Liverpool opið fyrir því að selja Van Dijk - Tveir á óskalista Man Utd - Suzuki til Leeds?
Lengjudeild karla
Leiknir R.
LL 3
3
Völsungur
Besta karla
ÍBV
LL 1
0
Valur
Besta karla
ÍA
LL 1
2
Breiðablik
Lengjudeild karla
Grindavík
LL 0
0
Vestri
EM U19 kvenna - Riðill B
Ísland
LL 3
4
Sviss
Grindavík
0
0
Vestri
04.07.2026  -  14:00
Grindavíkurvöllur
Lengjudeild karla
Aðstæður: Bongóblíða
Dómari: Arnar Ingi Ingvarsson
Maður leiksins: Chriss-Albin Mörfelt
Byrjunarlið:
31. Hjörvar Daði Arnarsson (m)
4. Damir Muminovic (f)
5. Arnór Gauti Úlfarsson
7. Gunnleifur Orri Gunnleifsson ('72)
8. Stefán Jón Friðriksson ('79)
9. Rúnar Ingi Eysteinsson ('79)
10. Ingi Þór Sigurðsson
14. Haraldur Björgvin Eysteinsson
19. Rafael Victor ('88)
26. Eysteinn Rúnarsson
27. Heiðar Snær Ragnarsson ('46)
- Meðalaldur 24 ár

Varamenn:
1. Robert Blakala (m)
6. Viktor Guðberg Hauksson
11. Valur Þór Hákonarson ('72)
17. Andri Karl Júlíusson Hammer ('88)
20. Mikael Máni Þorfinnsson ('79)
22. Lárus Orri Ólafsson ('79)
23. Sindri Þór Guðmundsson ('46)
- Meðalaldur 23 ár

Liðsstjórn:
Ray Anthony Jónsson (Þ)
Arnar Máni Ingimundarson (Sjúkraþj.)
Marko Valdimar Stefánsson (AÞ)
Helgi Leó Leifsson (Liðsstj.)

Gul spjöld:
Marko Valdimar Stefánsson ('50)
Arnór Gauti Úlfarsson ('82)

Rauð spjöld:
Skýrslan
Leik lokið!
Hornspyrnan fer rakleiðis aftur fyrir Bragðdaufur leikur hér í blíðunni þar sem Vestri fékk tvö afbragðsfæri í lok fyrri hálfleiks en annars lítið um færi.

Skýrsla og viðtöl væntanleg.

Ég þakka fyrir mig.
94. mín
Grindvíkingar fá horn Síðasti sénsinn til að fá mark í leikinn.
93. mín Gult spjald: Breki Þór Hermannsson (Vestri)
Stoppar snögga aukaspyrnu Grindavíkur.
90. mín
Það eru fjórar mínútur í uppbótartíma. Fáum við sigurmark?
88. mín
Inn:Andri Karl Júlíusson Hammer (Grindavík) Út:Rafael Victor (Grindavík)
87. mín
Grindvíkingar fá tveir á einn hraðaupphlaup en laus sending frá Val sem Fall kemst inn í og stoppar frábæra stöðu heimamanna.
86. mín
Frábær sprettur upp allan kantinn frá Sergine Fall sem sækir hornspyrnu hinum megin.
85. mín
Lárus Orri lætur vaða! Fyrir utan teiginn og Marvin ver vel og Grindvíkingar fá hornspyrnu.
83. mín
Inn:Gunnar Jónas Hauksson (Vestri) Út:Guðmundur Páll Einarsson (Vestri)
83. mín
Inn:Birkir Eydal (Vestri) Út:Guðmundur Arnar Svavarsson (Vestri)
82. mín Gult spjald: Arnór Gauti Úlfarsson (Grindavík)
82. mín
Rafael Victor! Þá kemur loksins færi!

Vel varið frá Marvin.
81. mín
Grindvíkingar hafa haldið meira í boltann síðustu 15 mínútur en lítið hefur verið um færi.
79. mín
Inn:Mikael Máni Þorfinnsson (Grindavík) Út:Rúnar Ingi Eysteinsson (Grindavík)
79. mín
Inn:Lárus Orri Ólafsson (Grindavík) Út:Stefán Jón Friðriksson (Grindavík)
75. mín
Skemmtilegir taktar Breki Þór klobbar Sindra Þór og kemst í þröngt færi en skýtur fram hjá markinu.
73. mín
DAUÐAFÆRI VESTRI!! Damir með sjaldséð mistök og tapar boltanum en Breki kemst einn gegn Hjörvari en lætur hann verja frá sér og síðan tekur Konstantin frákastið og klikkar einnig.
72. mín
Inn:Valur Þór Hákonarson (Grindavík) Út:Gunnleifur Orri Gunnleifsson (Grindavík)
72. mín
Konstantin með laumu! Lætur vaða fyrir utan teiginn og boltinn fer rétt fram hjá nærstönginni.
70. mín
20 mínútur eftir Lítið að frétta þessa stundina en nú hlýtur annað liðið að ætla að sækja sigurinn.
67. mín
Inn:Johannes Selvén (Vestri) Út:Þórður Gunnar Hafþórsson (Vestri)
67. mín
Inn:Sergine Fall (Vestri) Út:Chriss-Albin Mörfelt (Vestri)
65. mín Gult spjald: Edson Eduardo Dias Gomes (Vestri)
Stoppar skyndisókn og tekur Rafael niður.
58. mín
VESTRI VILL VÍTI!! Breki Þór fer niður í teignum eftir tæklingu frá Arnóri og gestirnir tryllast.
Arnar Ingi dæmir þó ekki víti en Breki virtist vera búinn að missa boltann útaf.
54. mín
Ingi af löngu færi! Vinnur boltann langt utan að velli og lætur bara vaða en boltinn fer rétt yfir markið.
Skemmtileg tilraun.
51. mín
Besta færi Grindavíkur í leiknum Vel gert hjá Haraldi og Gunnleif í aðdragandanum en Ingi Þór fær frábært færi en á afleitt skot yfir markið.
50. mín Gult spjald: Marko Valdimar Stefánsson (Grindavík)
Var ósáttur við aukaspyrnu sem Vestri fékk en hefur farið yfir strikið og uppsker spjald.
46. mín
Seinni hálfleikur kominn af stað
46. mín
Inn:Sindri Þór Guðmundsson (Grindavík) Út:Heiðar Snær Ragnarsson (Grindavík)
45. mín
Hálfleikur
Gestirnir með yfirhöndina Vestri hefur verið sterkari aðilinn og þá sérstaklega síðustu tíu múnúturnar en staðan er engu að síður markalaus.

Tökum okkur 15 mínútna hlé.
45. mín
Konstantin með frábært skot! Fyrir utan teiginn sem Hjörvar þarf að hafa sig allan við að verja og tekst það.
45. mín
Damir reynir skot frá miðju sem heppnast ekki og Ray bölvar þessu á hliðarlínunni.
44. mín
ENN BETRA FÆRI!!! Aftur vikrilega vel spilað hjá Vestra en Breki rennir boltanum á Duah eftir frábæra takta hjá Mörfelt en Duah nær á ótrúlegan hátt að skjóta fram hjá markinu nánast inni í markteignum.
41. mín
Langbesta færi leiksins!! Frábært spil hjá Vestra en þeir tættu vörn Grindavíkur í sig. Virkilega góð hreyfing hjá Konstantin sem rennir boltanum á Þórð Gunnar sem er einn gegn Hjörvari en skýtur yfir markið við vítapunktinn.
39. mín
Grindavík fær sitt fyrsta færi Rafael Victor á skalla sem fer fram hjá markinu. Leikurinn hefur aðeins opnast, Grindvíkingar komnir aðeins ofar á völinn, en lítið um færi enn.
34. mín
Þórður Gunnar! Með skot úr góðri stöðu sem stefndi í fjærhornið en enginn annar en Damir hendir sér fyrir boltann á ögurstundu.
30. mín
Hálftími liðinn Ingi Þór liggur aðeins eftir og Grindvíkingar taka stutt samtal við Ray á hliðarlínunni. Virðist vera í lagi með Inga sem er staðinn upp.
27. mín
Damir heldur áfram að hreinsa þessu burt Vestramenn hafa verið að sækja meira og komist í fínar stöður en allt stoppar allt sem kemur í átt að teig Grindavíkur.
20. mín
Vestramenn hafa haldið mun meira í boltann á meðan Grindvíkingar reyna að beita skyndisóknum.
14. mín
Aukaspyrna gestanna Guðmundur Arnar með fasta spyrnu úr góðri stöðu sem fer þó í vegginn.
11. mín
Fyrsta hronspyrna leiksins er heimamanna Tekin stutt en gengur engan veginn upp og Vestramenn hreinsa.
7. mín
Fyrsta skot leiksins Kemur frá Þórði Gunnari en það er laust og langt fram hjá markinu.
6. mín
Bæði lið þreifa fyrir sér þessar fyrstu mínútur og skiptast á að halda aðeins í boltann.
1. mín
Úbsadeisí! Arnór Gauti nálægt því að skora ansi skrautlegt sjálfsmark á fyrstu mínútu leiksins. Er með boltann við endalínu og ætlar líklega að gefa hann yfir á Damir en skýtur boltanum hreinlega í hornspyrnu, þvert fyrir markið.
1. mín
Leikur hafinn
Gestirnir hefja leik!
Fyrir leik
Stemning í fjölmiðlaboxinu Ég sit hér með Gu'jóni Þorsteinssyni, lýsanda hjá Livey, og Daða Berg Jónssyni, leikmanni Víkings sem sjá um að lýsa saman leiknum á Livey.
Mynd: EPA

Fyrir leik
Sjaldan verið betra veður í Grindavík! Það er sannkölluð bongóblíða suður með sjó á þessum fallega degi. Sannkölluð veisla fram undan í þessum landsbyggðarslag.
Fyrir leik
Byrjunarliðin komin inn Ray Anthony gerir eina breytinu frá jafnteflinu gegn Ægi í síðsutu umferð en Stefán Jón kemur inn fyrir Sindra Þór.

Badu gerir nokkrar breytingar en hann er líklega að hvíla menn fyrir Evrópueinvígið gegn Qarabag þar sem þeir spila á fimmtudag í næstu viku í Aserbaídsjan. Þess má geta að Guðmundur Arnar Svavarsson er með fyrirliðabandið í dag.
Fyrir leik
Liðin mættust í fyrstu umferðinni Liðin skiptu stigunum á milli sín í þeim leik en þar enudðu leikar 1-1 á Kerecisvellinum á Ísafirði. Ingi Þór Sigurðsson kom gestunum yfir á 19. mínútu en Sergine Fall jafnaði metin á 58. mínútu og þar við sat.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Vestri tapað einum af síðustu sex Eftir aðeins brösuga byrjun á tímabilinu hefur Vestri farið á smá flug og er komið í 4. sæti deildarinnar. Í síðustu umferð gerði liðið 1-1 jafntefli við Þrótt í Laugardalnum eftir að hafa leitt leikinn mest allan leikinn. Þetta er síðasti leikur liðsins áður en ærið verkefni gegn Qarabag frá Aserbaídsjan bíður þeirra í forkeppni Evrópudeildarinnar.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Grindavík vann síðast leik 17. maí Það var eini sigur liðsins í Lengjudeildinni í ár til þessa en hann kom gegn Völsungi á Stakkavíkurvelli. Liðið hefur gert sex jafntefli og tapað þremur leikjum en það hefur skilað níu stigum í tíu leikjum. Grindavík er í 10. sæti, einu stigi fyrir ofan fallsæti, en á þó frestaðan leik inni. Í síðustu umferð gerði liðið markalaust jafntefli við Ægi í leik sem þeir hefðu þó átt að vinna.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Þriðja liðið Arnar Ingi Ingvarsson fær það hlutverk að dæma leik dagsins en honum til aðstoðar verða þeir Kristofer Bergmann og Rögnvaldur Þ Höskuldsson. Dómaraeftirlitsmaður er Þórður Ingi Guðjónsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Grindavík bíður okkur upp á Landsbyggðarslag! Sæl öll og verið velkomin í beina textalýsingu fyrir leik Grindavíkur og Vestra í 12. umferð Lengjudeildar karla sem fer fram á Stakkavíkurvellinum.
Mynd: Alexander Tonini

Byrjunarlið:
1. Marvin Darri Steinarsson (m)
3. Edson Eduardo Dias Gomes
7. Jacob Stensson
10. Þórður Gunnar Hafþórsson ('67)
12. Thibang Phete
15. Guðmundur Arnar Svavarsson (f) ('83)
19. Emmanuel Duah
23. Breki Þór Hermannsson
27. Chriss-Albin Mörfelt ('67)
29. Konstantin Cheshmedjiev
45. Guðmundur Páll Einarsson ('83)
- Meðalaldur 25 ár

Varamenn:
33. Benedikt Jóhann Þ. Snædal (m)
11. Johannes Selvén ('67)
13. Albert Ingi Jóhannsson
14. Birkir Eydal ('83)
17. Gunnar Jónas Hauksson ('83)
22. Elmar Atli Garðarsson
77. Sergine Fall ('67)
- Meðalaldur 24 ár

Liðsstjórn:
Daniel Osafo-Badu (Þ)
Vladan Djogatovic (MÞ)
Jón Ólafur Ragnarsson (Liðsstj.)
Ferran Montes I. Corominas (Styrktarþj.)
Jonathan Awrohum (AÞ)

Gul spjöld:
Edson Eduardo Dias Gomes ('65)
Breki Þór Hermannsson ('93)

Rauð spjöld: