Fotbolti.net
15.06.26 - 22:08
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Óskar Hrafn: Er ekkert að blása undir rassgatið á Víkingum með því, það er bara staðreynd

'Við þurfum að gera þetta af mikilli orku, það verður algjör lykill fyrir okkur'

'Við þurfum að gera þetta af mikilli orku, það verður algjör lykill fyrir okkur'

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Við erum mjög spenntir að máta okkur gegn þessu ógnvænlega sterka Víkingsliði," segir Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR, fyrir stórleik liðsins gegn Víkingi.

Þar mætast liðin í fyrsta og öðru sæti deildarinnar og fer leikurinn fram á Víkingsvelli annað kvöld og hefst klukkan 19:15.
Tvær gjörólíkar leiðir á toppinn
TENGT EFNI

Tvær gjörólíkar leiðir á toppinn

Byrjunin skiptir miklu máli
„Ég býst við leik sem verður barátta á milli tveggja ólíkra leikstíla. Annars vegar ertu með lið sem vill mikinn strúktúr og er mjög rútínerað; frábærir í því sem þeir gera og vilja helst hafa stjórn á því sem þeir gera, á móti liði sem er kaotískara; hvort sem það er í vörn eða sókn."

„Ég held að það muni skipta máli fyrir okkur að koma í veg fyrir að Víkingar nái að spila sinn leik, taka þá út úr þægindarammanum og hleypa leiknum upp í kaos með háu tempói. Það er held ég það mikilvægasta fyrir okkur. Í grunninn á ég von á hörkuleik. Á undanförnu ári höfum við spilað mjög misjafna leiki á móti þeim, töpuðum í Víkinni í fyrra þar sem við vorum betri aðilinn fannst mér og töpuðum þá ósanngjarnt 3-2. Við lentum síðan undir sláttuvél hérna á KR-vellinum, töpuðum stórt þar."

„Ég held að byrjunin á leiknum muni koma til með að skipta miklu máli. Leikirnir síðustu tvö ár þar sem Víkingur hefur verið með gjörsama yfirhönd hafa verið leikir þar sem þeir hafa snemma náð forystu, þá er oft á brattann á sækja á móti þeim. Þannig ég held að byrjunin á leiknum muni gefa svolítið tóninn fyrir það hvernig leikur þetta verður."


Hraði og orka er lykillinn
Líður þér eins og þið þurfið að þvinga þá í að út úr sínum strúktúr og skipulagi með ykkar leik?

„Mér líður nákvæmlega þannig. Við munum lenda í verulegum vandræðum ef við leyfum þeim að falla einhvern veginn þægilega inn í sitt, þeir eru það með mikil gæði og það rútíneraðir í því sem þeir gera að þá getur þetta kvöld í Fossvoginum orðið erfitt fyrir okkur. Það er gríðarlega mikilvægt að við mætum með hátt orkustig, agressífir og gerum hlutina hratt; hvort sem það er með eða án bolta. Við þurfum að gera þetta af mikilli orku, það verður algjör lykill fyrir okkur."

Þurfum að læra að lifa af þar
KR tapaði 0-7 gegn Víkingi í ágúst í fyrra. Þú talar um sláttuvélina í fyrra, eruð þið búnir að læra mikið frá þeim leik og þeim tímapunkti?

„Ég veit það ekki, það var ekkert endilega einhver tímapunktur sem við horfum á að hafa orðið einhver kúvending á einhverju. En auðvitað er fólginn ákveðinn lærdómur af því að tapa stórt, þú tekur alltaf eitthvað með þér út úr slíkum leikjum. Á sama hátt tökum við lærdóm af Blikaleiknum fyrr í sumar."

„Ég held þetta snúist um ákveðinn þroska, við erum árinu eldri og á þeim stað sem við erum á í töflunni. Við þurfum að læra að lifa þar, ef við ætlum að lifa á þessum enda töflunnar þurfum við að geta mætt á okkar forsendum á móti efsta liðinu og haldið okkar. Ég held það sé það mikilvægasta fyrir okkur. Lærdómurinn er sá að ef þú ert ekki klár frá byrjun á móti Víkingi þá lendirðu í vandræðum, ef þú ætlar að bíða eftir einhverju þá lendirðu í vandræðum. Þeir eru með þannig leikmenn að þeir refsa þér, leyfa þér ekki að komast upp með það."


Endurheimtir Ástbjörn og Alexander - Arnór Ingvi klár
Hvernig er staðan á Arnóri Ingva og Ástbirni?

„Þeir verða báðir í leikmannahópi á morgun, þannig staðan á þeim er fín. Alexander spilaði tvo leiki með U19 landsliðinu og hann verður í hóp. Það er ágætis staða á hópnum, Guðmundur Andri er að verða klár, ekki alveg tilbúinn, Aron Þórður er frá og svo er Arnar Freyr byrjaður að skokka, en það er töluvert í hann. Að öðru leyti eru allir í toppstandi."

Liðið sem við hinir þurfum að elta
Þú talaðir áðan um ógnvænlega sterka Víkinga og strúktúr liðsins. Hvernig finnst þér þessi fótbolti?

„Ég var skammaður svo mikið í fyrra fyrir að tjá mig um leikstíl andstæðinganna að ég ætla að bara að segja að ég hef enga skoðun á leikstílnum."

„Það sem þeir eru að gera, það virkar. Myndi ég spila eins með Víkingsliðið? Nei, en þeir eru búnir að búa til gríðarlega öflugt lið og eiga allt hrós skilið fyrir það hvernig þeir eru búnir að byggja þetta upp á undanförnum árum og ég held að það sé það sem skipti mestu máli. Þeir eru liðið sem setur standardinn, þeir eru liðið sem við hinir þurfum að elta. Flest sem þeir hafa gert undanfarin ár hefur gengið upp, eins og gengið gefur til kynna eru þeir langsterkasta lið landsins. Það hlýtur að drífa önnur lið og þá sem eru að vinna hjá öðrum liði á hverjum degi að reyna komast á þann stað að geta náð þeim. Þeir eru forystusauðirnir í dag, það er ljóst. Með því er ég ekkert að reyna blása undir rassgatið á þeim eða búa til einhvern reykjarmökk í kringum þá, það er bara staðreynd."

„Það þýðir samt ekki að við mætum eitthvað hræddir eða litlir í leikinn á morgun, við berum virðingu fyrir því sem þeir hafa gert, en það þarf síðan að skilja virðinguna eftir í búningsklefanum eða heima hjá sér þegar það er flautað á."


Sölvi gert feikilega vel
Hefur komið þér á óvart hversu hratt og vel það gekk fyrir Sölva að komast inn í allt og hvernig honum hefur gengið?

„Nei, það hefur ekki komið mér neitt sérstaklega á óvart. Hann kemur inn í góðan strúktúr og kemur inn í vel settlað lið. Það er ekkert auðvelt að taka við liði sem hefur gengið vel og ná að viðhalda hungrinu og öllu því. En hann hefur gert þetta mjög vel. Maður veit aldrei hvernig mönnum gengur að stíga upp úr aðstoðarþjálfarastöðuna og inn í aðalþjálfarastöðuna, en hann hefur gert þetta feikilega vel, á allt hrós skilið. Virkilega vel gert hjá honum."

Bestu stuðningsmenn landsins en verða ekki í stúkunni
Það varð mjög fljótt uppselt á leikinn. Ertu með einhver skilaboð til stuðningsmanna KR?

„Stuðningsmenn KR eru þeir bestu á landinu og það verður mjög mikilvægt að þótt við séum í töluverði undirtölu í stúkunni á morgun - okkar stuðningsmenn verða reyndar til hliðar við stúkuna - þá verður mikilvægt að láta ekki fjölda áhorfenda telja heldur sigra þá þar. Ég hef engar áhyggjur af því, Þegar stuðningsmenn KR eru í gírnum, sem þeir eru yfirleitt, þá hafa þeir yfirleitt yfirhöndina í stúkunni og ég veit að það verður uppi á teningnum á morgun."
'Það er ekkert auðvelt að taka við liði sem hefur gengið vel og ná að viðhalda hungrinu og öllu því'

'Það er ekkert auðvelt að taka við liði sem hefur gengið vel og ná að viðhalda hungrinu og öllu því'

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

'Við þurfum að læra að lifa þar, ef við ætlum að lifa á þessum enda töflunnar þurfum við að geta mætt á okkar forsendum á móti efsta liðinu og haldið okkar'

'Við þurfum að læra að lifa þar, ef við ætlum að lifa á þessum enda töflunnar þurfum við að geta mætt á okkar forsendum á móti efsta liðinu og haldið okkar'

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

'Á móti liði sem er kaotískara; hvort sem það er í vörn eða sókn'

'Á móti liði sem er kaotískara; hvort sem það er í vörn eða sókn'

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Arnór Ingvi fór snemma út af gegn KA.

Arnór Ingvi fór snemma út af gegn KA.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stuðningsmenn KR styðja vel við sitt lið.

Stuðningsmenn KR styðja vel við sitt lið.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

'Þannig ég held að byrjunin á leiknum muni gefa svolítið tóninn fyrir það hvernig leikur þetta verður.'

'Þannig ég held að byrjunin á leiknum muni gefa svolítið tóninn fyrir það hvernig leikur þetta verður.'

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

'Lærdómurinn er sá að ef þú ert ekki klár frá byrjun á móti Víkingi þá lendirðu í vandræðum'

'Lærdómurinn er sá að ef þú ert ekki klár frá byrjun á móti Víkingi þá lendirðu í vandræðum'

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ástbjörn er líka klár í slaginn.

Ástbjörn er líka klár í slaginn.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fagnað með stuðningsmönnum.

Fagnað með stuðningsmönnum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Víkingur R.10+2828
2KR10+1525
3Fram10+1023
4Breiðablik9+715
5Valur10-315
6ÍA9-412
7Keflavík10-711
8Stjarnan10-410
9KA10-410
10ÍBV10-68
11Þór10-196
12FH10-135
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.