Lengjudeild karla
Afturelding
LL
2
0
0
Njarðvík
Lengjudeild karla
Fylkir
LL
0
2
2
HK
Lengjudeild karla
Leiknir R.
LL
2
1
1
ÍR
Lengjudeild karla
Grindavík
LL
0
0
0
Ægir
2. deild karla
Selfoss
LL
2
2
2
Haukar

Grindavík
0
0
Ægir

26.06.2026 - 19:15
Stakkavíkurvöllur
Lengjudeild karla
Dómari: Stefán Ragnar Guðlaugsson
Maður leiksins: Arnór Gauti Úlfarsson
Stakkavíkurvöllur
Lengjudeild karla
Dómari: Stefán Ragnar Guðlaugsson
Maður leiksins: Arnór Gauti Úlfarsson
Byrjunarlið:
31. Hjörvar Daði Arnarsson (m)
4. Damir Muminovic (f)
5. Arnór Gauti Úlfarsson
7. Gunnleifur Orri Gunnleifsson
9. Rúnar Ingi Eysteinsson
10. Ingi Þór Sigurðsson
14. Haraldur Björgvin Eysteinsson
19. Rafael Victor
('89)
('89)
22. Lárus Orri Ólafsson
('66)
('66)
26. Eysteinn Rúnarsson
27. Heiðar Snær Ragnarsson
- Meðalaldur 23 ár
Varamenn:
1. Robert Blakala (m)
6. Viktor Guðberg Hauksson
8. Stefán Jón Friðriksson
('66)
('66)
11. Valur Þór Hákonarson
('89)
('89)
17. Andri Karl Júlíusson Hammer
20. Mikael Máni Þorfinnsson
29. Lúkas Nói Tómasson
- Meðalaldur 22 ár
Liðsstjórn:
Ray Anthony Jónsson (Þ)
Marko Valdimar Stefánsson (AÞ)
Aron Benediktsson (Sjúkraþj.)
Helgi Leó Leifsson (Liðsstj.)
Arnar Eyfjörð Jóhannsson (Leikmaður utan hóps)
Gul spjöld:
Gunnleifur Orri Gunnleifsson ('67)
Rauð spjöld:
Leik lokið!
0-0
Hvorugt lið nær að skora í dag og eitt stig á haus niðurstaðan. Grindvíkingar geta verið svekktari með úrslitin.
Skýrsla og viðtöl væntanleg síðar í kvöld. Ég þakka fyrir mig.
Skýrsla og viðtöl væntanleg síðar í kvöld. Ég þakka fyrir mig.
93. mín
Grindvíkingar fá aukaspyrnu á álitlegum stað
Síðasti sénsinn á marki í þennan leik.
90. mín
Gunnleifur í frábæru færi
Grindvíkingar keyra hratt upp völlinn og eru þrír á þrjá og ná að koma Gulla í fínt færi en hann skýtur viðstöðulaust en boltinn hátt yfir markið.
87. mín
Darraðadans inni á teig Grindavíkur!
Ægismenn að ógna marki Grindavíkur og vörnin var í bölvuðu brasi með að hreinsa boltanum burt en Jordan Adeyemo nær ekki skoti á markið úr fínni stöðu.
80. mín
Fyrsta rangstaða leiksins dæmd eftir áttatíu mínútna leik. Menn hafa verið agaðir í hlaupum inn fyrir hér í kvöld greinilega.
79. mín
Fyrsta skot Ægismanna í langan tíma
Markús Máni kemst í þröngt færi og skýtur töluvert framhjá markinu. Ægismenn hafa lítið ógnað í þessum leik.
76. mín
Rafael Victor í enn einni góðri stöðunni en missir boltann aðeins of langt frá sér en fær þó horn.
74. mín
Rúnar Ingi sker inn á völlinn og nær föstu skoti á nærstöngina sem Ómar ver í horn.
Grindvíkingar hafa verið að hóta því að skora fyrsta mark leiksins.
Grindvíkingar hafa verið að hóta því að skora fyrsta mark leiksins.
72. mín
Arnór Gauti af löngu færi!
Lætur bara vaða langt fyrir utan teiginn og Ómar þarf að hafa sig allan við að verja þetta sem hann gerir þó vel.
71. mín
Grindavík í leit að marki
Tvær góðar stöður með skömmu millibili. Fyrst góð sending frá Stefáni inn á nærsvæðið sem Rafael er nálægt því að komast í en truflar Ómar í markinu. Stuttu síðar fékk Gunnleifur boltann við teig Ægis en skot hans fór yfir markið.
67. mín
Gult spjald: Gunnleifur Orri Gunnleifsson (Grindavík)
Gult spjald: Gunnleifur Orri Gunnleifsson (Grindavík)
Rífur Markús Mána niður og fær réttilega gult spjald. Sá fyrsti sem fer í svörtu bókina hér í kvöld.
65. mín
Rólegar fyrstu 20 mínúturnar í seinni hálfleik. Damir var hins vegar rétt í þessu að reyna skot beint úr aukaspyrnu fyrir aftan miðju. Gekk ekki hjá kappanum.
60. mín
Inn:Markús Máni Jónsson (Ægir)
Út:Bjarki Rúnar Jónínuson (Ægir)
Fyrsta skipting leiksins kemur eftir klukkutíma leik.
59. mín
Ómar Castaldo í brasi
Nær ekki að grípa fyrirgjöf sem er beint á hann og boltinn hrekkur til Rúnars sem nær þó ekki skoti á markið.
55. mín
Harley Willard í færi!
Ægismenn keyra hratt upp völlinn eftir aukaspyrnu frá Grindavík og ná að koma boltanum á teiginn þar sem Harley Willard er í frábæru færi en Heiðar Snær nær að henda sér fyrir skotið á hárréttum tíma.
50. mín
Rafael með enn eina marktilraunina
Rafael kemst í fína stöðu hægra megin rétt fyrir utan teig Ægis og lætur vaða en skotið fer yfir markið.
Sjötta marktilraun hans í þessum leik.
Sjötta marktilraun hans í þessum leik.
47. mín
Hér er hægt að sjá klúðrið ótrúlega og ég hvet lesendur að hlusta á lýsinguna
Ótrúlegt klúður í Lengjudeildinni #fotboltinet pic.twitter.com/81g9UMekvd
— Sæbjörn Steinke (@saebjornth) June 26, 2026
43. mín
Menn enn að jafna sig eftir þetta klúður
Guðjón Þorsteinsson, lýsandi Livey, er enn að tala um færaklúrið ótrúlega enda var þetta magnað að sjá.
37. mín
ÉG HEF ALDREI SÉÐ ANNAÐ EINS!!!!!!
Gunnleifur á frábæran sprett upp miðjan völlinn eftir góðan undirbúning frá Rafael Victor og er kominn einn á móti Ómari en er með Rúnar við hliðina á sér. Gunnleifur tekur rétta ákvörðun og rennir boltanum á Rúnar sem er með autt markið fyrir framan sig og nær á einhvern óskiljanlegan hátt að setja boltann ekki inn í netið!
Hann setur boltann framhjá markinu og ég ætla að slengja því fram að þetta sé klúður ársins.
Ótrúleg atburðarás og enn markalaust.
Hann setur boltann framhjá markinu og ég ætla að slengja því fram að þetta sé klúður ársins.
Ótrúleg atburðarás og enn markalaust.
36. mín
Góð fyrirgjöf af vinstri kantinum hjá Grindavík sem Rafael Victor er mjög nálægt því að pota í markið en Ómar handsamar knöttinn.
30. mín
Markalaust eftir hálftíma leik
Höfum samt sem áður fengið nokkuð fínar fyrstu 30 mínútur. Bæði lið hafa fengið ágætis færi en engin dauðafæri þó. Grindvíkingar hafa verið með yfirhöndina að mestu leyti.
24. mín
Enn hótar Rafael Victor marki!
Vel spilað hjá Grindvíkingum sem koma boltanum á fjærsvæðið á Rúnar Inga sem gefur á Rafael. Hann snýr skemmtilega og nær skoti sem fer þó beint á Ómar í markinu.
Vel spilað hjá Grindvíkingum sem koma boltanum á fjærsvæðið á Rúnar Inga sem gefur á Rafael. Hann snýr skemmtilega og nær skoti sem fer þó beint á Ómar í markinu.
22. mín
Ægismenn keyra strax hratt upp völlinn og fá gott skotfæri sem endar með því að Ægir fær horn.
21. mín
Rafael Victor!
Með góða hreyfingu á vinstri vængnum og nær föstu skoti á fjærstöngina sem fer rétt framhjá.
18. mín
Ægismenn fá sína fyrstu hornspyrnu. Boltanum hreinsað aftur fyrir og önnur hornspyrna sem þeir fá.
13. mín
Sigurður Óli fer skemmtilega fram hjá Haraldi og er kominn í fínt færi en hittir boltann hrikalega illa og boltinn fer langt frá marki. Fyrsta skottilraun gestanna.
10. mín
Vel spilað hjá Grindvíkingum upp hægri kantinn og Heiðar nær góðri fyrirgjöf á fjærsvæðið þar sem Rúnar hittir boltann illa og skallar framhjá markinu.
8. mín
Grindvíkingar hafa haldið nánast allan tímann í boltann þessar upphafsmínútur og Ægismenn virðast líða bara ágætlega vel með það.
3. mín
Rafael Victor!
Fyrsta færi leiksins kemur úr hornspyrnunni. Rafael nær skalla sem fer beint á markið.
3. mín
Grindvíkingar með skemmtilega útfærða aukaspyrnu og fá fyrstu hornspyrnu leiksins.
2. mín
Grindvíkingar leika í varatreyjum sínum þrátt fyrir að vera á heimavelli og Ægismenn í sínum gulu heimatreyjum.
Fyrir leik
Vallaraðstæður suður með sjó
Grasið er vel vökvað og stúkan fámenn en fólkið í stuði. Það er skýjað og létt rigning inn á milli.
Fyrir leik
Byrjunarliðin komin inn
Ray Anthony gerir tvær breytingar á liði Grindavíkur frá 2-2 jafnteflinu gegn HK í síðustu umferð. Gunnleifur Orri og Rafael Victor koma inn í liðið en Sindri Þór og Mikael Máni fara út. Sindri er ekki í hóp eftir að hafa meiðst gegn HK en Mikael Máni er á bekknum.
Nenad gerir eina breytingu frá 1-3 tapinu gegn Þrótti í síðustu umferð en Nikola Stojanovic kemur inn fyrir Atla Rafn Guðbjartsson.
Nenad gerir eina breytingu frá 1-3 tapinu gegn Þrótti í síðustu umferð en Nikola Stojanovic kemur inn fyrir Atla Rafn Guðbjartsson.
Fyrir leik
Ægir
Nenad hefur sótt tvo sigra og eitt jafntefli með Ægisliðinu í fyrstu tíu leikjum mótsins en liðið er eins og er í 11. sæti deildarinnar og ljóst er að þessi leikur sé gríðarlega mikilvægur fyrir bæði lið. Liðið hefur tapað þremur leikjum í röð eftir að hafa unnið tvö í röð þar á undan.

Fyrir leik
Grindavík
Grindavík hefur aðeins sótt einn sigur í fyrstu níu leikjum sínum í deildinni og eru sem stendur með átta stig í 10. sæti deildarinnar. Grindavík er það lið sem hefur séð fæst mörk í leikjum sínum en aðeins hafa verið skoruð 21 mark í þeirra leikjum. Í síðustu umferð náði liðið þó í 2-2 jafntefli gegn HK í Kórnum.

Fyrir leik
Dómarateymi kvöldsins
Stefán Ragnar Guðlaugsson er aðaldómari leiksins og honum til aðstoðar verða þeir Þráinn Jón Elmarsson og Breki Sigurðsson. Dómaraeftirlitsmaður er Þórður Georg Lárusson.

Byrjunarlið:
1. Ómar Castaldo Einarsson (m)
9. Jordan Adeyemo
11. Stefan Dabetic (f)
15. Sigurður Óli Guðjónsson
19. Nikola Kristinn Stojanovic
22. Harley Willard
24. Paul Leonard Skoczylas JR
30. Benedikt Darri Gunnarsson
45. Dajan Ponjevic
50. Baptiste Gateau
80. Bjarki Rúnar Jónínuson
('60)
- Meðalaldur 27 ár
('60)
Varamenn:
12. Gabriel Michael Thull (m)
7. Kristinn Ásgeir Þorbergsson
14. Benedikt Þór Viðarsson
16. Markús Máni Jónsson
('60)
('60)
21. Einar Breki Sverrisson
27. Marko Panic
28. Hilmar Óli Viggósson
- Meðalaldur 21 ár
Liðsstjórn:
Nenad Zivanovic (Þ)
Arnar Logi Sveinsson (AÞ)
Dimitrije Cokic (Liðsstj.)
Guðbjartur Örn Einarsson (Forráðam.)
Ivaylo Yanachkov (MÞ)
Gul spjöld:
Rauð spjöld:

