Barca hefur áhuga á leikmanni Arsenal - Dias hugsar sér til hreyfings - Scott orðaður við Man Utd og Chelsea -
banner
   lau 30. maí 2026 08:25
Fótbolti.net
Landsliðið heimsótti sendiráð Íslands í Tókýó
Eimskip
Frá heimsókn landsliðsins í sendiráðið.
Frá heimsókn landsliðsins í sendiráðið.
Mynd: KSÍ
Mynd: KSÍ
Mynd: KSÍ
Mynd: KSÍ
Sendiráð Íslands í Tókýó bauð íslenska landsliðinu í sérstaka heimsókn í gær en liðið er í borginni að búa sig undir vináttulandsleik gegn Japan sem fram fer á morgun.

„Eins og alls staðar í Tókýó fékk liðið höfðinglegar móttökur og var gaman að hitta Íslendinga búsetta í Japan. Hreinn Pálsson, sendiherra, hélt stutta tölu og gaf liðinu kraft inn í komandi leik gegn Japan," segir á heimasíðu KSÍ.

„Landsliðið og fulltrúar KSÍ þakka sendiráðinu fyrir móttökuna og hlakka til að sjá Íslendinga í stúkunni á sunnudaginn."

Lestu um leikinn: Japan 0 -  0 Ísland

Leikurinn gegn Japan verður 10:25 að íslenskum tíma á morgun. Leikurinn er spilaður utan landsleikjaglugga og því var ekki hægt að velja leikmenn úr öllum deildum Evrópu. Ísland spilar svo gegn Argentínu í Alabama 10. júní í Bandaríkjunum og var valinn annar hópur fyrir það verkefni.



Hópurinn gegn Japan
Markverðir
Hákon Rafn Valdimarsson - Brentford F.C. - 21 leikur
Ögmundur Kristinsson - Valur - 19 leikir
Adam Ingi Benediktsson - AB

Útileikmenn
Alfons Sampsted - Go Ahead Eagles - 23 leikir
Dagur Dan Þórhallsson - CF Montreal - 8 leikir
Hjörtur Hermannsson - Volos F.C. - 30 leikir, 1 mark
Daníel Leó Grétarsson - Sonderjyske Fodbold - 29 leikir
Hörður Björgvin Magnússon - Levadiakos - 52 leikir, 2 mörk
Logi Tómasson - Samsunspor - 14 leikir, 1 mark
Valgeir Lunddal Friðriksson - Fortuna Düsseldorf - 16 leikir
Willum Þór Willumsson - NEC Nijmegen - 18 leikir
Andri Fannar Baldursson - Kasimpasa S.K. - 12 leikir
Stefán Teitur Þórðarson - Hannover 96 - 36 leikir, 1 mark
Gísli Gottskálk Þórðarson - Lech Poznan - 2 leikir
Aron Einar Gunnarsson - Al-Gharafa - 108 leikir, 5 mörk
Mikael Egill Ellertsson - Genoa CFC - 29 leikir, 2 mörk
Kristian Nökkvi Hlynsson - FC Twente - 11 leikir, 2 mörk
Brynjólfur Andersen Willumsson - FC Groningen - 9 leikir, 1 mark
Ísak Snær Þorvaldsson - Lyngby - 6 leikir, 1 mark
Stefán Ingi Sigurðarson - Go Ahead Eagles
Benoný Breki Andrésson - Stockport County F.C.
Slapp
banner