Lengjudeild karla
ÍR
LL
0
1
1
Afturelding
Lengjudeild karla
Grótta
LL
2
1
1
HK
Lengjudeild karla
Ægir
LL
2
4
4
Fylkir
Lengjudeild karla
Njarðvík
LL
1
0
0
Þróttur R.
Besta karla
FH
LL
2
2
2
Stjarnan

FH
2
2
Stjarnan

Adolf Daði Birgisson
'10
1-0
1-1
Sindri Þór Ingimarsson
'14
1-2
Örvar Eggertsson
'36
Ísak Óli Ólafsson
'42
2-2
03.07.2026 - 19:15
Kaplakrikavöllur
Besta karla
Dómari: Sigurður Hjörtur Þrastarson
Áhorfendur: 287
Kaplakrikavöllur
Besta karla
Dómari: Sigurður Hjörtur Þrastarson
Áhorfendur: 287
Byrjunarlið:
1. Jökull Andrésson (m)
6. Grétar Snær Gunnarsson
7. Kjartan Kári Halldórsson
10. Sverrir Páll Hjaltested
('76)
('76)
14. Adolf Daði Birgisson
('76)
('76)
19. Aron Jónsson
22. Ísak Óli Ólafsson (f)
('86)
('86)
23. Tómas Orri Róbertsson
33. Úlfur Ágúst Björnsson
38. Arngrímur Bjartur Guðmundsson
40. Róbert Hugi Sævarsson
('76)
- Meðalaldur 23 ár
('76)
Varamenn:
24. Daði Freyr Arnarsson (m)
2. Birkir Valur Jónsson
('86)
('86)
3. Kristján Snær Frostason
31. Aron Daði Svavarsson
32. Gils Gíslason
('76)
('76)
35. Allan Purisevic
39. Benjamín Bæring Þórsson
66. Viktor Nói Vidarsson
('76)
('76)
90. Arnór Borg Guðjohnsen
('76)
- Meðalaldur 21 ár
('76)
Liðsstjórn:
Jóhannes Karl Guðjónsson (Þ)
Arnar Sigþórsson (Leikgr.)
Benjamin Gordon Mackenzie (Styrktarþj.)
Númi Már Atlason (Sjúkraþj.)
Kjartan Sturluson (MÞ)
Guðmundur Jón Viggósson (Liðsstj.)
Árni Freyr Guðnason (AÞ)
Gul spjöld:
Rauð spjöld:
Leik lokið!
Jafntefli loka niðurstaðan í þessum bráðskemmtilega leik. Ótrúlegt að það kom ekki sigurmark í þennan leik.
Viðtöl og skýrsla væntanleg seinna í kvöld.
Viðtöl og skýrsla væntanleg seinna í kvöld.
93. mín
Gullið tækifæri!
Stjarnan í mjög góðri sókn og leikurinn alveg að verða búinn. Daníel Finns fær boltann rétt fyrir utan teig og hann með pláss til að skjóta sem hann gerir en rétt framhjá.
90. mín
Rétt yfir!
Daníel Finns með hornspyrnuna á nær þar sem Benedikt nær skallanum en hann flýgur yfir markið.
89. mín
Frábærlega varið!
Alex Þór gerir vel á miðjunni, vinnur boltann og kemur honum út á Daníel Finns. Daníel tekur fast skot sem á viðkomu í varnarmanni og er á leiðinni inn á nær en Jökull ver frábærlega!
85. mín
Dauðafæri Kjartan Kári!
FH-ingar snúa vörn í sókn og góð skyndisókn hjá þeim. Allt í einu er Kjartan kominn einn gegn Árna sem kemur vel út á móti Kjartani og Árni ver skotið frá honum!
85. mín
Frábær langur bolti fram hjá Sindra á Emil. Emil leggur hann svo út á Jóhann sem tekur skot en það er slappt og beint á Jökul.
79. mín
HVERNIG FÓR HANN EKKI INN!!
Horn hjá Stjörnunni og boltinn berst á fjær og er mögulega bara að fara inn beint úr horninu. Nema hvað að boltinn fer í Grétar sem virtist ekkert vita af honum og í slánna og FH-ingar ná að hreinsa.
Stjörnumenn koma boltanum bara strax aftur inn í teig og Alex nær góðum skalla á markið, en Jökull með frábæra vörslu!!
Stjörnumenn koma boltanum bara strax aftur inn í teig og Alex nær góðum skalla á markið, en Jökull með frábæra vörslu!!
78. mín
Langur bolti út á vinstri kant þar sem Benedikt fær boltann. Hann tekur nokkur skref inn á völlinn og tekur svo mjög fínt skot en Jökull ver vel frá honum.
74. mín
Stjarnan fær horn. Leikurinn að spilast eingöngu á vallarhelmingi FH síðustu mínútur.
Hornið er lélegt. Boltinn á nær og Sindri reynir að framlengja en setur hann bara framhjá.
Hornið er lélegt. Boltinn á nær og Sindri reynir að framlengja en setur hann bara framhjá.
66. mín
Emil Atla í dauðafæri!!
Benedikt með glæsilega laumusendingu inn fyrir á Emil sem er kominn einn gegn Jökli. Emil tekur skotið og Jökull ver hann alveg greinilega mjög vel, Sigurður dæmir samt markspyrnu og gestirnir ekki hrifnir.
64. mín
FH-ingar í stórhættulegri sókn!
Arngrímur er með boltann á vinstri kantinum og hann kemur með stutta sendingu á Úlf sem er inn í teig. Úlfur reynir fyrirgjöfina sem er að fara detta fyrir galopinn mann á fjær, en þá kemur Örvar Eggerts askvaðandi og skutlar sér á eftir þessum bolta og hreinsar í horn.
63. mín
Hvernig varð þetta ekki mark!
Fyrirgjöf inn á teig FH og mér sýnist það hafa verið Örvar sem fær boltann á fjær. Hann skallar boltann aftur fyrir beint inn í þvögu sem er bara nokkrum metrum frá marklínu. Þar nær Emil að koma kollinum í boltann en skallinn hans beint á Jökul sem stóð fyrir framan hann.
61. mín
Ekki langt frá því að setja hann í eigið net
Stjörnumenn halda áfram að spila vel í kringum teig FH-inga, Benedikt kemur með fyrirgjöfina og Grétar nær að slæma fætinum í boltann en hreinsunin hans fer bara rétt yfir eigið mark.
57. mín
Stjörnumenn ná að spila sig vel í gegnum vörn FH-inga og Birnir í góðu færi en þröngu. Hann með skotið en beint í Jökul.
53. mín
Rólegt yfir þessu til að byrja með. Örvar Eggerts með fyrirgjöf hérna sem fór svo rosalega hátt yfir markið.
47. mín
Stjarnan með hornspyrnu strax í byrjun seinni hálfleiks, en FH-ingar komast fyrir boltann og úr verður önnur hornspyrna.
45. mín
Hálfleikur
Staðan jöfn í hálfleik í bráðskemmtilegum leik. Liðin skiptast á að deila út höggum og vonandi heldur það bara áfram í seinni!
42. mín
MARK!
MARK!Ísak Óli Ólafsson (FH)
Stoðsending: Kjartan Kári Halldórsson
Stoðsending: Kjartan Kári Halldórsson
Það er alltaf stutt milli marka!!
Fyrst var það Gustav Kjeldsen sem kom með skelfilega hreinsun beint í Tómas Orra, og Tómas var þá sloppinn einn gegn markmanni. Hann tekur skotið vissulega úr þröngu færi sem Árni ver mjög vel út í horn.
Kjartan Kári tekur þá hornspyrnuna inn á teiginn og þar rís Ísak hæst og stangar boltanum í netið! Allt aftur orðið jafnt!
Kjartan Kári tekur þá hornspyrnuna inn á teiginn og þar rís Ísak hæst og stangar boltanum í netið! Allt aftur orðið jafnt!





36. mín
MARK!
MARK!Örvar Eggertsson (Stjarnan)
Það er bakfallspyrna til að komast yfir!
Birnir Snær reynir að lyfta boltanum inn á teig en Róbert Hugi nær hausnum í boltann en skallar hann bara beint upp. Boltinn kemur þá á Örvar sem tekur boltann á kassann, og í eiginlega sömu hreyfingu klippir boltann aftur fyrir sig upp í þaknetið!
Alvöru mark frá uppalda FH-ingnum (í frjálsum)
Alvöru mark frá uppalda FH-ingnum (í frjálsum)



34. mín
Garðbæingar fá horn, Birnir Snær tekur þessa spyrnu. Tekur hornið stutt á Benedikt og fær hann strax aftur. Ætlar svo að keyra inn á teig en missir boltann útaf.
30. mín
Vel varið!
Benedikt reynir skotið fyrir utan teig, það er ekkert sérlega fast en það er hnitmiðað. Jökull þarf að teygja sig vel til að ná þessum.
28. mín
Það er skemmtileg harka í leiknum og greinilegt að Sigurður ætlar að láta leikinn fljóta. Á svona 30 sekúndna kafla falla við fjórir mismunandi menn en það er ekki fyrr en í fjórða skiptið sem Sigurður flautar.
26. mín
FH með hornspyrnu og Kjartan með boltan á fjær. Þar mætir Tómas og reynir skotið úr erfiðri stöðu en hátt yfir.
23. mín
Birnir Snær fær boltann úti vinstra megin á hættulegum stað, yfirleitt er það stórhættulegt fyrir andstæðinginn en Birnir fer illa með þetta og skýtur bara beint í fyrsta varnarmann.
20. mín
Ekki svo gott, Kjartan með spyrnuna á fjær þar sem Adolf nær skallanum en hann er laus og Örvar Eggerts hreinsar frá.
20. mín
Þá fær FH horn, ætli sami hlutur gerist aftur og FH skori fljótt eftir jöfnunarmakið.
19. mín
Leikurinn eiginlega alveg búinn að snúast við, var nýbúinn að skrifa um sterka byrjun FH-inga en þeir virðast hálf slegnir eftir að hafa fengið jöfnunarmark svona fljótt á sig.
14. mín
MARK!
MARK!Sindri Þór Ingimarsson (Stjarnan)
Stoðsending: Birnir Snær Ingason
Stoðsending: Birnir Snær Ingason
Ekki lengi að svara!!
Stjarnan í eiginlega sinni fyrstu sókn vinna sér inn hornspyrnu. Þar er það Birnir sem kemur með flottan bolta inn í teig á Sindra sem er með allt of mikið pláss í kringum sig og hann stangar þetta inn.




13. mín
FH-ingar byrjað mun betur
Það er alvöru kraftur í heimamönnum, og kannski ekki alveg hægt að segja að þetta mark lág í loftinu, en eina liðið sem hefur verið líklegt þessar fyrstu mínútu hafa verið FH. Allt annað að sjá til þeirra en fyrr á tímabilinu.
10. mín
MARK!
MARK!Adolf Daði Birgisson (FH)
Stoðsending: Kjartan Kári Halldórsson
Stoðsending: Kjartan Kári Halldórsson
Frábær byrjun hjá heimamönnum!!
Tómas Orri neglir boltanum upp í loft en hann lendir svo beint hjá Kjartani Kára sem er með ruglaða móttöku til að drepa boltann alveg fyrir framan sig. Kjartan kemur svo með frábæran bolta inn í teig þar sem Adolf kemur í hlaupið bakvið varnarmanninn og stingur sér fram fyrir hann þar sem hann skallar boltann í netið!
Adolf að stinga ríting í bakið á sínu uppeldisfélagi.
Adolf að stinga ríting í bakið á sínu uppeldisfélagi.




8. mín
Róbert Hugi reynir skotið fyrir utan teig, en þéttur múr Stjörnumanna inn í teig er fyrir.
8. mín
Reynir skotið frá miðju
Benedikt með boltann á miðjum vellinum, hann tekur nokkur skref fram á við þegar hann sér að Jökull stendur aðeins framarlega. Hann reynir skotið úr miðjuhringnum en hátt yfir markið.
7. mín
Uppstilling liðanna
Þetta er eitthvað í þessa áttina.
FH 4-2-3-1
Jökull
Arngrímur - Ísak - Grétar - Aron
Tómas - Róbert
Adolf - Sverrir - Kjartan
Úlfur
Stjarnan 4-3-3
Árni
Heiðar - Sindri - Kjeldsen - Örvar Logi
Guðmundur - Jóhann - Benedikt
Örvar - Emil - Birnir
FH 4-2-3-1
Jökull
Arngrímur - Ísak - Grétar - Aron
Tómas - Róbert
Adolf - Sverrir - Kjartan
Úlfur
Stjarnan 4-3-3
Árni
Heiðar - Sindri - Kjeldsen - Örvar Logi
Guðmundur - Jóhann - Benedikt
Örvar - Emil - Birnir
6. mín
Kjartan í færi!
FH-ingar vinna boltann ofarlega á vellinum og Sverrir er með hann úti hægra megin. Hann kemur með fastan bolta á Kjartan sem lúrir rétt fyrir utan teiginn. Kjartan tekur skotið en Árni sér við honum þarna.
1. mín
Kjartan Kári með hlaup sem maður hefur séð svo oft hjá honum. Boltinn kemur til hans á kantinn og hann færir sig inn á völlinn og tekur skotið en þetta var laust og beint í varnarmann.
Fyrir leik
Byrjunarliðin
Jóhannes Karl Guðjónsson þjálfari FH gerir tvær breytingar frá síðustu umferð þegar þeir gerðu 1-1 jafntefli við ÍBV. Sverri Páll Hjaltested og hinn 16 ára gamli Róbert Hugi Sævarsson koma inn í byrjunarliðið. Baldur Kári Helgason og Kristján Flóki Finnbogason eru ekki í hóp, en Baldur er í leikbanni vegna uppsafnaðra gulra spjalda.
Jón Þór Hauksson þjálfari Stjörnunnar gerir eina breytingu á sínu liði sem vann KA 3-1 í síðustu umferð. Það er Heiðar Ægisson sem kemur inn í liðið á kostnað Damil Dankerlui sem er ekki í hóp.
Jón Þór Hauksson þjálfari Stjörnunnar gerir eina breytingu á sínu liði sem vann KA 3-1 í síðustu umferð. Það er Heiðar Ægisson sem kemur inn í liðið á kostnað Damil Dankerlui sem er ekki í hóp.
Fyrir leik
Dómarinn
Sigurður Hjörtur Þrastarson verður með flautuna í þessum leik en honum til aðstoðar verða Patrik Freyr Guðmundsson og Eðvarð Þór Eðvarðsson. Fjórði dómari er Arnar Ingi Ingvarsson og eftirlitsmaður KSÍ er Hjalti Þór Halldórsson.

Fyrir leik
Spáin
Við fengum Helgu Rut Einarsdóttur, fyrirliða U19 landsliðs kvenna, til að spá í spilin fyrir umferðina. Helga er þessa stundina í Bosníu á lokakeppni Evrópumótsins með U19.
FH 1 - 3 Stjarnan
Stjarnan nær í mikilvægan sigur á útivelli. Tómas Orri skorar fyrir FH og Emil Atla setur tvö.
FH 1 - 3 Stjarnan
Stjarnan nær í mikilvægan sigur á útivelli. Tómas Orri skorar fyrir FH og Emil Atla setur tvö.
Fyrir leik
Nýr þjálfari kominn með fyrsta sigurinn
Jökull Elísabetarson var látinn fara sem þjálfari Stjörnunnar um miðjan júní og Jón Þór Hauksson tók við liðinu. Jón náði svo í sinn fyrsta sigur í síðustu umferð þegar Garðbæingar unnu KA 3-1. Stjarnan er þá í 8. sæti deildarinnar með 14 stig, og spurning hvort þeir geta haldið áfram á sigurbraut gegn neðsta liði deildarinnar.

Fyrir leik
Ósigraðir í síðustu þrem
Tímabilið hjá FH hefur gengið mjög illa. Þeir eru í neðsta sæti með sjö stig. Fimm af þessum stigum hafa hins vegar komið í síðustu þremur leikjum, þar sem þeir hafa gert tvö jafntefli og unnið einn leik. Það er því spurning hvort að Hafnfirðingar seú að snúa gengi sínu við undir Jóa Kalla.

Byrjunarlið:
12. Árni Snær Ólafsson (m)
2. Heiðar Ægisson
('60)
('60)
3. Gustav Kjeldsen
6. Sindri Þór Ingimarsson
7. Örvar Eggertsson
('69)
('69)
8. Jóhann Árni Gunnarsson
('87)
('87)
11. Birnir Snær Ingason
('69)
('69)
18. Guðmundur Baldvin Nökkvason
22. Emil Atlason (f)
23. Benedikt V. Warén
32. Örvar Logi Örvarsson
- Meðalaldur 27 ár
Varamenn:
1. Darri Bergmann Gylfason (m)
4. Þorri Mar Þórisson
('60)
('60)
5. Guðmundur Kristjánsson
10. Daníel Finns Matthíasson
('69)
('69)
17. Haukur Örn Brink
29. Alex Þór Hauksson
('69)
('69)
30. Markús Andri Daníelsson Martin
33. Arnar Breki Björnsson
99. Andri Rúnar Bjarnason
('87)
- Meðalaldur 25 ár
('87)
Liðsstjórn:
Jón Þór Hauksson (Þ)
Olgeir Sigurgeirsson (AÞ)
Hákon Ernir Haraldsson (AÞ)
Brynjar Gauti Guðjónsson (Liðsstj.)
Árni Björnsson (Sjúkraþj.)
Rajko Stanisic (MÞ)
Gul spjöld:
Benedikt V. Warén ('91)
Rauð spjöld:



