Fotbolti.net
Besta deildin
@fotboltinetTryggvi Guðmundsson
Besta karla
Hásteinsvöllur
ÍBV
ÍBV
0 - 0
Valur
Valur
Dómari: Twana Khalid Ahmed
0. mín
Valur er í fimmta sæti
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Valsmenn sitja í fimmta sæti Bestu deildarinnar. Þeir unnu Þór í síðustu umferð en fyrir leikinn voru örlög Hermanns Hreiðarssonar ráðin. Þetta var langþráður sigur fyrir Val sem er með 19 stig, 21 stigi frá toppliði Víkings.
0. mín
Þegar liðin mættust í apríl
Valur vann 2-1 sigur. Felix Örn Friðriksson kom Val yfir en Lúkas Logi Heimsson og Hólmar Örn Eyjólfsson skoruðu mörk Vals.
0. mín
Eyjamenn taplausir í fimm leikjum
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Stigasöfnunin hjá heimamönnum í ÍBV hefur verið ansi fín að undanförnu, eftir erfiða byrjun. Eyjamenn gerðu 1-1 jafntefli gegn FH í síðustu umferð. Eftir þann leik var Aleksandar Linta þjálfari ÍBV spurður út í komandi leik gegn Val.

„Líka mjög erfiður leikur, við trúum á okkur sjálfa, áttum góðan leik gegn þeim síðast en töpuðum. Reynum að ná í sömu frammistöðu en aðeins öðruvísi niðurstöðu og þá verð ég sáttur," sagði Linta en Valur vann 2-1 þegar liðin mættust á Hlíðarenda 17. apríl.

Leikmannaglugginn opnar eftir tvo leiki hjá ÍBV eða þann 16. júlí. „Stjórnin sér um þær aðstæður, ég held að ef við finnum eitthvað sem hentar okkur þá munu þeir bregðast við og styrkja liðið fyrir seinni hluta tímabilsins," segir Linta. ÍBV er í níunda sæti.
0. mín
Twana með flautuna
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Twana Khalid Ahmed dæmir leikinn í dag. Egill Guðvarður Guðlaugsson og Antoníus Bjarki Halldórssons sigldu með honum í Herjólfi og eru aðstoðardómarar dagsins.
0. mín
Vestmannaeyjar heilsa!
Mynd: ÍBV
Leikur ÍBV og Vals í 13. umferð Bestu deildarinnar verður flautaður á klukkan 16:00! Það er spenna í lofti og ég ætla að lofa hörkuleik og mikilli skemmtun!
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.