Real Madrid í baráttuna um Fernandes - Rashford ákvæðið að renna út - Pope falur fyrir fimm milljónir punda
Víkingur R.
2
0
KR
Helgi Guðjónsson '40 1-0
Valdimar Þór Ingimundarson '73 2-0
16.06.2026  -  19:15
Víkingsvöllur
Besta karla
Aðstæður: Sól og blíða í Víkinni, allt í toppstandi!
Dómari: Jóhann Ingi Jónsson
Maður leiksins: Gylfi Þór Sigurðsson
Byrjunarlið:
29. Aron Snær Friðriksson (m)
4. Oliver Ekroth (f) ('91)
6. Gunnar Vatnhamar
7. Erlingur Agnarsson ('82)
9. Helgi Guðjónsson
10. Gylfi Þór Sigurðsson
11. Daníel Hafsteinsson ('82)
19. Óskar Borgþórsson ('91)
22. Karl Friðleifur Gunnarsson
25. Valdimar Þór Ingimundarson
28. Elías Már Ómarsson ('70)
- Meðalaldur 29 ár

Varamenn:
47. Ögmundur Kristinsson (m)
2. Sveinn Gísli Þorkelsson ('82)
8. Viktor Örlygur Andrason ('82)
20. Tarik Ibrahimagic ('70)
21. Aron Elís Þrándarson ('91)
24. Davíð Örn Atlason ('91)
35. Þorri Ingólfsson
51. Hilmir Thor Christiansen
69. Ármann Ingi Finnbogason
- Meðalaldur 25 ár

Liðsstjórn:
Sölvi Ottesen (Þ)
Aron Baldvin Þórðarson (AÞ)
Hajrudin Cardaklija (MÞ)
Rúnar Pálmarsson (Sjúkraþj.)
Viktor Bjarki Arnarsson (AÞ)
Kári Sveinsson (Styrktarþj.)
Þórir Ingvarsson (Liðsstj.)
Daníel Darri Arnarsson (Leikgr.)

Gul spjöld:
Oliver Ekroth ('43)
Valdimar Þór Ingimundarson ('53)
Daníel Hafsteinsson ('71)
Óskar Borgþórsson ('85)

Rauð spjöld:
Skýrslan
Leik lokið!
Víkingar vinna toppslaginn! Komnir með sex stiga forystu á toppi deildarinnar. Fyrsta sinn sem KR skorar ekki mark á tímabillinu. Liðinu hefur mistekist að skora gegn Víkingum í síðustu þremur leikjum, tvisvar í deild og einu sinni í Lengjubikarnum.
91. mín
Inn:Aron Elís Þrándarson (Víkingur R.) Út:Óskar Borgþórsson (Víkingur R.)
91. mín
Inn:Davíð Örn Atlason (Víkingur R.) Út:Oliver Ekroth (Víkingur R.)
90. mín
Þremur mínútum bætt við KR-ingar reyna að brjóta niður þéttan varnarmúr Víkings en það reynist hægara sagt en gert.
89. mín
Ekroth og Vatnhamar báðir að kveinka sér. Óskar Hrafn sakar Víkinga um tafir.
85. mín Gult spjald: Óskar Borgþórsson (Víkingur R.)
Stöðvar hraða sókn KR-inga og fer í bókina.
82. mín
Inn:Sveinn Gísli Þorkelsson (Víkingur R.) Út:Erlingur Agnarsson (Víkingur R.)
82. mín
Inn:Viktor Örlygur Andrason (Víkingur R.) Út:Daníel Hafsteinsson (Víkingur R.)
80. mín
Inn:Eiður Gauti Sæbjörnsson (KR) Út:Stefán Árni Geirsson (KR)
80. mín
Inn:Galdur Guðmundsson (KR) Út: Luke Rae (KR)
79. mín
Arnór Ingvi með lúmskt skot sem Aron Snær þarf að hafa sig allan til við að verja.
77. mín
Amin með skalla úr hornspyrnu sem fer yfir mark heimamanna.
76. mín
Amin með góða takta og kemur sér í skotið en Gunnar Vatnhamar gerir frábærlega og kemur sér fyrir skotið.
73. mín MARK!
Valdimar Þór Ingimundarson (Víkingur R.)
Stoðsending: Daníel Hafsteinsson
HRÆÐILEG MISTÖK AKOTO! Kemur með ægilega sendingu inn á miðju sem Danni Hafsteins kemst inn í. Daníel sólar Akoto og rennir boltanum til hliðar á Valdimar sem skorar í autt markið. Akoto búinn að vera frábær í kvöld en gerist síðan sekur um þessi hræðilegu mistök.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
71. mín Gult spjald: Daníel Hafsteinsson (Víkingur R.)
Brýtur á Aroni Sig og fær það gula.
70. mín
Inn:Tarik Ibrahimagic (Víkingur R.) Út:Elías Már Ómarsson (Víkingur R.)
Víkingar þétta raðirnar Valdimar fer upp á topp, Tarik inn á miðju.
70. mín
Akoto búinn að vera stórkostlegur í hægri bakverði, sóknar- og varnarlega.
68. mín
Hótar eigin marki! KR-ingar með hættulega fyrirgjöf sem Karl Friðleifur hreinsar rétt yfir eigið mark.
65. mín
Rangstöðumark! Michael Akoto með gott slútt fyrir utan teig, allir hættir reyndar, en aðstoðardómarinn flaggar. MJÖG tæpt en hallast að því að þetta sé rétt.
64. mín
KR-ingar banka og banka! Aftur í góðri sókn sem endar með hornspyrnu!
62. mín
Gestirnir í góðri stöðu! Amin stingur Vatnhamar af og nær að koma boltanum á Luke Rae sem er í teig Víkings. Luke með slaka ákvarðanatöku, hefði getað lagt boltann út á Arnór Ingva, en lætur sjálfur vaða en Aron Snær handsamar boltann örugglega.
59. mín
KR-INGAR Í DAUÐAFÆRI! Michael Akoto með frábæra sendingu í gegn á Arnór Ingva sem kemur með stórhættulega sendingu fyrir mark Víkings en Stefán Árni nær ekki að reka stóru tána í boltann. Þarna munaði engu!
57. mín
Víkingur fær hornspyrnu, boltinn á Gunnar Vatnhamar sem setur boltann himinhátt yfir.
55. mín
Frábær sókn KR-inga! KR-ingar galopna vörn Víkinga! Luke Rae þræðir Arnór Ingva í gegn sem tekur skot úr þröngri stöðu en Aron Snær ver frábærlega í marki Víkings.
54. mín
Stefán Árni með hættulega sendingu fyrir mark Víkings en enginn KR-ingur á hættusvæðinu.
53. mín Gult spjald: Valdimar Þór Ingimundarson (Víkingur R.)
Brýtur á Stefáni Árna við hliðarlínu og fer í bókina góðu.
50. mín
Frí vika á áskriftarvefnum með viðbótar tölfræði Smelltu hér til að prófa

Mynd: Fótbolti.net

49. mín
Elías í frábæru færi! Erlingur þræðir Elías í gegn sem keyrir að teignum og lætur vaða en skot hans yfir mark KR-inga!
46. mín
Seinni hálfleikur farinn af stað Gestirnir hefja leik.
45. mín
Mark Helga
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

45. mín
Hálfleikstölfræði Víkingur 1-0 KR
47% - Með bolta - 53%
6 - Skot - 3
3 - Skot á mark - 2
2 - Horn - 2
11 - Snertingar í teig - 6
45. mín
Hálfleikur
Hálfleikur Jóhann Ingi flautar til hálfleiks, heimamenn leiða eftir mark frá Helga Guðjónssyni.
45. mín
Einni mínútu bætt við
43. mín Gult spjald: Oliver Ekroth (Víkingur R.)
Fer harkalega í Stefán Árna í aðdragandanum hjá færi KR-inga, Jóhann Ingi beitir hagnaðarreglunni og spjaldar svo fyrirliða Víkings.
42. mín
Amin reynir skot úr þröngri stöðu sem Víkingar komast fyrir.
40. mín MARK!
Helgi Guðjónsson (Víkingur R.)
Stoðsending: Gylfi Þór Sigurðsson
HELGI BRÝTUR ÍSINN! Boltinn í gegnum allan pakkann í hornspyrnunni og á Helga sem lætur vaða við vítateig. Boltinn í KR-ing, breytir um stefnu, og þaðan í netið!
40. mín
Víkingar fá hornspyrnu, Gylfi tekur.
36. mín
Slæmir hendinni í Danna Hafsteins Ekkert að gerast og Stefán Árni virðist slá aðeins aftur fyrir sig og í Danna Hafsteins sem liggur eftir, virðist sárþjáður. Ekki harkalegt högg en heimskulegt hjá Stefáni engu að síður. Dómararnir misstu af þessu og ekkert dæmt.
35. mín
Aron Sig í góðu færi! Lætur vaða við vítateig en skotið slakt og beint á Aron Snæ sem ver örugglega. Heldur betur að lifna yfir þessu!
32. mín
STÖNGIN - Víkingar vilja víti! Óskar Borgþórs með skot sem fer, að mér sýnist, í hendina á Amin og þaðan í utanverða stöngina. Boltinn í hornspyrnu!

Gerðist allt mjög hratt, skil vel að Jóhann Ingi hafi ekki séð þetta.
30. mín
Valdimar með skot sem Halldór Snær ver örugglega í marki KR.
30. mín
Þrjátíu mínútur liðnar, get ekki sagt að þetta hafi verið stórkostleg skemmtun.
25. mín
Hafliði Breiðfjörð með myndavélina á lofti
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

23. mín
KR-ingar í færi! Luke Rae með fyrirgjöf á fjær, þar er Amin Cosic sem nær ekki snertingu á boltann sem fer aftur fyrir endalínu. Þarna mátti litlu muna.
21. mín
Michael Akoto stígur á Helga Guðjóns sem liggur óvígur eftir, ekkert dæmt. Líklegast ekkert þægilegt að fá Akoto á sig.
15. mín Gult spjald: Arnór Ingvi Traustason (KR)
Víkingar ætla að taka hratt innkast en Arnór kemur í veg fyrir að þeir fái boltann strax og fer í bókina. Dýrt grín hjá Arnóri.
14. mín
Fyrsta færi Víkings! Karl Friðleifur með hættulega fyrirgjöf á Elías Má sem stingur sér fram fyrir Finn Tómas en tekst ekki að stýra boltanum á markið.
13. mín
Illa farið með góða stöðu Elías Már missir boltann á hættulegum stað. Boltinn á Stefán Árna sem er of lengi að athafna sig við vítateig Víkings og sóknin rennur út í sandinn.
10. mín
AMIN COSIC! Með frábæra takta vinstra megin, klobbar Erling, prjónar sig að marki Víkings og lætur vaða úr þröngri stöðu en Aron Snær ver vel. KR uppsker hornspyrnu en ekkert kemur úr henni.
8. mín
Ekkert kemur úr hornspyrnu KR-inga en Vesturbæingar halda í boltann.
7. mín
Luke Rae með hættulega fyrirgjöf en enginn KR-ingur fyrir framan mark Víkings og Helgi Guðjónsson hreinsar í horn.
6. mín
Frábært úthlaup hjá Aroni! Halldór Snær með frábæran bolta í gegn á Luke Rae en Aron Snær, markvörður Víkings, með frábært úthlaup og kemur hættunni frá!
5. mín
Bæði lið þreifa á hvoru öðru, hvorugt þó búið að skapa sér færi.
1. mín
Leikur hafinn
Veislan er hafin! Daníel Hafsteinsson sparkar þessu af stað. Gífurleg spenna í loftinu!

Rauðsvartir Víkingar og svarthvítir KR-ingar sem leika í hvítum buxum og sokkum.
Fyrir leik
Hálfleikstölfræði 47% - Með bolta - 53%
6 - Skot - 3
3 - Skot á mark - 2
11 - Snertingar í teig - 6
Fyrir leik
Biðin styttist! Liðin ganga til vallar, stór Ingvars borði í stúkunni og stuðningsmenn beggja liða syngja og tralla.
Fyrir leik
Hentar betur gegn varnarmönnum Víkings Óskar sagði í viðtali við Nablann á Sýn fyrir leik að hann teldi Stefán Árna henta betur gegn varnarmönnum Víkings. Þá vildi hann gefa Sigurði Breka hvíld eftir U19 leikina.
Fyrir leik
Logi Tómasson tekur lagið fyrir leik í treyju Ingvars Jónssonar. Logi verður með styrktartónleika fyrir Ingvar í Víkingsheimilinu á fimmtudaginn.
Fyrir leik
Fyrir leik
Rúmar tíu mínútur í leik, Gylfi æfir aukaspyrnurnar og fólk fer að tylla sér í stúkuna.
Fyrir leik
Frí vika á áskriftarvefnum með viðbótar tölfræði Smelltu hér til að prófa

Mynd: Fótbolti.net

Fyrir leik
Innkastið verður í beinni á X977 klukkan 21:30 í kvöld Elvar Geir, Valur Gunnars og Kristinn Kjærnested gera umferðina upp.

Fyrir leik
Hálftími í leik og trúbador mættur inn á völl til að hita stuðningsmenn Víkings upp. Honum tekst þó aðeins að kynda í KR-ingum með því að byrja syngja 'Það er aðeins eitt Reykjavíkurstórveldi, þeir koma alla leið úr Fossvogi.'
Fyrir leik
Sólin skín og létt gola hér í Víkinni. Stuðningsmenn beggja liða mættir og gæða sér á ljúffengum veitingum Víkings.
Fyrir leik
Eiður Gauti á bekknum Óskar Hrafn Þorvaldsson gerir tvær breytingar frá 5-3 sigri KR gegn KA í Vesturbænum í síðustu umferð.

Stefán Árni Geirsson og Orri Hrafn Kjartansson koma báðir inn í liðið á kostnað Eiðs Gauta Sæbjörnssonar og Sigurðar Breka Kárasonar. Stefán fer væntanlega fremstu stöðuna líkt og gegn Val fyrr í sumar þar sem hann skoraði tvö mörk.

KR endurheimtir Alexander Rafn, Arnór Ingva og Ástbjörn Þórðarson úr meiðslum og eru þeir allir í hóp. Arnór er sá eini sem byrjar en hann fór meiddur af velli gegn KA. Fljótt á litið er leikmannaval KR örlítið varnarsinnaðra en hefur tíðkast á tímabilinu.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Landsliðsmennirnir inn hjá Víkingi Sölvi Geir Ottesen gerir þrjár breytingar á byrjunarliði sínu frá 1-2 bikarsigri gegn ÍA uppi á Skaga síðastliðinn föstudag. Inn í liðið koma landsliðsmennirnir tveir, Gylfi Þór Sigurðsson og Gunnar Vatnhamar, ásamt Erlingi Agnarssyni. Sveinn Gísli Þorkelsson, Ármann Ingi Finnbogason og Tarik Ibrahimagic taka sér sæti á bekknum. Þá er Jóhannes Kristinn Bjarnason utan hóps.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Líklegt byrjunarlið KR
Mynd: Kári Snorrason
Fyrir leik
Líklegt byrjunarlið Víkings
Mynd: Kári Snorrason

Fyrir leik
Víkingar sigurstranglegri Víkingur er töluvert líklegra liðið komandi inn í leikinn ef marka má veðbanka.

Einn slíkur, Epicbet, býður upp á 1.49 í stuðul á Íslandsmeistarana en 5.84 er í stuðul á KR sigur. Þá er 5.06 í stuðul á jafntefli.
Í könnun á forsíðu Fótbolta.net, þar sem tæplega tvö þúsund lesendur tóku þátt, er sama stef en 63% lesenda spáir Víkingi sigri og 27% spá KR sigri.

Samkvæmt Epicbet eru Elías Már Ómarsson (Víkingur R.) og Aron Sigurðarson (KR) líklegustu markaskorarar kvöldsins og er rúmlega tveir í stuðul á að þeir skori.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Enginn blástur undir rassgat Óskar Hrafn, þjálfari KR, ræddi um Víkingsliðið í viðtali við Fótbolta.net í gær.

„Myndi ég spila eins með Víkingsliðið? Nei, en þeir eru búnir að búa til gríðarlega öflugt lið og eiga allt hrós skilið fyrir það hvernig þeir eru búnir að byggja þetta upp á undanförnum árum og ég held að það sé það sem skipti mestu máli. Þeir eru liðið sem setur standardinn, þeir eru liðið sem við hinir þurfum að elta. Flest sem þeir hafa gert undanfarin ár hefur gengið upp, eins og gengið gefur til kynna eru þeir langsterkasta lið landsins.“

„Það hlýtur að drífa önnur lið og þá sem eru að vinna hjá öðrum liði á hverjum degi að reyna komast á þann stað að geta náð þeim. Þeir eru forystusauðirnir í dag, það er ljóst. Með því er ég ekkert að reyna blása undir rassgatið á þeim eða búa til einhvern reykjarmökk í kringum þá, það er bara staðreynd," sagði Óskar í samtali við Fótbolta.net í gær.

Fyrir leik
Gott að hafa lið eins og KR „Það að fara í toppslag gegn KR leggst mjög vel í mig, ég er spenntur eins og fyrir alla aðra leiki. Það er frábært að þetta séu liðin sem eru í sæti í eitt og tvö núna að keppast, maður finnur að það sé mikil spenna fyrir leiknum.

Við erum samt ennþá í júní, við skulum aðeins róa okkur, en vissulega spennandi og hörkuleikur framundan. Vonandi verður hann skemmtilegur," sagði Sölvi Geir Ottesen, þjálfari Víkings, í samtali við Fótbolta.net í gær.

Fyrir leik
Framlengja við Gylfa og Kalla Víkingur framlengdi við bæði Gylfa Þór Sigurðsson og Karl Friðleif Gunnarsson fyrr í dag.

Gylfi skrifaði undir samning út tímabilið 2027 en Karl út tímabilið 2029.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Jóhann Ingi með flautuna Jóhann Ingi Jónsson mun dæma leikinn. Ragnar Þór Bender og Kristján Már Ólafs verða aðstoðardómarar og fjórði dómari verður Pétur Guðmundsson. Eftirlitsmaður verður enginn annar en Viðar Helgason.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Epískar viðureignir Síðasti deildarleikur liðanna var sannkölluð martröð fyrir KR-inga en Víkingar í sjöunda himni. Leikar enduðu 0-7 og var það jöfnun á stærsta deildartapi KR í sögunni.

Í miðjum heimsfaraldri vann KR 2-0 sigur á Víkingum þar sem allir þrír hafsentar Víkings, Kári Árnason, Sölvi Geir Ottesen og Halldór Smári Sigurðsson, fengu rautt spjald.

Víkingar komu níu fingrum á Íslandsmeistaratitilinn er liðið vann dramatískan 2-1 sigur á KR ári síðar, 2021. Helgi Guðjóns kom Víkingi yfir á 87. mínútu og Ingvar Jónsson varði vítaspyrnu í uppbótartíma.

Fyrir leik
Dóri Árna rýnir í liðin Guðmundur Aðalsteinn, fréttamaður Fótbolta.net, ræddi við Halldór Árnason og Þorlák Árnason í aðdraganda leiksins og spurði þá út í liðin tvö.

Hægt er að sjá samantektina að fullu með að fara í áskrift hjá Fótbolti.net en hægt er að fá prufuáskrift í viku.

Sjáum hvað Halldór Árnason segir um liðin tvö: „Leikur Víkings felst í að hafa fullkomna stjórn á leiknum, spila algjört 'positional play' þar sem leikmenn eru mjög agaðir í fyrirfram skilgreindum stöðum á vellinum. Víkingur eru með frábæra leikmenn og eru mjög vel drillaðir í sínum sóknarleik og skora mikið af mörkum. Hins vegar velja þeir mjög vel hvar og hvenær þeir taka áhættur í sóknarleik, eru með marga menn fyrir aftan boltann og gríðarlega sterkir varnarlega."

„KR er ekki 'positional play' lið heldur meira lið sem spilar af miklu frjálsræði og er það næsta sem við höfum séð af relationisma fótbolta á Íslandi. Það er leikstíll sem hefur sterk grunngildi, er þjálfað óendanlega vel en hefur þetta frjálsa yfirbragð þar sem nær allir leikmenn taka þátt í sóknarleik og eru með marga leikmenn í kringum boltann, eins og við höfum séð á vinstri hlið liðsins," sagði Dóri.



Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Víkingar með þriggja stiga forystu Víkingar eru með þriggja stiga forystu á toppi deildarinnar. Með sigri getur KR komist í 28 stig og þar með jafnað Víking.

Íslandsmeistararnir eru þó með mun betri markatölu (Víkingur +28 - KR +15) og þarf því eitthvað meiriháttar að gerast svo að KR-ingar tylli sér á toppinn.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Stór er hann! Leikirnir gerast varla stærri en leikur kvöldsins í Víkinni þar sem Íslandsmeistarar Víkings taka á móti KR. Um er að ræða tvö efstu lið deildarinnar, en Víkingur er með þriggja stiga forskot á KR.

Besta karla
19:15 Stjarnan-Breiðablik (Samsungvöllurinn)
19:15 Víkingur R.-KR (Víkingsvöllur)
19:15 ÍA-Valur (ELKEM völlurinn)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Byrjunarlið:
12. Halldór Snær Georgsson (m)
4. Michael Akoto
7. Finnur Tómas Pálmason
8. Stefán Árni Geirsson ('80)
11. Aron Sigurðarson (f)
17. Luke Rae ('80)
19. Amin Cosic
21. Gabríel Hrannar Eyjólfsson
23. Arnór Ingvi Traustason
26. Hrafn Tómasson
77. Orri Hrafn Kjartansson
- Meðalaldur 26 ár

Varamenn:
1. Sigurpáll Sören Ingólfsson (m)
5. Birgir Steinn Styrmisson
9. Eiður Gauti Sæbjörnsson ('80)
14. Alexander Rafn Pálmason
15. Gyrðir Hrafn Guðbrandsson
22. Ástbjörn Þórðarson
28. Hjalti Sigurðsson
30. Sigurður Breki Kárason
45. Galdur Guðmundsson ('80)
- Meðalaldur 22 ár

Liðsstjórn:
Óskar Hrafn Þorvaldsson (Þ)
Hilmar Árni Halldórsson (AÞ)
Guðmundur Óskar Pálsson (Leikgr.)
Magnus Börheim (Sjúkraþj.)
Björn Valdimarsson (Forráðam.)
Lúðvík Júlíus Jónsson (Liðsstj.)
Guðjón Örn Ingólfsson (Styrktarþj.)
Jamie Paul Brassington (MÞ)

Gul spjöld:
Arnór Ingvi Traustason ('15)

Rauð spjöld: