Man Utd og Tottenham reyna að fá Summerville - Chelsea hefur áhuga á Costa og Cambiaso - Olise efstur á óskalista Real Madrid
KA
3
4
Fram
0-1 Þorri Stefán Þorbjörnsson '6
Hallgrímur Mar Steingrímsson '9 1-1
Sveinn Margeir Hauksson '17 2-1
2-2 Atli Þór Jónasson '34 , víti
2-3 Atli Þór Jónasson '42
2-4 Freyr Sigurðsson '63
Jóan Símun Edmundsson '84 3-4
15.06.2026  -  18:00
Greifavöllurinn
Besta karla
Aðstæður: Sól og blíða!
Dómari: Elías Ingi Árnason
Áhorfendur: 745
Maður leiksins: Freyr Sigurðsson (Fram)
Byrjunarlið:
13. Steinþór Már Auðunsson (m)
2. Birgir Baldvinsson ('71)
8. Jeppe Pedersen
9. Sveinn Margeir Hauksson ('77)
10. Hallgrímur Mar Steingrímsson
15. Oliver Heiðarsson ('64)
20. Diego Montiel ('64)
23. Markús Máni Pétursson
28. Hans Viktor Guðmundsson (f)
29. Jakob Snær Árnason ('71)
30. Guðjón Ernir Hrafnkelsson
- Meðalaldur 27 ár

Varamenn:
1. Ívar Arnbro Þórhallsson
3. Kári Gautason
7. Jóan Símun Edmundsson ('71)
14. Danijel Dejan Djuric ('64)
16. Jakob Héðinn Róbertsson ('64)
19. Breki Hólm Baldursson ('71)
25. Viktor Breki Hjartarson
26. Maron Páll Sigvaldason
44. Valdimar Logi Sævarsson ('77)
- Meðalaldur 22 ár

Liðsstjórn:
Hallgrímur Jónasson (Þ)
Egill Daði Angantýsson (AÞ)
Petar Ivancic (Liðsstj.)
Nicklas Cleemann Rulle (MÞ)
Hrannar Björn Steingrímsson (Leikgr.)
Halldór Hermann Jónsson (Sjúkraþj.)
Atli Sveinn Þórarinsson (AÞ)

Gul spjöld:
Markús Máni Pétursson ('20)
Oliver Heiðarsson ('38)

Rauð spjöld:
Skýrslan
Leik lokið!
Frábær leikur að baki! Það eru Framarar sem að fara kampakátir suður með stigin þrjú í pokanum eftir enn eina markasúpuna!

Skýrsla og viðtöl koma inn von bráðar - takk fyrir mig!
93. mín
Frí vika á áskriftarvefnum með viðbótar tölfræði Smelltu hér til að prófa

Mynd: Fótbolti.net

92. mín
Langur bolti inná teig Fram endar í fanginu á Viktori.
92. mín Gult spjald: Freyr Sigurðsson (Fram)
Dómaratuð.
91. mín
Uppbótartíminn Fjórar mínútur í uppbót...
89. mín
Gestirnir vinna boltann ofarlega og Kennie Chopart á fyrirgjöf inná teig KA sem að Hans setur aftur fyrir. Framarar fá horn.
87. mín
Ægir með skot! Ægir Jarl setur boltann rétt framhjá marki KA. Þetta var lúmskt!
86. mín
Elías Ingi metur sem svo að Steinþór Már hafi dýft sér þegar hann reyndi að sóla inní eigin teig og Fram fær horn.
84. mín MARK!
Jóan Símun Edmundsson (KA)
Stoðsending: Hallgrímur Mar Steingrímsson
VIÐ FÁUM SPENNANDI LOKAMÍNÚTUR!! Frábær skyndisókn heimamanna endar með því að Hallgrímur Mar gerir snilldarlega í að finna Færeyinginn inná teig Fram og hann þrumar boltanum framhjá Viktori.

3-4!
83. mín
Nú fá gestirnir horn. Jakob Byström gerði vel í að vinna þessa.
82. mín
Hún var ekki góð og Framarar eiga markspyrnu. Þetta er að renna út í sandinn hjá heimamönnum!
82. mín
Ægir Jarl þarfnast nú aðhlynningar utan vallar.

Á meðan eiga KA menn hornspyrnu.
78. mín
Chopart liggur eftir Hann átti einhverja ótrúlegustu móttöku sem ég hef séð þar sem að hann hoppaði upp eins og hann ætlaði að taka hjólhestastaspyrnu í baráttu við Breka Hólm og steindrap boltann, en liggur svo eftir samstuð við samherja strax í kjölfarið.

Hann er hins vegar í fínu lagi, sem er gott að sjá.
77. mín
Inn:Valdimar Logi Sævarsson (KA) Út:Sveinn Margeir Hauksson (KA)
77. mín
Inn:Simon Tibbling (Fram) Út:Vuk Oskar Dimitrijevic (Fram)
77. mín
Inn:Jakob Byström (Fram) Út:Fred Saraiva (Fram)
73. mín Gult spjald: Ægir Jarl Jónasson (Fram)
Stoppar Danijel Djuric í skyndisókn.
71. mín
Inn:Jóan Símun Edmundsson (KA) Út:Jakob Snær Árnason (KA)
71. mín
Inn:Breki Hólm Baldursson (KA) Út:Birgir Baldvinsson (KA)
66. mín
Glæsileg varsla hjá Steinþóri! Kennie Chopart á snöggt skot á nærstöngina eftir frábært samspil gestanna, en Steinþór er gríðarlega snöggur niður og ver skotið frábærlega!
64. mín
Inn:Jakob Héðinn Róbertsson (KA) Út:Diego Montiel (KA)
64. mín
Inn:Danijel Dejan Djuric (KA) Út:Oliver Heiðarsson (KA)
63. mín MARK!
Freyr Sigurðsson (Fram)
Stoðsending: Róbert Hauksson
ERU FRAMARAR AÐ KLÁRA ÞETTA? Jakob Snær er alltof lengi að athafna sig og boltinn er hreinlega tekinn af honum. Varamaðurinn Róbert á svo flotta fyrirgjöf á nærstöngina þar sem að frábær Freyr Sigurðsson mætir og smellir boltanum í netið!

2-4!
62. mín Gult spjald: Fred Saraiva (Fram)
Of seinn í Hallgrím Mar.
61. mín
Róbert næstum búinn að stimpla sig strax inn! Freyr Sigurðsson á enn einn sprettinn upp kantinn og setur boltann út í teiginn á dauðafrían Róbert, en framherjinn stæðilegi setur boltann framhjá!
60. mín
Inn:Róbert Hauksson (Fram) Út:Atli Þór Jónasson (Fram)
Atli nær ekki þrennunni í dag.
53. mín
Dauðafæri á silfurfati fyrir Atla Þór! Gríðarlega kæruleysislegt uppspil í öftustu línu KA endar með því að Kennie Chopart vinnur boltann og setur hann fyrir á Atla Þór. Atli, sem á möguleika á þrennu, setur boltann hátt yfir mark KA úr dauðafæri!
52. mín
Hægari taktur en í fyrri hálfleik KA menn hafa haldið í boltann í dágóða stund núna, en ekki fundið opnanir og spilið fremur hægt. Leikmenn mögulega enn að ná andanum eftir hraðan fyrri hálfleik.
46. mín
Freyr Sigurðsson kemst upp að endamörkum inná teig KA, en Steinþór Már gerir vel í að stoppa fyrirgjöf Freys.
46. mín
Seinni hálfleikur hafinn! Fred og Vuk koma seinni hálfleiknum af stað.
45. mín
45. mín
Hálfleikur
Mögnuðum fyrri hálfleik lokið! Þá geta leikmenn og áhorfendur náð andanum. Þetta hefur verið endanna á milli og af nægu að taka hér. Framarar hafa verið stórhættulegir á síðasta þriðjungi og oft verið full auðvelt fyrir þá að opna KA vörnina, en heimamenn hafa sömuleiðis skapað sinn skerf af færum og opnunum.

Spennandi 45 mínútur framundan!
45. mín
+2 Markús Máni missir boltann á afleitum stað og Vuk brunar upp völlinn, en sókn Fram rennur út í sandinn. Þetta var afar klaufalegt!
45. mín
Uppbótartíminn Tvær mínútur í uppbót.
45. mín
Jeppe með fast skot! Tekur boltann á lofti rétt fyrir utan teig Fram, en setur boltann framhjá. Hitti hann nokkuð vel!
42. mín MARK!
Atli Þór Jónasson (Fram)
HVAÐ ER ÞESSI LEIKUR?! Framarar sundurspila vörn KA áður en skot Freys Sigurðssonar er blokkað á línunni af Markúsi Mána. Þaðan berst boltinn til Atla Þórs, sem að þakkar fyrir sig með því að pota boltanum yfir línuna.

2-3!
38. mín Gult spjald: Oliver Heiðarsson (KA)
Er full seinn í pressunni og tekur Harald Einar niður.
38. mín
Chopart svo nálægt því að koma gestunum yfir! Hans Viktor á hörmulega sendingu á Birgi og Kennie hirðir boltann. Hann veður inná teig KA og á þéttingsfast skot sem að fer rétt framhjá fjærstönginni.
36. mín
Sjónvarpsvarsla! Viktor ver aukaspyrnu Hallgríms í horn. Var alltaf með þennan, en skutlan var glæsileg!
35. mín
KA menn fá aukaspyrnu á stórhættulegum stað. Hallgrímur Mar stendur yfir boltanum ásamt Jeppe!
34. mín Mark úr víti!
Atli Þór Jónasson (Fram)
FRAMARAR JAFNA!! - Mark úr víti Yfirvegaður Atli gerir engin mistök og setur Steinþór í vitlaust horn!
33. mín
Framarar fá víti! Freyr Sigurðsson gerir frábærlega í að komast inná teig KA og á fast skot sem að Steinþór ver, en Birgir Baldvinsson tekur hann niður og vítaspyrna er dæmd!
31. mín
KA menn fá aukaspyrnu inná miðjum vallarhelmingi Fram og freista þess að setja fyrirgjöf inná teig gestanna.

Þeir fá horn í kjölfarið.
31. mín Gult spjald: Israel Garcia (Fram)
Tekur Jakob niður.
28. mín
Vuk í færi! Fær boltann fyrir utan teig KA og lætur vaða, en skot hans er laust og Steinþór ræður við það.
24. mín
Guðjón með skot! Og svo frábær sprettur Hans Viktors! Fínasta spil KA endar með ágætis langskoti Guðjóns en Viktor ver vel.

Stuttu síðar á Hans Viktor frábæran sprett upp vinstri kantinn inná teig KA, en nær ekki að koma boltanum fyrir. KA menn vinna hornspyrnu og halda svo aðeins í boltann áður en sóknin rennur út í sandinn.
22. mín
Bylmingsskot! Kennie Chopart hamrar boltanum beint á Steinþór Má sem að slær boltann í burtu. Ef þetta hefði verið aðeins utar hefði þetta verið ansi krefjandi fyrir markmanninn stæðilega!
20. mín Gult spjald: Markús Máni Pétursson (KA)
Sveinn Margeir virðist bara hirða boltann af Fred beint fyrir framan teig KA, en Elías dæmir. Viðbrögð Markúsar eru ofsafengin að mati Elíasar og hann fær gult fyrir.

Aukaspyrna á stórhættulegum stað!
17. mín MARK!
Sveinn Margeir Hauksson (KA)
Stoðsending: Hallgrímur Mar Steingrímsson
KA MENN ERU BÚNIR AÐ SNÚA ÞESSUM LEIK Á HAUS!! Hallgrímur Mar fær boltann úti á vinstri kantinum og skrúfar boltann inná teig Fram. Þar er Diego Montiel í baráttu við Israel Garcia og ég sé ekki í hvorn boltinn fer áður en Sveinn Margeir fær hann.
Sveinn Margeir gerir engin mistök einn gegn Viktori og setur boltann í netið.

2-1!
16. mín
Kennie Chopart vinnur hornspyrnu fyrir gestina.
14. mín
Atli Þór Jónasson á fast skot fyrir utan teig KA, en það fer nokkuð hátt yfir markið.
13. mín
Ekkert að þessu marki Eftir að hafa séð endursýningu af atvikinu get ég bara staðfest að þarna er ranglega dæmt mark af KA.
11. mín
Elías dæmir mark af KA! Ég hreinlega veit ekki fyrir hvaða sakir! Birgir Baldvinsson treður boltanum yfir línuna á fjærstönginni eftir hornspyrnu, en Elías er þá búinn að dæma aukaspyrnu og heimamenn eru vægast sagt ósáttir.
9. mín MARK!
Hallgrímur Mar Steingrímsson (KA)
Stoðsending: Oliver Heiðarsson
HEIMAMENN SVARA STRAX!! Markaskorarinn Þorri er alltof lengi að athafna sig með boltann í öftustu línu og Oliver kemur á blindu hliðina á honum og potar boltanum til Hallgríms. Hallgrímur Mar er nákvæmlega ekkert að tvínóna við hlutina og hamrar boltann í nærhornið, óverjandi fyrir Viktor.

1-1!
6. mín MARK!
Þorri Stefán Þorbjörnsson (Fram)
Stoðsending: Haraldur Einar Ásgrímsson
FRAMARAR TAKA FORYSTUNA!! Hnitmiðuð hornspyrna Haralds ratar beint á kollinn á Þorra. Hann nær ekkert sérstaklega föstum skalla að marki KA, en boltinn tók ótrúlegan snúning í stöng og inn þegar hann lenti í jörðinni. Steinþór Már var alveg stjarfur á línunni.

0-1!
5. mín
Framarar fá fyrstu hornspyrnu leiksins. Virtist vera brotið á Birgi Baldvinssyni í aðdragandanum, en Elías Ingi taldi svo ekki vera.
4. mín
Oliver með eina hressilega Oliver Heiðarsson rennitæklar Fred Saraiva við litla hrifningu Fred. Oliver fær tiltal frá dómara leiksins, en ekkert meira.
2. mín
Framarar nálægt því að taka forystuna! Vuk fær boltann inná teig KA og setur fastan bolta þvert fyrir markið, en Atli Þór Jónasson nær ekki að pota tánni í boltann og KA menn sleppa með skrekkinn.
1. mín
Leikur hafinn
Þetta er komið af stað! Hallgrímur Mar á fyrsta spark leiksins.
Fyrir leik
Það er BONGÓ! Liðin ganga inná völlinn ásamt duglegum lukkudýrum og klappa fyrir áhorfendum. Mætingin er frábær í dag, enda væri glórulaust að kíkja ekki á völlinn í sólinni á Akureyri!
Fyrir leik
Dómarinn Elías Ingi Árnason heldur um taumana í dag og honum til aðstoðar eru Gylfi Már Sigurðsson og Eðvarð Þór Eðvarðsson. Varadómari er Gunnar Freyr Róbertsson og eftirlitsmaður er Þóroddur Hjaltalín.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Elías Ingi er með flautuna í dag.
Fyrir leik
Framarar á flugi "Rúnar Kristins og stúkan hristist," er gjarnan kyrjað og stúkan hefur sannarlega nötrað á leikjum Fram undanfarið. Liðið hefur skorað aragrúa af mörkum og verið virkur þáttakandi í nokkrum af skemmtilegustu leikjum sumarsins hingað til.

Hinn síungi Kennie Chopart hefur skorað 6 mörk og átt ríkan þátt í því að Fram situr í 3. sæti deildarinnar. Í kerfi Rúnars sem að býður uppá fjölbreytta möguleika og ákveðið frjálsræði hefur Kennie algjörlega glansað.

Rúnar Kristinsson sagði þó liðið vera með fæturna pikkfasta á jörðinni:
,,Við erum ekkert að fara að breyta okkar fókus og það er bara næsti leikur. Eins og ég sagði fyrir mót þá vorum við í 5. sæti í fyrra og við stefnum bara á að reyna að gera betur en það. Lykilatriðið er að vera í topp sex og sjá til þess að við getum verið nálægt þessum efstu liðum og eiga séns á að berjast um Evrópusæti. ''

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Glatt á hjalla eftir 4-3 sigur á Blikum í síðasta leik.
Fyrir leik
KA menn á kunnuglegum slóðum á þessum tímapunkti Það er orðinn árlegur viðburður að velta vöngum yfir gengi KA í upphafi Íslandsmótsins. Þeir byrja illa, fá ausuna yfir sig úr öllum áttum og rétta svo úr kútnum áður en liðið landar Forsetabikarnum. Það er ekkert ósennilegt að svipað verði uppá teningnum í ár, en yfirlýst markmið allra innan félagsins er að blanda sér í topp 6 og ætli liðið sér það, þá hreinlega verða þeir að fara að taka stig af liðunum fyrir ofan sig.

Í ár hefur KA gengið illa að skapa sér færi og skora mörk. Miklar vonir eru bundnar við Danijel Djuric og Oliver Heiðarsson, en þeir eiga enn eftir að setja mark sitt almennilega á leik liðsins. Sóknarleikur liðsins er á löngum stundum hugmyndasnauður og hægur. Miðja þeirra hefur sömuleiðis átt í basli með að stýra leikjum og verið eftir á í baráttu um seinni bolta og hreinlega virkað þung. Vörn KA er á pari við önnur lið og hefur innkoma Markúsar Mána Péturssonar í hjarta varnarinnar verið glimrandi fín, en Markús nýtur sannarlega góðs af því að spila við hlið Hans Viktors.

Kannski verður leiksins í dag minnst sem leiksins þar sem að allt datt í gang hjá KA liðinu. Skrítnari hlutir hafa skeð!

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Danijel Djuric er léttur í lund á Akureyri, en yrði sennilega tonni léttari ef hann kæmist á blað í dag.
Fyrir leik
Góðan daginn! Hér mun fara fram textalýsing á leik KA og Fram í Bestu-deild karla.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Byrjunarlið:
22. Viktor Freyr Sigurðsson (m)
3. Þorri Stefán Þorbjörnsson
8. Haraldur Einar Ásgrímsson
10. Fred Saraiva ('77)
16. Israel Garcia
17. Atli Þór Jónasson ('60)
18. Ægir Jarl Jónasson
19. Kennie Chopart (f)
25. Freyr Sigurðsson
26. Sigurjón Rúnarsson
29. Vuk Oskar Dimitrijevic ('77)
- Meðalaldur 26 ár

Varamenn:
1. Sigurjón Daði Harðarson (m)
7. Kristófer Konráðsson
9. Róbert Hauksson ('60)
12. Simon Tibbling ('77)
14. Bjarni Páll Linnet Runólfsson
15. Jakob Byström ('77)
23. Már Ægisson
- Meðalaldur 26 ár

Liðsstjórn:
Rúnar Kristinsson (Þ)
Sævar Halldórsson (Leikgr.)
Friðgeir Bergsteinsson (Liðsstj.)
Guðmundur Gígjar Sigurbjörnsson (Styrktarþj.)
Kristján Finnbogi Finnbogason (MÞ)
Magnús Þorsteinsson (Liðsstj.)
Einar Haraldsson (Sjúkraþj.)
Helgi Sigurðsson (AÞ)

Gul spjöld:
Israel Garcia ('31)
Fred Saraiva ('62)
Ægir Jarl Jónasson ('73)
Freyr Sigurðsson ('92)

Rauð spjöld: