Man Utd og Tottenham reyna að fá Summerville - Chelsea vill Costa

Crysencio Summerville er hollenskur landsliðsmaður.

Mynd: EPA

Diogo Costa.

Það er sannkallað fótboltahlaðborð í gangi um þessar mundir og Englendingar fóru vel af stað á heimsmeistaramótinu. Meðan HM er í gangi eru félagslið um alla Evrópu að vinna í leikmannamálum fyrir næsta tímabil.
Manchester United og Tottenham eru bæði að reyna að fá hollenska sóknarleikmanninn Crysencio Summerville (24) frá west Ham. (TeamTalk)
Chelsea hefur áhuga á portúgalska landsliðsmarkverðinum Diogo Costa (26) og íhugar að gera Porto tilboð. Hann er metinn á 51 milljón punda. (Mirror)
Chelsea hefur áhuga á ítalska bakverðinum Andrea Cambiaso (26) hjá Juventus og gæti boðið senegalska sóknarmanninn Nicolas Jackson (24) sem hluta af tilboðinu. (Gazzetta dello Sport)
Michael Olise (24) hjá Bayern München er efstur á óskalista Real Madrid og spænska stórliðið er vongott um að krækja í franska kantmanninn. (Mundo Deportivo)
Manchester United hefur engar áætlanir um að ræða við Barcelona um möguleika á að Marcus Rashford (28) verði lánaður þangað aftur. (ESPN)
Tottenham hefur hafnað öðru tilboði frá Brighton upp á 35 milljónir punda í króatíska miðvörðinn Luka Vuskovic (19) sem var á síðasta tímabili á láni hjá Hamburg. (Sky Sports)
Tottenham hefur hafið viðræður við Köln um þýska framherjann Said El Mala (19) og vonast til að skáka Newcastle og Nottingham Forest í baráttunni um leikmanninn unga. (TeamTalk)
Lazio og Feyenoord eru bæði með augastað á enska miðjumanninum Charlie Gray (20) hjá Manchester City. (Football Insider)