Viðar Örn Kjartansson hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna agabannsins sem varð til þess að hann var ekki í leikmannahópi Selfoss í síðustu umferð.
Í yfirlýsingunni segist Viðar hafa tekið hliðarspor frá þeirri vegferð sem hann hefur verið á undanfarna mánuði eftir leikinn gegn KFA í fyrstu umferð. Hann segist taka fulla ábyrgð á gjörðum sínum.
Í ítarlegu viðtali við Fótbolta.net fyrr í vetur ræddi Viðar um að hafa leitað sér hjálpar vegna áfengis og spilafíknar en sagði að hann væri í bataferli.

Yfirlýsing Viðars:
Eftir leikinn á móti KFA þann 2. maí sl. tók ég hliðarspor út af þeim vegi sem ég hef fetað síðustu mánuði. Ég tek fulla ábyrgð á mínum gjörðum og tek nú afleiðingunum og kem sterkari til baka.
Fókusinn minn er áfram á þeirri góðu vinnu sem ég hef verið í - með liðinu, félaginu, fjölskyldu og vinum. Þetta hliðarspor mun ekki breyta þeirri vegferð sem ég er á eða skilgreina þá vinnu sem hefur átt sér stað á nokkurn hátt.
Ég er ekkert eðlilega spenntur að mæta á völlinn aftur í vínrauðu, hjálpa liðinu og gefa allt mitt fyrir Selfoss-merkið. Áfram Selfoss!