Fotbolti.net
03.07.26 - 18:21
Haraldur Örn Haraldsson
Byrjunarliðsfréttir

Byrjunarlið FH og Stjörnunnar: Hinn sextán ára Róbert Hugi byrjar - Ein breyting hjá Stjörnunni

Byrjunarlið FH og Stjörnunnar: Hinn sextán ára Róbert Hugi byrjar - Ein breyting hjá Stjörnunni
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Leikur FH og Stjörnunnar hefst í kvöld klukkan 19:15. Þetta er viðureign milli botnliðsins í deildinni gegn 8. sæti, en bæði lið ætluðu sér mun meira fyrir tímabil. Byrjunarliðin hafa verið birt en þau má sjá hér fyrir neðan.

Lestu um leikinn: FH 2 - 2 Stjarnan

Jóhannes Karl Guðjónsson þjálfari FH gerir tvær breytingar frá síðustu umferð þegar þeir gerðu 1-1 jafntefli við ÍBV. Sverri Páll Hjaltested og hinn 16 ára gamli Róbert Hugi Sævarsson koma inn í byrjunarliðið. Baldur Kári Helgason og Kristján Flóki Finnbogason eru ekki í hóp, en Baldur er í leikbanni vegna uppsafnaðra gulra spjalda.

Jón Þór Hauksson þjálfari Stjörnunnar gerir eina breytingu á sínu liði sem vann KA 3-1 í síðustu umferð. Það er Heiðar Ægisson sem kemur inn í liðið á kostnað Damil Dankerlui sem er ekki í hóp.

Byrjunarlið FH

  • 1. Jökull Andrésson (m)
  • 6. Grétar Snær Gunnarsson
  • 7. Kjartan Kári Halldórsson
  • 10. Sverrir Páll Hjaltested
  • 14. Adolf Daði Birgisson
  • 19. Aron Jónsson
  • 22. Ísak Óli Ólafsson (f)
  • 23. Tómas Orri Róbertsson
  • 33. Úlfur Ágúst Björnsson
  • 38. Arngrímur Bjartur Guðmundsson
  • 40. Róbert Hugi Sævarsson

Byrjunarlið Stjarnan

  • 12. Árni Snær Ólafsson (m)
  • 2. Heiðar Ægisson
  • 3. Gustav Kjeldsen
  • 6. Sindri Þór Ingimarsson
  • 7. Örvar Eggertsson
  • 8. Jóhann Árni Gunnarsson
  • 11. Birnir Snær Ingason
  • 18. Guðmundur Baldvin Nökkvason
  • 22. Emil Atlason (f)
  • 23. Benedikt V. Warén
  • 32. Örvar Logi Örvarsson

Besta karla

#LiðLmunStig
1Víkingur R.22+4653
2Fram22+1445
3KR22+2544
4Breiðablik22+230
5ÍA22-230
6Keflavík22-528
7Stjarnan22-828
8Valur22-627
9FH22-1221
10Þór22-2821
11KA22-1320
12ÍBV22-1318
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.