Michael Olise, Arne Slot, Julian Alvarez, Rafael Leao, Yan Diomande og fleiri góði koma til sögu í slúðrinu
2. deild karla
Dalvík/Reynir
LL 1
0
Þróttur V.
Lengjudeild karla
Vestri
LL 5
1
Völsungur
2. deild karla
Fjölnir
LL 2
3
Selfoss
Lengjudeild karla
Fylkir
LL 1
3
Þróttur R.
Fjölnir
2
3
Selfoss
0-1 Frosti Brynjólfsson '32
0-2 Viðar Örn Kjartansson '50
0-3 Frosti Brynjólfsson '61
Mikael Breki Jörgensson '71 1-3
Patryk Hryniewicki '73 2-3
06.06.2026  -  14:00
Egilshöll
2. deild karla
Dómari: Ásmundur Þór Sveinsson
Byrjunarlið:
13. Snorri Þór Stefánsson (m)
4. Þengill Orrason
5. Patryk Hryniewicki
8. Orri Þórhallsson (f) ('72)
9. Árni Steinn Sigursteinsson ('64)
10. Viktor Andri Hafþórsson ('53)
16. Mikael Breki Jörgensson
20. Egill Otti Vilhjálmsson
21. Birgir Þór Jóhannsson
26. Einar Örn Harðarson ('53)
27. Sölvi Sigmarsson ('72)
- Meðalaldur 22 ár

Varamenn:
12. Haukur Óli Jónsson (m)
7. Aron Fannar Hreinsson ('64)
11. Bjarni Þór Hafstein ('53)
15. Fjölnir Sigurjónsson ('53)
19. Þorkell Kári Jóhannsson ('72)
25. Róbert Thor Valdimarsson
80. Helgi Snær Agnarsson ('72)
- Meðalaldur 22 ár

Liðsstjórn:
Gunnar Már Guðmundsson (Þ)
Kári Arnórsson (Liðsstj.)
Gunnar Sigurðsson (MÞ)
Sveinn Atli Árnason (Styrktarþj.)
Antonio Maria Ferrao Grave (Sjúkraþj.)
Ásgeir Frank Ásgeirsson (AÞ)
Kristinn Þór Guðmundsson (Liðsstj.)

Gul spjöld:
Fjölnir Sigurjónsson ('66)
Patryk Hryniewicki ('83)
Mikael Breki Jörgensson ('88)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Frábær leikur að baki!!
95. mín
Horn á lokasekúndum fyrir Fjölni!!
93. mín
Spila það stutt og tefja. Þeir ætla bara að reyna halda forystunni
91. mín
Aukaspyrna fyrir Selfoss rétt fyrir utan teig hægra megin!
89. mín
Inn:Maksymilian Luba (Selfoss) Út:Eysteinn Ernir Sverrisson (Selfoss)
88. mín Gult spjald: Mikael Breki Jörgensson (Fjölnir)
Sá ekki alveg hver fékk þetta spjald. Giskum á Mikael
87. mín
Aron Fannar Hreinsson reynir skotið en boltinn fer hátt yfir. Fjölnismenn að pressa með mikilli ákefð. Lítið eftir
83. mín Gult spjald: Patryk Hryniewicki (Fjölnir)
Þarna munaði mjóu! Patryk fær gult fyrir kjaftbrúk eftir að Fjölnismenn vildu horn en fengu það ekki.
80. mín
Selfyssingar með skot á Snorra en hann ver þetta vel
73. mín MARK!
Patryk Hryniewicki (Fjölnir)
VIÐ ERUM MEÐ LEIK!!!! PATRYK SKALLAR HONUM INN EFTIR HORNSPYRNU! EKKERT FAGNAÐ OG BEINT Í MIÐJU!!
72. mín
Inn:Þorkell Kári Jóhannsson (Fjölnir) Út:Orri Þórhallsson (Fjölnir)
72. mín
Inn:Helgi Snær Agnarsson (Fjölnir) Út:Sölvi Sigmarsson (Fjölnir)
72. mín
Inn:Reynir Freyr Sveinsson (Selfoss) Út:Ívan Breki Sigurðsson (Selfoss)
72. mín
Inn:Aron Darri Auðunsson (Selfoss) Út:Aron Lucas Vokes (Selfoss)
71. mín MARK!
Mikael Breki Jörgensson (Fjölnir)
LITLA MARKIÐ! Leikmaður Selfoss meiðist en Ásmundur heldur þessu áfram Langt skot utan af teig beint upp í þaknet
67. mín
Mikill darraðardans eftir þessa aukaspyrnu. Aron Lucas reynir á endanum skotið en Snorri ver örugglega
66. mín Gult spjald: Fjölnir Sigurjónsson (Fjölnir)
Gult á fjölni fyrir brot á Eystein. Hættuleg staðsetning á þessari aukaspyrnu
64. mín
Inn:Aron Fannar Hreinsson (Fjölnir) Út:Árni Steinn Sigursteinsson (Fjölnir)
63. mín
Úffffffff Elías næstum búinn að henda í mark strax eftir hann kemur inná. Einn á móti marki og reynir að sneiða hann framhjá Snorra sem hleypur á móti. Boltinn fer útaf
62. mín
Inn:Elías Karl Heiðarsson (Selfoss) Út:Frosti Brynjólfsson (Selfoss)
62. mín
Inn:Jón Daði Böðvarsson (Selfoss) Út:Viðar Örn Kjartansson (Selfoss)
61. mín MARK!
Frosti Brynjólfsson (Selfoss)
Þau eru orðin þrjú!!! Frosti með frábært mark! Nær að komast í gegnum leikmenn og klárar þetta örugglega
59. mín
Horn fyrir Fjölni
58. mín
Aron Lucas reynir skot rétt hliðina á D-boganum. Flottur snúningur á honum en hann fer rétt framhjá
55. mín
Selfyssingar vilja fá dæmda hendi á varnarmann Fjölnis, ég gat ekki betur séð en að þetta átti að vera hendi
53. mín
Inn:Bjarni Þór Hafstein (Fjölnir) Út:Einar Örn Harðarson (Fjölnir)
53. mín
Inn:Fjölnir Sigurjónsson (Fjölnir) Út:Viktor Andri Hafþórsson (Fjölnir)
Skemmtilegt nafn hjá þessum!
50. mín
Mikill hiti í leiknum. Leikmaður Selfoss tekur niður sem virðist sparka eitthvað svo í Orra meðan hann liggur. Orri ætlar svoleiðis að hjóla í manninn en leikurinn ekki stöðvaður
50. mín MARK!
Viðar Örn Kjartansson (Selfoss)
2-0!!!! Viða fær háan bolta frá hægra kanti! Snorri reynir að ná fingurgómunum í þennan bolta en Viðar er fljótari að ná í hann og potar honum inn! VArnarmaður reynir að bjarga á línu en skýtur honum bara upp í þaknetið!
46. mín
Fjölnir fær aukaspyrnu á hættulegum stað Sýnist Frosti brjóta á Agli. Aukaspyrnar er fyrir framan teig, hægra megin. Príma skotfæri.

Slök spyrna. Reynir krossið en þar er varnarmaður mættir að skalla þetta burt. Illa nýtt
46. mín
Seinni hálfleikur hafinn Sýnist hvorugt lið gera breytingar
45. mín
Hálfleikur
+1 Vá!! Egill Otti með frábæra takta! Tekur boltann í fyrsta á hægri væng, og boltinn fer í þverslánna! Þetta var síðasta færi fyrri hálfleiks þar sem Ásmundur flautar beint eftir þetta!
45. mín
Horn fyrir Fjölni Frábær tækling frá Ívani Breka í aðdragandanum! Fjölnismenn fá hinsvegar annað horn eftir að skot Viktors að ég held fer í varnarmann.

Selfyssingar ná þó að hreinsa eftir mikinn skallaleik
44. mín
Frosti fær boltann, reynir að leika á varnarmann en missir hann frá sér. Var í flottu færi en kastaði þessu algjörlega frá sér þarna
43. mín
Lítið að gerast eftir þetta færi Viðars
37. mín
Dauðafæri fyrir Viðar Örn hér sem fær boltann einn á móti markmanni, en boltinn flækist eitthvað milli lappa Viðars og missir hann frá sér
37. mín
Annað horn fyrir Fjölni Spila sig vel hérna. Orri með flotta sendingu á leikmann vinstra megin inn í teig en Selfoss hreinsar út í horn. Fjölnismenn menn ná þó ekki að nýta tækifærin
35. mín
Fjölnir fékk horn Senda boltanum út fyrir teig á Mikael Breka sem reynir skotið sem fer aftur á manninn sem tók hornið sem ég sá ekki hvað heitir, hann nær fallegum boga á boltanum í teiginn en Selfoss hreinsar
32. mín MARK!
Frosti Brynjólfsson (Selfoss)
Selfoss skorar!! Selfyssingar nýta frábæra skyndisókn! Hlaupa aftur upp hægri vænginn, reyna lágan bolta inn, Fjölnismenn hreinsa eitthvað en Frosti nær frákastinu og þrusar honum í neðra vinstra hornið!

Fyrsta mark Frosta á tímabilinu!
Er kominn tími á pizzu? Nú er stutt í hálfleik og fullkominn tími til að panta pizzu til að njóta með seinni hálfleiknum! Kíktu á Dominos.is
31. mín
Orri með góða sókn fyrir Fjölni! Fær boltann hægra megin, hleypur að D-boganum og leikur á einn þar!
29. mín
Frábær skyndisókn fyrir Selfoss! Ívan Breki fær frábæran bolta fyrir, hleypur upp allan hægri vænginn og á sendingu á Viðar sem tekur hann í fyrsta, en boltinn er auðveldur fyrir Snorra Þór
27. mín
Fjölnismenn komast í sókn eftir mislukkaða sendingu. Hlaupa upp hægri venginn og reyna háa sendingu inn en Dagur er þar mættur og hreinsar í horn, en Fjölnir nær ekki að nýta sér þetta tækifæri
25. mín
Aron Lucas komst í skyndisókn fyrir Selfoss, en varnarmaðurinn var fljótari fyrir.
18. mín
Annað horn fyrir Selfoss Aron fær boltann í teignum en nær ekki skotinu alveg nægilega vel, boltinn fer af varnarmanni og út fyrir endalínu.

Selfoss fær síðan annað horn eftir að Dagur gerir tilraun að marki sem Fjölnir hreinsar út. Í seinna horninu þarf svo að stöðva leikinn eftir að tveir Fjölnismenn skella saman höfðum í skallabaráttu
17. mín
Þetta var heldur betur nálgt! Aron Lucas kominn á hægri kant og nær að sneiða flottum bolta á Aron. Aron tekur hann í fyrsta en boltinn lendir beint í andlitinu á Snorra og út í horn!

Selfoss nær þó ekki að nýta þetta horn
16. mín
Selfyssingar reiðir út í Ásmund. Snorri kominn rétt út fyrir teig, þeir ná að leika á hann en Snorri brýtur á sóknarmanninum en ekkert dæmt
14. mín
Viðar dæmdur rangstæður, flottur bolti frá Daða en hárrétt hjá AD
10. mín
Rétt eftir hornið voru Fjölnismenn í dauðafæri! Egill Otti komst á vinstri kant og reyndi lágan bolta inn, en Selfyssingar náðu að hreinsa! Þetta var kjörið tækifæri fyrir Fjölni!
9. mín
Fjölnir fær horn Mjög flott sókn fyrir heimamenn, Birgir Þór leikur á einn, sendir út, þeir reyna síðan háan bolta í teig en boltinn fer af Aron Fannari
6. mín
Annað horn fyrir Selfoss Viðar Örn fær boltann, nær að hringsóla einhvern og reynir skot, en Snorri nær að verja þennan bolta
4. mín
Horn fyrir Selfoss Selfoss búið að ógna meira. Ásmundur dæmir síðan brot í teig gegn Snorra Þór og aukaspyrna niðurstaðan
3. mín
Selfyssingar áttu fína sókn. Boltanum var skipt snyrtilega yfir á Aron Fannar sem var hægra megin, en Fjölnismenn voru flottir í vörn og náðu á enda að hreinsa boltanum
1. mín
Leikur hafinn
Stórleikur 2. deildar hafinn!
Fyrir leik
Þessi veisla fer að byrja! Liðin mætt út á völl!
Fyrir leik
Byrjunarliðsfréttir - Jón Daði á bekknum Gunni gerir tvær breytingar á Fjölnisliðinu. Inn koma Patryk Hryniewicki og Sölvi Sigmarsson.

Óli Flóvents gerir eina breytingu á sínu Selfossliði, en inn kemur Daði Kolviður sem fyrirliði fyrir Reyni Frey, en stóru fréttirnar eru þær að Jón Daði er kominn aftur inn í Selfossliðið, en hann byrjar á bekknum
Fyrir leik
Innbyrðis viðureignir Samkvæmt KSÍ hafa þessi lið mæst 26 sinnum, Fjölnir sigrað 12, Selfoss sigrað 13, og í eitt skipti hafa liðin gert jafntefli.

Fyrsti leikur fór fram 1996 í 1. umferð 3. deildar, en sá leikur fór 4-5, Selfossi í vil! Þar skoraði Sævar Þór Gíslason fjögur mörk fyrir Selfoss!

Stærsti sigur Fjölnis fór 4-1 í Lengjudeildinni 2022, Fjölnir endaði það tímabil í 4. sæti, en Selfoss sat í 9. sæti.

Stærsti sigur Selfoss var 0-4 sigur í 2. deild á því herrans ári 1998, en þar skoraði Njörður Steinarsson þrennu. Selfoss hélt sér uppi í 8. sæti, en Fjölnismenn þurftu að bíta í það súra epli að lenda í neðsta sæti deildarinnar
Fyrir leik
Gatorade-bikarinn Bæði lið taka þatt í yngstu og virtustu bikarkeppninni, en Fjölnir fóru norður í Bogann á Akureyri og tóku magnaða Magnamenn í kennslustund, og sigruðu 1-4!

Selfyssingar tóku ferð í Reykjaneshöllina og sigruðu Hafnir 1-3.

Fjölnir fá heimaleik gegn Álftanes, sem sitja ósigraðir í 1. sæti 4. deildar!

Selfoss fær skemmtilegan leik í 16-liða úrslitum, en þeir munu mæta sínu aðildarfélagi, Árborg! Það er ekki oft sem maður sér svona lagað í íslenskum fótbolta en þetta verður klárlega einn af skemmtilegri leikjum sumarsins!
Fyrir leik
Selfoss Selfoss situr í 5. sæti eftir 5 umferðir, en þeir hafa sigrað tvo gegn Kormáki/Hvöt og Víking Ó., gert tvö jafntefli gegn Hvíta Riddaranum og Dalvík/Reyni, og tapað einum gegn KFA.

Í þessum 5 leikjum hafa þeir skorað 5 en Aron Lucas Vokes og VÖK eru þar helstu markaskorararnir með þrjú mörk hvor.

Í seinasta leik fengu þeir lærisveina Tomasz Luba frá Víking Ó. í heimsókn og sigruðu þeir örugglega 3-1, en Viðar Örn skoraði þar tvö mörk.

Mikið hefur verið rætt og ritað um hvort það sé eitthvað vesen að ræða í Selfoss, en stærstu nöfnin í liðinu, VÖK og Jón Daði Böðvarsson, hafa báðir farið í agabann á þessu tímabili. Jón Daði hefur ekki verið ´í hóp í seinustu tveimur leikjum Selfoss. Spurningin er, verður Jón Daði með í dag?

Fyrir leik
Fjölnir Fjölnismenn sitja eins og er í 4. sæti 2. deildar, en með sigri geta þeir komið sér upp fyrir ofan Kormák/Hvöt og Kára og upp í 2. sæti!

Fjölnir hefur sigrað þrjá leiki í deildinni, þá á móti Magna, Dalvík/Reyni og Víking Ó., og tapað tveimur gegn Haukum og KFG í seinustu umferð.

Fjölnir hefur skoraðp 15 mörk í þessum 5 leikjum sem þeir hafa spilað, en Viktor Andri Hafþórsson hefur verið helst á skotskónum með 4 mörk!

Í seinasta leik gegn KFG fékk Bjarki Fannar Arnþórsson að líta tvö gul spjöld og verður því ekki með í dag.

Eins og frægt er féll Fjölnir niður í 2. deild eftir seinasta sumar í Lengjudeildinni, og eru því 100% að reyna ná þessum tveimur efstu sætum til þess að fara aftur upp í næstefstu deild!
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Fyrir leik
Dómaramál Dómari leiksins er Ásmundur Þór Sveinsson, en honum til halds og trausts verða Kári Mímisson og Nour Natan Ninir
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Góðan og blessaðan daginn kæru lesendur og verið hjartanlega velkomin í þráðbeina textalýsingu úr Egilshöllinni, en hér munu Fjölnir og Selfoss keppast í 6. umferð 2. deildar karla!
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Byrjunarlið:
98. Benjamín Jónsson (m)
2. Ívan Breki Sigurðsson ('72)
5. Dagur Jósefsson
6. Daði Kolviður Einarsson (f)
8. Bjarki Flóvent Ásgeirsson
9. Viðar Örn Kjartansson ('62)
10. Aron Fannar Birgisson
11. Frosti Brynjólfsson ('62)
19. Eysteinn Ernir Sverrisson ('89)
24. Guðmundur Stefánsson
32. Aron Lucas Vokes ('72)
- Meðalaldur 23 ár

Varamenn:
12. Rökkvi Rafn Agnesarson (m)
3. Reynir Freyr Sveinsson ('72)
7. Jón Daði Böðvarsson ('62)
18. Maksymilian Luba ('89)
23. Elías Karl Heiðarsson ('62)
27. Einar Bjarki Einarsson
75. Aron Darri Auðunsson ('72)
- Meðalaldur 23 ár

Liðsstjórn:
Óli Stefán Flóventsson (Þ)
Helgi Bárðarson (Liðsstj.)
Þorkell Ingi Sigurðsson (MÞ)
Alfreð Elías Jóhannsson (AÞ)
Lilja Dögg Erlingsdóttir (Sjúkraþj.)
Heiðar Helguson (AÞ)

Gul spjöld:

Rauð spjöld: