Liverpool opið fyrir því að selja Van Dijk - Tveir á óskalista Man Utd - Suzuki til Leeds?
Lengjudeild karla
Leiknir R.
LL 3
3
Völsungur
Besta karla
ÍBV
LL 1
0
Valur
Besta karla
ÍA
LL 1
2
Breiðablik
Lengjudeild karla
Grindavík
LL 0
0
Vestri
EM U19 kvenna - Riðill B
Ísland
LL 3
4
Sviss
Ísland
3
4
Sviss
0-1 Ramona Schallberger '16
Ingibjörg Magnúsdóttir '26 1-1
1-2 Ramona Schallberger '28
1-3 Melissa Rondalli '45
1-4 Emanuela Pfister '63 , víti
Ingibjörg Magnúsdóttir '70 2-4
Líf Joostdóttir Van Bemme '83 3-4
04.07.2026  -  15:00
Asim Ferhatovic-Hase
EM U19 kvenna - Riðill B
Maður leiksins: Ingibjörg Magnúsdóttir
Byrjunarlið:
1. Herdís Halla Guðbjartsdóttir (m)
2. Líf Joostdóttir Van Bemme
3. Sóley Edda Ingadóttir ('70)
4. Helga Rut Einarsdóttir
5. Jónína Linnet
7. Ingibjörg Magnúsdóttir ('85)
8. Edith Kristín Kristjánsdóttir
9. Berglind Freyja Hlynsdóttir
10. Ragnheiður Þórunn Jónsdóttir
11. Freyja Stefánsdóttir ('64)
19. Rebekka Sif Brynjarsdóttir ('70)

Varamenn:
21. Anna Arnardóttir (m)
6. Elísa Bríet Björnsdóttir
13. Anika Jóna Jónsdóttir ('70)
14. Hrafnhildur Salka Pálmadóttir ('85)
15. Sunna Rún Sigurðardóttir
16. Fanney Lísa Jóhannesdóttir ('64)
17. Védís Ösp Einarsdóttir ('70)
18. Anna Heiða Óskarsdóttir
20. Arnfríður Auður Arnarsdóttir

Liðsstjórn:

Gul spjöld:

Rauð spjöld:
Skýrslan
Leik lokið!
3-4 niðurstaðan. Þessi leikur endar með ótrúlega svekkjandi tapi í leik sem íslenska liðið hefði vel getað unnið. Klaufagangur og slakur varnarleikur á köflum verða til þess að liðið fær á sig fjögur mörk í þessum leik en einnig er hægt að nefna gæðin í teignum hinum megin sem hefðu mátt vera meiri því að færin voru heldur betur ekki af skornum skammti í dag. Það verður þó ekki tekið af íslenska liðinu að þær gáfu allt í þennan leik og hlupu og börðust fyrir málstaðinn alveg fram að lokaflautinu. 0 stig á þessu móti er þó niðurstaðan sem er gríðarlega svekkjandi.
90. mín
+3 Ísland jafnar en það er dæmt af.

Védís tekur frábæra hornspyrnu inn á markteiginn sem fer af Zwyssig og í markið. Dómarinn tekur sér góðan tíma í að flauta en dæmir Líf brotlega á endanum fyrir brot á Zwyssig.
90. mín
+2 Anika gleymir sér aðeins og fær aukaspyrnu Sviss yfir sig sem hleypir Ammann í mikið svæði og fínt færi en hún hittir ekki rammann.
90. mín
+1 Fjórar mínútur í uppbót.
90. mín
Skemmtileg tilraun frá Hinder sem reynir volley lengst utan af velli en skotið yfir.
88. mín
Edith fær boltann rétt fyrir utan D-bogann og lætur vaða, skotið rétt yfir.
86. mín
Védís með annan frábæran bolta inn á markteiginn en Sviss koma boltanum í burtu eftir mikið kaos inn á teignum.
86. mín
Líf vinnur aukaspyrnu á góðum stað stutt frá hornfánanum.
85. mín
Inn:Hrafnhildur Salka Pálmadóttir (Ísland) Út:Ingibjörg Magnúsdóttir (Ísland)
Engin þrenna fyrir Ingibjörgu
83. mín
Inn:Olivia Edelmann (Sviss) Út:Ramona Schallberger (Sviss)
83. mín MARK!
Líf Joostdóttir Van Bemme (Ísland)
Stoðsending: Védís Ösp Einarsdóttir
Fáum við jöfnunarmark? Frábært horn frá Védísi inn á markteiginn þar sem Líf stangar hann í markið.
82. mín
Berglind Freyja ætlar að setja fyrirgjöf inn á teiginn en Wallin kemst fyrir og Ísland á horn.
80. mín
Vonnez svo nálægt því að ná til boltans eftir stutt ping-pong í íslenska teignum en Herdís á tánum og grípur vel inn í .
78. mín Gult spjald: Tiffany Vonnez (Sviss)
Galin tækling á Jónínu sem er búin að losa boltann.
78. mín
Seinni spyrnan er ekki góð og fer út í teiginn þar sem enginn er.
77. mín
Looser með mikið pláss vinstra megin í teignum og keyrir að marki áður en hún lætur vaða en Herdís ver í horn sem þær ná ekki að nýta en vinna þó annað horn.
75. mín
Ingibjörg á þrennunni Líf með frábæran sprett inn á teiginn og kemur sér á milli tveggja varnarmanna áður en hún kemur boltanum út í teiginn á fría Ingibjörgu en skotið hennar er varið.
73. mín
Inn:Tiffany Vonnez (Sviss) Út:Emilie Mece (Sviss)
73. mín
Inn:Anika Seliner (Sviss) Út:Melissa Rondalli (Sviss)
70. mín MARK!
Ingibjörg Magnúsdóttir (Ísland)
Stoðsending: Ragnheiður Þórunn Jónsdóttir
Ingibjörg minnkar muninn Frábær sprettur frá Líf sem dregur í sig varnarmann og losar hann á Ragnheiðið á hárréttum tíma. Ragnheiður keyrir upp hægri kantinn, finnur Ingibjörgu inná teignum, Ingibjörg er grimm með tvo varnarmenn í sér og lætur vaða á markið og boltinn í netið.
70. mín
Inn:Védís Ösp Einarsdóttir (Ísland) Út:Sóley Edda Ingadóttir (Ísland)
70. mín
Inn:Anika Jóna Jónsdóttir (Ísland) Út:Rebekka Sif Brynjarsdóttir (Ísland)
67. mín
Sviss sækja hratt upp hinum megin og Schallberger tekur á rás. Helga Rut reynir að halda í við hana og endar á að fara í tæklingu sem Schallberger kemst fram hjá og á fyrirgjöf fyrir opið markið en þar finnur hún engan samherja og boltinn endar á því að rúlla aftur fyrir.
67. mín
Spyrna hinum megin á vellinum sem Ingibjörg tekur en Sviss koma honum frá.
66. mín
Rebekka tekur aukaspyrnu sem Ísland fær úti á velli inn á teiginn en enn og aftur endar boltinn í fanginu á Zwyssig
65. mín
Inn: Rahel Hinder (Sviss) Út:Emanuela Pfister (Sviss)
65. mín
Inn:Laura Kott (Sviss) Út:Andrea Schenk (Sviss)
64. mín
Inn:Fanney Lísa Jóhannesdóttir (Ísland) Út:Freyja Stefánsdóttir (Ísland)
63. mín Mark úr víti!
Emanuela Pfister (Sviss)
1-4 Pfister örugg á punktinum, setur vítið niðri vinstra megin og Herdís í vitlaust horn.
62. mín
Sviss fær víti! Hár bolti enn og aftur sem Herdís er sein útí og tekur Mece niður án þess að ná til boltans.
62. mín
Dómarinn í þessum leik virðist vera með ofnæmi fyrir flæði og nýtir hvert einasta tækifæri til að nota flautuna.
60. mín
Schallberger í leit að þrennunni og fer í skot þegar hún hefði klárlega átt að finna samherja í betri stöðu. Skotið hennar fram hjá.
59. mín
Líkt og í fyrri hálfleiknum þá eru Sviss að sækja í sig veðrið eftir því sem líður á.
58. mín
Hornið er lélegt og fer með fram jörðinni beint á fremsta varnarmann.
57. mín
Sviss halda áfram sókninni og uppskera horn.
56. mín
Sviss sækja hinum megin en fyrirgjöfin er slök og fyrir aftan Pfister.
54. mín
Edith á bolta inn á Ingibjörgu sem reynir skallann en hefði þurft nokkra sentimetra til viðbótar til að ná almennilega í boltann og boltinn fer af hausnum á henni og aftur fyrir.
51. mín
Aukaspyrna sem Ingibjörg tekur inn á teiginn en boltinn of innarlega og beint í fangið á Zwyssig
46. mín
Frábær sprettur hjá Berglindi upp að endalínunni áður en hún kemur boltanum fyrir en engin íslensk treyja á fjær og boltinn rúllar í gegn um teiginn.
46. mín
Bæði lið óbreytt og Svisslendingar byrja með boltann
45. mín
Hálfleikur
Mjög svekkjandi endir á annars fínum hálfleik hjá íslenska liðinu. Þær hafa fengið urmul af góðum færum sem hafa farið forgörðu og Svisslendingarnir eru að klára sín færi. 1-3 finnst mér alls ekki gefa rétta mynd af þessum leik en það er víst ekki spurt að því.
45. mín MARK!
Melissa Rondalli (Sviss)
+2 Rondalli í kapphlaupi við Ingibjörgu upp vinstri kantinn. Líf mætir þeim og á kraftlitla hreinsun beint í Rondallis em heldur áfram. Ingibjörg gerir veika tilraun í að fylgja henni eftir og Rondalli skilar boltanum snyrtilega í fjær. Agalegur varnarleikum hjá íslenska liðinu þarna.
45. mín
Hægar síðustu fimm mínútur í þessum fyrri hálfleik og ein mínúta í uppbótartíma.
40. mín
Svisslendingarnir láta bara vaða á markið sama hvar þær eru á vellinum og nú setja þær skot langt fram hjá lengst utan af velli.
39. mín
Ísland fær aukaspyrnu á miðjum vallarhelmingi Sviss, vinstra megin, sem Ingibjörg tekur. Spyrnan er alls ekki galin en engin samherji nær til hans og Zwyssig er fyrst á boltann.
37. mín
Aftur er pressa Íslands að skila árangri en liðið nær ekki að koma skoti á markið og á endanum á Líf fyrirgjöf sem er beint á Zwyssig.
35. mín
Aftur er íslenska vörnin í basli með háan bolta en ná þó að bjarga sér fyrir horn og koma hættunni frá.
35. mín
Dauðafæri Góð pressa Íslands endar með því að Berglind Freyja kemst inn í sendinu sem er ætluð Zwyssig í markinu. Hún tekur snertinguna fram hjá Zwyssig og er komin í nokkuð þröngt færi á opið markið en lyftir boltanum yfir markið, þetta verður hún hreinlega að setja í markið.
32. mín
Mece með skot langt utan af velli en skotið er glórulaust og ótrúlega langt frá því að hitta markið.
30. mín
Íslenska liðið eru í vandræðum með háu boltana inn fyrir og varnarlína og markmaður ekki alveg í nægilega góðum takti.
28. mín MARK!
Ramona Schallberger (Sviss)
Schallberger aftur Langur bolti inn fyrir fer yfir Helgu Rut, Herdís hikar í markinu og Schallberger nær smá snertingu til að skalla boltann fram hjá henni og rúllar boltanum í opið markið.
26. mín MARK!
Ingibjörg Magnúsdóttir (Ísland)
1-1 Langt innkast frá Sóley endar á enninu á Freyju sem flikkar honum aftur fyrir sig þar sem Ingibjörg, Ragnheiður og varnarmaður berjast um. Ingibjörg hefur betur og skilar boltanum í netið.
24. mín
Sláin!! Góður sprettur hjá Edith endar inn á teignum þar sem hún cutar til baka og finnur Freyju úti í teignum sem á skot sem endar í þverslánni.
22. mín
Bolti á fjær þar sem Berglind reynir skalla en boltinn er of hár og hún skallar hann aftur fyrir sig. Sóley Edda fær boltann og á annan bolta fyrir á Freyju sem reynir skalla á markið en skallar hann hátt upp í loftið og Zwyssig er í litlum vandræðum með hann.
20. mín
Ragnheiður Þórunn með skot fyrir utan teiginn sem er beint á Zwyssig. Hefði betur fundið samherja í hlaupi hægra megin en virtist ekki sjá hana.
18. mín
Ísland fær aukaspyrnu langt úti á velli sem Rebekka tekur inn á teiginn, inn fyrir pakkann. Helga tekur gott hlaup, er fyrst á boltann og nokkuð óvölduð en skotið hennar er yfir markið.
16. mín MARK!
Ramona Schallberger (Sviss)
Sviss leiðir!!! Schallberger fær boltann úti á vinstri kantinum og keyrir inn á völlinn. Helga Rut mætir henni en Schallberger tekur hreyfingu til hægri og lætur vaða á markið um leið og hún kemur inn á teiginn og boltinn syngur í fjær. Alvöru slútt hjá þessum 16 ára gamla leikmanni!
14. mín
Svisslendingar aðeins að sækja í sig veðrir eftir fyrstu tíu þar sem Ísland hélt í boltann nánast stanslaust
13. mín
Slæmur bolti frá Herdísi frá markinu er beint fyrir lappirnar á Pfister sem finnur Schallberger inn á teignum en skotið hennar er beint á Herdísi.
10. mín
Fyrsta sókn Sviss er skyndisókn eftir hornið sem endar með slöku skoti sem Herdís er í engum vandræðum með.
10. mín
Þriðja horn Íslands og aftur er það stutt og rennur út í sandinn, fá þetta inn á teiginn takk.
9. mín
Annað horn sem er tekið stutt. Boltinn kemur þaðan inn á teiginn en enginn nær til hans. Freyja fellur í teignum og Ísland vill víti en það virðist ekki hafa verið mikið í þessu, markspyrna.
7. mín
Tvö dauðafæri fyrir Íslands Boltinn kemur inn á teiginn þar sem Freyja nær skoti á markið en það er beint á Zwyssig í markinu. Frákastið fer beint fyrir lappirnar á Berglindi sem fær eins gott færi og hún mun fá en setur það beint í lappirnar á Zwyssig. Þetta voru tvö alvöru tækifæri sem þær verða að nýta betur!
4. mín
Ingibjörg tekur hornið stutt en íslenska liðið nær ekki að koma boltanum fyrir markið.
4. mín
Fínasta byrjun hjá Íslandi og þær sækja horn.
2. mín
Ísland í fínni stöðu þegar Zwyssig kemur langt út úr markinu en fyrirgjöfin frá Freyju finnur ekki samherja.
1. mín
Leikur hafinn
Ísland byrjar með boltann Freyja Stefánsdóttir sparkar þessu í gang
Fyrir leik
Bæði lið hafa sungið þjóðsöngva þína og þetta er að fara í gang.
Fyrir leik
Byrjunarliðið Donni gerir tvær breytingar á íslenska liðinu frá tapinu gegn Spáni. Út úr liðinu fara Anna Heiða Óskarsdóttir og Arnfríður Auður Arnarsdóttir. Inn fyrir þær koma Ingibjörg Magnúsdóttir og Beglind Freyja Hlynsdóttir

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Sviss Sviss gerðu sér lítið fyrir og sóttu 2-2 jafntefli í fyrsta leik gegn Spáni en þurftu að sætta sig við 3-1 tap gegn nágrönnum sínum í Austurríki í síðasta leik. Þær eru í þriðja sæti riðilsins með eitt stig og veika von um að fara áfram en þær þurfa að treysta á hagstæð úrslit í leik Spánar og Austurríkis.

Mynd: Getty Images
Fyrir leik
Ísland Íslenska liðið hefur nú þegar mætt Spáni og Austurríki og þurftu að sætta sig við tap í báðum leikjum. Í fyrsta leik töpuðu þær 3-0 fyrir Austurríki og í síðasta leik töpuðu þær 4-0 fyrir ríkjandi Evrópumeisturum Spánar. Íslenska liðið á ekki möguleika á því að fara áfram og geta hæst endað í þriðja sæti riðilsins.

Mynd: KSÍ

Fyrir leik
Góðan daginn kæru lesendur Verið velkomin í þessa beinu textalýsingu frá leik Íslands og Sviss á lokamóti EM, leikurinn hefst klukkan 15.

Mynd: Aðsend

Byrjunarlið:
1. Yara Zwyssig (m)
2. Chiara Wallin
4. Emma Egli
6. Andrea Schenk ('65)
7. Emilie Mece ('73)
8. Giulia Looser
9. Emanuela Pfister ('65)
11. Ramona Schallberger ('83)
13. Lia Ammann
14. Andrea Jäggi
18. Melissa Rondalli ('73)

Varamenn:
12. Leyla Laubscher (m)
3. Emilia Brunner
5. Johanna Thüer
10. Giorgia Bianchi
15. Laura Kott ('65)
16. Anika Seliner ('73)
17. Rahel Hinder ('65)
19. Tiffany Vonnez ('73)
20. Olivia Edelmann ('83)

Liðsstjórn:

Gul spjöld:
Tiffany Vonnez ('78)

Rauð spjöld: