á milli þessara þjóða var leikinn á Laugardalsvelli árið 1971. Þar hafði Japan 0-2 útisigur eftir markalausan fyrri hálfleik.

Liðin mættust næst á glænýjum City of Manchester Stadium (nú Etihad Stadium) árið 2004 á sérstöku æfingarmóti sem England hélt í undirbúningi sínum yfir EM það ár. Þar hafði Japan 3-2 sigur í hörkuleik en Heiðar Helguson gerði bæði mörk Íslands í leiknum.

Liðin mættust svo í vináttuleik í Tókýó árið 2012, Japan hafði þar þægilegan 3-1 sigur þar sem Arnór Smárason gerði mark Íslands úr vítaspyrnu í uppbótartíma.

Heiðar Helguson er markahæstur Íslendinga gegn Japan
Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski

Fyrir leik
Stefán Ingi stoltur Stefán Ingi Sigurðarson, sóknarmaður Go Ahead Eagles í Hollandi, er meðal nýliða í íslenska landsliðshópnum sem mætir Japan í vináttulandsleik á sunnudag.

Arnar Gunnlaugsson landsliðsþjálfari sagði þegar hópurinn var kynntur að eftir góða þróun á ferli Stefáns væri næsta skref að hann fengi að prófa sig í landsliðsumhverfi.

   29.05.2026 13:43
Rosalega glaður og stoltur eftir að hafa fengið SMS frá Arnari


„Mér leið gríðarlega vel, rosalega glaður og stoltur af því að fá kallið í þetta verkefni. Arnar sendi á mig SMS hvort ég væri laus í spjall og þá fannst manni líklegt að maður væri að fara með. Við áttum svo gott samtal og gaman að geta rætt við hann í raun í fyrsta skipti," segir Stefán. Hann segir æfingar hafa gengið vel.

„Það var smá stress að vera í A-landsliðinu í fyrsta sinn en það er gaman að geta verið með góðum leikmönnum og geta reynt að sýna sig. Þetta er aðeins öðruvísi hópur því þetta er utan glugga en þetta er gott tækifæri fyrir mig að kynnast reynslumiklum leikmönnum."

Mynd: KSÍ

Fyrir leik
Sendiráð Íslands bauð í heimsókn Sendiráð Íslands í Tókýó bauð íslenska landsliðinu í sérstaka heimsókn á föstudag en liðið er í borginni að búa sig undir vináttulandsleik gegn Japan sem fram fer í dag.

   30.05.2026 08:25
Landsliðið heimsótti sendiráð Íslands í Tókýó


Mynd: KSÍ

Fyrir leik
Arnar var léttur þegar hópurinn var kynntur.
„Sælla minninga skoraði ég í leik með landsliðinu 1994 gegn úrvalsliði Japans eða eitthvað í þá áttina.“ Sagði Arnar léttur á blaðamannafundi er hópurinn var kynntur á dögunum.

   13.05.2026 16:30
Á góðar minningar frá Japan - „Of ungur til að kunna meta sushi og menninguna“


„Þannig að ég hef komið til Japans. Ég var allt of ungur til þess að kunna meta Sushi og menningu Japana. Núna er ég gamall og vonandi vitur, þannig ég mun klárlega njóta vel í Japan.“
Fyrir leik
Leikmannahópur Íslands í dag Arnar Gunnlaugsson valdi tvo mismunandi hópa fyrir leikina tvo sem nú fara í hönd. Hópurinn sem mætir Japan er eftirfarandi.

1. Ögmundur Kristinsson (m)
12. Hákon Rafn Valdimarsson (m)
13. Adam Ingi Benediktsson (m)
2. Logi Tómasson
3. Daníel Leó Grétarsson
4. Valgeir Lunddal Friðriksson
6. Hjörtur Hermannsson
7. Willum Þór Willumsson
9. Benóný Breki Andrésson
10. Ísak Snær Þorvaldsson
11. Stefán Ingi Sigurðarson
14. Andri Fannar Baldursson
15. Dagur Dan Þórhallsson
16. Stefán Teitur Þórðarson
17. Aron Einar Gunnarsson
18. Gísli Gottskálk Þórðarson
19. Mikael Egill Ellertsson
20. Kristian Hlynsson
21. Alfons Sampsted
22. Brynjólfur Willumsson
23. Hörður Björgvin Magnússon

Breytingar hafa orðið á hópnum frá fyrsta vali. Adam Ingi Benediktsson, Valgeir Lunddal Friðriksson voru ekki valdir í fyrstu. Þá var Stefán Teitur Þórðarson upprunalega valinn í leikinn gegn Argentínu en færður yfir í hópinn til Japan síðar. Einnig var Viktor Bjarki Daðason upprunalega valinn til þess að spila leikinn en hann þurfti að draga sig úr hópnum vegna meiðsla og var Ísak Snær Þorvaldsson kallaður upp í hans stað.

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Fyrir leik
Landsleikur í austurlöndum fjær
Heil og sæl kæru lesendur og verið hjartanlega velkomin í þessa beinu textalýsingu Fótbolta.net frá leik Japans og Íslands. Leikið er í Tókýo og flautað verður til leiks nú klukkan 10:25
Byrjunarlið:
12. Hákon Rafn Valdimarsson (m)
2. Logi Tómasson
3. Daníel Leó Grétarsson ('84)
14. Andri Fannar Baldursson ('74)
15. Dagur Dan Þórhallsson
16. Stefán Teitur Þórðarson
18. Gísli Gottskálk Þórðarson ('46)
19. Mikael Egill Ellertsson
20. Kristian Hlynsson ('84)
22. Brynjólfur Willumsson ('74)
23. Hörður Björgvin Magnússon ('91)

Varamenn:
1. Ögmundur Kristinsson (m)
13. Adam Ingi Benediktsson (m)
4. Valgeir Lunddal Friðriksson
6. Hjörtur Hermannsson ('84)
7. Willum Þór Willumsson ('46)
9. Benóný Breki Andrésson ('74)
10. Ísak Snær Þorvaldsson ('84)
11. Stefán Ingi Sigurðarson ('91)
17. Aron Einar Gunnarsson ('74)
21. Alfons Sampsted

Liðsstjórn:
Arnar Gunnlaugsson (Þ)

Gul spjöld:
Kristian Hlynsson ('33)
Stefán Teitur Þórðarson ('75)

Rauð spjöld: