Lengjudeild karla
Afturelding
LL
2
0
0
Njarðvík
Lengjudeild karla
Fylkir
LL
0
2
2
HK
Lengjudeild karla
Leiknir R.
LL
2
1
1
ÍR
Lengjudeild karla
Grindavík
LL
0
0
0
Ægir
2. deild karla
Selfoss
LL
2
2
2
Haukar

Fylkir
0
2
HK

0-1
Dominik Radic
'41
Svavar Örn Þórðarson
'87
Dagur Ingi Axelsson
'91
0-2
Aron Kristófer Lárusson
'95
26.06.2026 - 19:15
tekk VÖLLURINN
Lengjudeild karla
Dómari: Arnar Ingi Ingvarsson
Áhorfendur: 401
Maður leiksins: Jóhann Þór Arnarsson (HK)
tekk VÖLLURINN
Lengjudeild karla
Dómari: Arnar Ingi Ingvarsson
Áhorfendur: 401
Maður leiksins: Jóhann Þór Arnarsson (HK)
Byrjunarlið:
1. Ólafur Kristófer Helgason (m)
3. Arnór Breki Ásþórsson
('79)
('79)
4. Hlynur Sævar Jónsson
5. Orri Sveinn Segatta (f)
6. Guðfinnur Þór Leósson
8. Dagur Traustason
('61)
('61)
9. Eyþór Aron Wöhler
('79)
('79)
17. Birkir Eyþórsson
20. Theodór Ingi Óskarsson
('61)
('61)
77. Bjarki Steinsen Arnarsson
('61)
('61)
92. Kári Sigfússon
- Meðalaldur 25 ár
Varamenn:
30. Sævar Snær Pálsson (m)
7. Máni Austmann Hilmarsson
('61)
('61)
14. Tumi Fannar Gunnarsson
('61)
('61)
18. Nikulás Val Gunnarsson
19. Arnar Númi Gíslason
('61)
('61)
23. Aron Snær Guðbjörnsson
('79)
('79)
70. Guðmundur Tyrfingsson
('79)
- Meðalaldur 23 ár
('79)
Liðsstjórn:
Heimir Guðjónsson (Þ)
Daði Ólafsson (Leikgr.)
Arnór Gauti Brynjólfsson (Styrktarþj.)
Björn Metúsalem Aðalsteinsson (MÞ)
Kristófer Sigurgeirsson (AÞ)
Ágúst Aron Gunnarsson (Liðsstj.)
Daníel Bjarki Stefánsson (Sjúkraþj.)
Gul spjöld:
Dagur Traustason ('27)
Birkir Eyþórsson ('81)
Rauð spjöld:
Leik lokið!
HK-ingar vinna hér í kvöld eftir vægast sagt áhugaverðan leik. Bragðdauft lengi vel en 2 rauð seint í leiknum gerði leikinn gríðarlega spennandi.
Skýrsla og viðtöl koma seinna í kvöld.
Skýrsla og viðtöl koma seinna í kvöld.
95. mín
MARK!
MARK!Aron Kristófer Lárusson (HK)
Gestirnir klára þetta endanlega!
Ólafur Kristófer var kominn upp á miðju til að taka hreinsanir hjá HK. HK-ingar vinna svo boltann við sinn teig, og Aron Kristófer var búinn að koma sér fyrir á miðlínu. Hann fær boltann og þarf bara að koma sér framhjá Ólafi, svo klárar hann af svona 40 metrum í opið markið.
93. mín
STÖNGIN!!!
Kári Sigfúss tekur spyrnuna, hún er slök en boltinn kemur strax aftur til hans. Þá tekur hann skotið, og boltinn skýst af varnarmanni og í stöngina!!
Geta Fylkismenn jafnað!?
Geta Fylkismenn jafnað!?
91. mín
Rautt spjald: Dagur Ingi Axelsson (HK)
Rautt spjald: Dagur Ingi Axelsson (HK)
HK-ingar tveimur færri!!
Hrottaleg tækling hjá Degi, sem var nýbúinn að fá gult en mér sýnist hann hafa gefið honum bara beint rautt fyrir þetta, og það réttilega.
90. mín
Kári Sigfúss tekur aukaspyrnu við vinstri hlið vítateigsins. Hann lyftir boltanum inn í teig en alltof nálægt Ólafi sem grípur boltann.
88. mín
Í vegginn!
Máni Austmann tekur spyrnuna fyrir Fylki. Hann tekur skotið en veggurinn rétt nær að taka þetta.
87. mín
Rautt spjald: Svavar Örn Þórðarson (HK)
Rautt spjald: Svavar Örn Þórðarson (HK)
HK verða manni færri síðustu mínúturnar
Fylkismenn að sleppa í gegn og Svavar er síðasti maður þegar hann tekur Guðmund Tyrfings niður.
Réttur dómur.
Réttur dómur.
86. mín
Heimamenn klúðra öðru færi
Birkir með virkilega góðan bolta inn í teig á Mána Austmann sem er í mjög góðu færi en hann bara hittir ekki boltann!!
83. mín
ÓTRÚLEGT KLÚÐUR Á BÁÐA BÓGA!!!
Ólafur Kristófer kemur út úr markinu til að taka lausan bolta en Arnar Númi þvælist fyrir honum þannig hvorugur Fylkismannana nær boltanum. Magnús Arnar fær þá bara autt mark til að leggja boltann í netið en hann sneiðir boltann framhjá!!
80. mín
Gult spjald: Ívar Örn Jónsson (HK)
Gult spjald: Ívar Örn Jónsson (HK)
Missir af sínum manni á kantinum og tekur hann niður.
78. mín
HK-ingar með horn sem þeir lyfta inn í teig en Ólafur Kristófer kýlir þennan í burtu.
75. mín
Enn og aftur hitta þeir ekki á rammann
Vel gert hjá Arnóri Breka sem sér gott hlaup Mána Austmanns í átt að teignum. Hann gefur á hann og Máni tekur skotið, hátt hátt yfir markið.
Þetta hefur verið sagan hjá Fylki í þessum leik.
Þetta hefur verið sagan hjá Fylki í þessum leik.
69. mín
Næstum hrikaleg mistök!
Ólafur fær sendingu til baka og hann ætlar svo að gefa á næsta mann, ég veit svo sem ekki hvern því þessi sending var svo langt frá samherja. HK-ingar komast inn í þetta en Fylkismenn gera svo vel í að loka á allt, og vinna boltann aftur.
67. mín
Ívar Örn tekur spyrnuna inn á miðjan teigin og Ólafur Kristófer er fyrst í smá veseni með að handsama boltann en nær því á endanum.
66. mín
Langur bolti á hægra kantinn hjá HK og Karl Ágúst eltir hann upp. Hann keyrir svo einn á teig og nær skotinu en í varnarmann og aftur fyrir. Horn fyrir gestina.
60. mín
Gult spjald: Magnús Arnar Pétursson (HK)
Gult spjald: Magnús Arnar Pétursson (HK)
Gerist ekki mikið augljósara gult. Rífur niður manninn að aftan sem er að fara í skyndisókn.
59. mín
Vel spilað hjá heimamönnum
Birkir Eyþórs keyrir upp með boltann og leggur boltann á Eyþór sem gefur hann strax til baka. Birkir verður þá í skotið en Ólafur ver vel í marki HK.
58. mín
Fylkismenn fá aukaspyrnu og Arnór Breki lyftir boltanum inn í teiginn. Guðfinnur rís hæst og nær skallanum en yfir markið.
54. mín
Góð pressa hjá Radic og hann er nálægt því að stela bara boltanum af Ólafi markmanni Fylkismanna. Ólafur endar á að ná að sparka boltanum í Radic og afturfyrir þannig hann fær markspyrnu.
50. mín
SLÁIN!
HK-ingar að leika sér að Fylkismönnum sem virðast ekki alveg vera mættir til leiks hér í seinni. Boltinn berst á Atla Þór vinstra megin sem á þrumuskot en skellur af slánni og afturfyrir.
45. mín
Hálfleikur
HK-ingar með forystuna í hálfleik en Fylkismenn voru betri aðilinn. Þeir fóru bara illa með sín færi og vörðust svo illa í uppsettu atriði. En heill hálfleikur eftir, og allt getur gerst.
45. mín
Aldrei rangur!
+3
Eyþór er bara sloppinn einn í gegn í skyndisókn, bara markmaðurinn eftir, og aðstoðardómarinn lyftir flagginu. Gjörsamlega galið að mér sýnist, en ég uppfæri eftir að ég sé endursýningu.
Eftir að hafa séð endursýningu er þetta nú mjög tæpt. Þeir virðast vera mjög samsíða, Eyþór og varnarmaðurinn. Í leik án VAR hefði ég viljað sjá sóknamanninn njóta vafans.
Eyþór er bara sloppinn einn í gegn í skyndisókn, bara markmaðurinn eftir, og aðstoðardómarinn lyftir flagginu. Gjörsamlega galið að mér sýnist, en ég uppfæri eftir að ég sé endursýningu.
Eftir að hafa séð endursýningu er þetta nú mjög tæpt. Þeir virðast vera mjög samsíða, Eyþór og varnarmaðurinn. Í leik án VAR hefði ég viljað sjá sóknamanninn njóta vafans.
45. mín
Stöngin!
Venjulegum leiktíma lokið í fyrri hjálfleik en HK-ingar með aukaspyrnu við hægra horn teigsins. Þeir lyfra boltanum á fjær þar sem Jóhann Þór fær endalaust pláss til að ráðast á boltann en hann skýtur í stöngina og út.
41. mín
MARK!
MARK!Dominik Radic (HK)
HK-ingar komast yfir gegn gangi leiksins!!
Ívar tekur langt innkast eiginlega hliðin á hornfánanum. Mér sýnist það hafa verið Arnþór Ari sem nær skallanum á nær þar sem hann fleytir boltanum á miðjan markmannsteiginn. Þar er enginn varnarmaður, en markahæsti maður deildarinnar er þar mættur og potar boltanum í opið markið.
Slakur varnarleikur hjá heimamönnum þarna.
Slakur varnarleikur hjá heimamönnum þarna.
33. mín
Skemmtileg útfærsla á innkasti
Lítúr út fyrir að Ívar Örn ætli að taka langt innkast fyrir HK en kastar honum á Atla sem leggur boltann fyrir. HK-ingar fleyta boltanum svo lengra inn í teig þar sem Arnþór Ari er í góðri stöðu. Hann nær bara ekki að taka boltann niður og endar á að skjóta framhjá.
32. mín
Slök hreinsun inn í teig hjá Fylkismönnum og boltinn dettur fyrir Atla Þór fyrir utan teig. Hann tekur skotið en í varnarmann og Ólafur Kristófer ekki í miklu veseni að grípa þennan bolta.
24. mín
Eyþór Wöhler fær boltann við vinstra horn teigsins þar sem hann lætur bara vaða. Fín tilraun en rétt framhjá.
Fylkismenn búnir að vera koma sér í góðar stöður en þeir eru lítið að hitta á markið. Það er þangað sem boltinn þarf að fara til að mörkin séu skoruð.
Fylkismenn búnir að vera koma sér í góðar stöður en þeir eru lítið að hitta á markið. Það er þangað sem boltinn þarf að fara til að mörkin séu skoruð.
22. mín
Fylkismenn í stuði!
Virkilega flott spil hjá Fylkismönnum. Kári kemur upp vinstri kantinn og leggur hann út á Eyþór, sem heldur áfram spilinu á Theodór. Hann er þá kominn í mjög fína stöðu á enda teigsins og tekur skotið en rétt framhjá!
18. mín
Ólafur Kristófer fer út í háan bolta og lendir í slæmu samstuði. Hann þarfnast smá aðhlynningu núna.
17. mín
SVO NÁLÆGT ÞVÍ AÐ SKORA STÓRFENGLEGT SJÁLFSMARK!!!
Ívar Örn er með boltann á eigin vallarhelmingi undir engri pressu. Hann ætlar að gefa boltann til baka á Ólaf markmann, en hittir hann alls ekki. Boltinn er bara að rúlla í markið en Ólafur kemur á harðasta spretti sem hann getur tekið og rétt nær að tækla boltann bókstaflega af línunni.
Einhverjir í stúkunni sem töldu sig hafa séð þennan bolta inni.
Einhverjir í stúkunni sem töldu sig hafa séð þennan bolta inni.
13. mín
Fylkismenn hættulegir!
Theodór fær boltann fyrir utan teig hægra megin. Hann lætur bara vaða, fast skot sem á viðkomu í varnarmanni og fer rétt framhjá!
12. mín
Fylkismenn í góðri stöðu en léleg sending inn á Theodór sem hefði verið kominn í dauða færi klúðrar þessu.
10. mín
Þá er það Arnór Breki með slaka hornspyrnu núna of nálægt markmanni og Ólafur hrifsar þennan bolta úr loftinu.
9. mín
Slök spyrna hjá Kára fer yfir alla en Guðfinnur nær honum úti við hinn hornfána og vinnur annað horn.
3. mín
Fyrsta skotið!
Flott hlaup hjá Bjarka Steinsen upp hægri kantinn. Hann flæðir svo meira yfir á miðjan völl, þar sem hann tekur skotið rétt fyrir utan teig en þetta fer framhjá.
Fyrir leik
Hinn mikli Fylkismaður Einar Ásgeirsson heiðraður hér fyrir leik með standandi lófaklappi. Hann féll frá fyrir skömmu.
Fyrir leik
Byrjunarliðin
Þá hafa byrjunarliðin verið birt en Fylkismenn gera þrjár breytingar á sínu liði frá 5-2 sigri þeirra á Gróttu. Orri Sveinn Segatta, Dagur Traustason og Eyþór Aron Wöhler koma allir inn í liðið. Máni Austmann Hilmarsson, Tumi Fannar Gunnarsson og Guðmundur Tyrfingsson þurfa að sætta sig við sæti á bekknum.
HK-ingar gera aðeins eina breytingu á sínu liði. Það er Karl Ágúst Karlsson sem kemur inn í liðið á kostnað Tuma Þorvarssonar, en hann er ekki í hóp.


Fyrir leik
Dómarinn
Arnar Ingi Ingvarsson verður með flautuna í þessum leik en honum til aðstoðar verða Guðni Freyr Ingvason og Mikael Ívan Axelsson. Dómaraeftirlitsmaður er Jóhann Gunnarsson.

Fyrir leik
Spámaðurinn
Við fengum Alexander Rafn Pálmason, sem er á leið til Nordsjælland í Danmörku, til að spá í leikina.
Fylkir 2 - 2 HK (19:15 í kvöld)
Þetta verður góður leikur HK kemst 2-0 yfir en Fylkir hendir í comeback og nær jafnteflinu.
Fylkir 2 - 2 HK (19:15 í kvöld)
Þetta verður góður leikur HK kemst 2-0 yfir en Fylkir hendir í comeback og nær jafnteflinu.
Fyrir leik
HK ekki að ná að tengja sigra
HK-ingar hafa í raun skipst á að vinna og tapa allt tímabilið hingað til. Þeir náðu síðast að tengja saman sigra í byrjun móts þegar þeir unnu fyrstu tvo leiki sína. Þessi óstöðugleiki skilar þeim þó í 5. sæti deildarinnar eins og er en eru sex stigum frá topp sætinu. Eins og kom fram hér fyrir neðan er Dominik Radic einn af tveimur sem sitja á toppi markaskorara listans með sex mörk.

Fyrir leik
Fylkismenn á góðu róli
Fylkir hafa unnið tvö leiki í röð gegn Gróttu og Grindavík, og sitja eftir það í 2. sæti deildarinnar aðeins einu stigi á eftir topp liði Þróttar. Guðmundur Tyrfingsson er einn af tveimur mönnum sem hafa skorað mest í deildinni hingað til eða sex mörk en hann deilir toppsætinu með HK-ingnum Dominik Radic.

Byrjunarlið:
1. Ólafur Örn Ásgeirsson (m)
5. Þorsteinn Aron Antonsson
8. Arnþór Ari Atlason (f)
('79)
('79)
9. Jóhann Þór Arnarsson
16. Svavar Örn Þórðarson
17. Dominik Radic
19. Atli Þór Gunnarsson
('79)
('79)
21. Ívar Örn Jónsson
22. Haukur Leifur Eiríksson
24. Magnús Arnar Pétursson
('88)
('88)
29. Karl Ágúst Karlsson
('72)
- Meðalaldur 24 ár
('72)
Varamenn:
25. Andri Már Steinsson (m)
2. Sigurður Gunnar Jónsson
3. Ívar Orri Gissurarson
('79)
('79)
4. Aron Kristófer Lárusson
('88)
('88)
7. Dagur Ingi Axelsson
('72)
('72)
10. Atli Hrafn Andrason
('79)
('79)
45. Alexander Örn Guðmundsson
- Meðalaldur 22 ár
Liðsstjórn:
Gunnar Heiðar Þorvaldsson (Þ)
Gunnþór Hermannsson (Liðsstj.)
Þjóðólfur Gunnarsson (Liðsstj.)
Sigurður Már Birnisson (Styrktarþj.)
Arnar Freyr Smárason (AÞ)
Ingvar Örn Kristinsson Valberg (Sjúkraþj.)
Sandor Matus (MÞ)
Gul spjöld:
Magnús Arnar Pétursson ('60)
Ívar Örn Jónsson ('80)
Dagur Ingi Axelsson ('89)
Rauð spjöld:
Svavar Örn Þórðarson ('87)
Dagur Ingi Axelsson ('91)

