Real undirbýr 220 milljóna evra tilboð í Olise - Arsenal og Liverpool með augastað á Barcola - Man Utd vill landsliðsmarkvörð Paragvæ
Í BEINNI
Besta karla
Keflavík
LL 1
1
Fram
Keflavík
1
1
Fram
0-1 Kennie Chopart '54
Stefan Ljubicic '68 1-1
06.07.2026  -  19:15
HS Orku völlurinn
Besta karla
Dómari: Gunnar Oddur Hafliðason
Byrjunarlið:
1. Ásgeir Orri Magnússon (m)
5. Davíð Helgi Aronsson
6. Sindri Snær Magnússon (f) ('65)
8. Þorlákur Breki Þ. Baxter
10. Stefan Ljubicic
11. Muhamed Alghoul
13. Anton Kralj ('80)
14. Marin Mudrazija ('65)
20. Marin Brigic
21. Alpha Conteh
22. Ásgeir Páll Magnússon
- Meðalaldur 26 ár

Varamenn:
12. Helgi Bergmann Hermannsson (m)
3. Axel Ingi Jóhannesson ('80)
4. Nacho Heras
7. Dagur Ingi Valsson ('65)
17. Baldur Logi Guðlaugsson
18. Ernir Bjarnason
23. Eiður Orri Ragnarsson ('65)
28. Viktor Árni Traustason
47. Egill Valur Karlsson
- Meðalaldur 24 ár

Liðsstjórn:
Haraldur Freyr Guðmundsson (Þ)
Guðmundur Árni Þórðarson (Forráðam.)
Ómar Jóhannsson (MÞ)
Lucija Roncevic (Sjúkraþj.)
Óskar Rúnarsson (Leikgr.)
Frans Elvarsson (Leikmaður utan hóps)
Viktor Elmar Gautason (Leikmaður utan hóps)
Hólmar Örn Rúnarsson (AÞ)

Gul spjöld:
Marin Brigic ('31)
Alpha Conteh ('50)
Sindri Snær Magnússon ('53)

Rauð spjöld:
Skýrslan
Leik lokið!
Allt jafnt í Keflavík Liðin skilja jöfn með sitthvort markið í farteskinu.

Viðtöl og skýrsla væntanleg...
92. mín
Inn:Bjarni Páll Linnet Runólfsson (Fram) Út:Már Ægisson (Fram)
90. mín
Tvær mínútur í uppbót
90. mín
Skotið rétt yfir þverslánna! Það rétt yfir að hann endar ofan á markinu.
89. mín
Keflavík fær aukaspyrnu á hættulegum stað rétt fyrir utan teig.

Muhamed Alghoul stillir sér upp.
89. mín
Er sigurmark í þessum leik? Stóra spurningin.
88. mín Gult spjald: Jakob Byström (Fram)
Reynir hjólhest en sparkar bara í Marin Brigic.
87. mín
Þorri Stefán reynir skot en beint á Ágúst Orra.
85. mín
Stefan Ljubicic og Kennie Chopart í baráttunni í teig Fram og dæmt á Ljubicic.
80. mín
Inn:Simon Tibbling (Fram) Út:Fred Saraiva (Fram)
80. mín
Inn:Axel Ingi Jóhannesson (Keflavík) Út:Anton Kralj (Keflavík)
76. mín
Fred með máttlaust skot á markið en Frammarar eru að ógna.
74. mín
Fred með fínasta bolta fyrir markið og Róbert Hauks á skalla sem hann nær ekki að stýra á markið.
73. mín
Inn:Jakob Byström (Fram) Út:Vuk Oskar Dimitrijevic (Fram)
72. mín
Ægir Jarl sýndist mér með skot sem fer af varnarmanni Keflavíkur og rétt framhjá markinu.

Ásgeir Orri var farinn í hitt hornið og gat bara horft á eftir boltanum fara framhjá markinu.
68. mín MARK!
Stefan Ljubicic (Keflavík)
Stoðsending: Eiður Orri Ragnarsson
Keflavík jafnar! Eiður Orri með frábæran bolta fyrir markið sem er teiknaður á ennið á Stefan Ljubicic á fjærstöng sem skallar boltann í gangstætt horn!

ALLT JAFNT!
67. mín
Keflavík að leita af opnunum á þéttri vörn Fram.
65. mín
Inn:Eiður Orri Ragnarsson (Keflavík) Út:Sindri Snær Magnússon (Keflavík)
65. mín
Inn:Dagur Ingi Valsson (Keflavík) Út:Marin Mudrazija (Keflavík)
62. mín
Leikurinn er endana á milli þessa stundina.
61. mín
Vuk er einn á móti Ásgeiri Orra en í þröngu færi og Ásgeir Orri lokar virkilega vel á hann.

Fram fá þó enn eitt hornið.
58. mín
Fram að hóta öðru markinu en Keflavík verst vel.
57. mín
Róbert Hauks eltir bolta fram og reynir að koma honum fyrir en Keflvíkingar komast fyrir og koma þessu í horn.
54. mín MARK!
Kennie Chopart (Fram)
Stoðsending: Fred Saraiva
Fram brýtur ísinn! Fred tekur aukaspyrnuna og lyftir boltanum inn á teig þar sem Kennie er furðulega frír og hann lyftir boltanum svo yfir Ásgeir Orra í marki Keflavíkur og kemur Fram yfir!

FRAM LEIÐIR!
53. mín Gult spjald: Sindri Snær Magnússon (Keflavík)
Gunnar Oddur sveiflar spjöldum.
52. mín Gult spjald: Már Ægisson (Fram)
50. mín Gult spjald: Alpha Conteh (Keflavík)
Mótmælti þessu og fær fyrir það spjald.
50. mín
Alpha Conteh að komast á ferðina og Keflavík að komast í tækifæri á skyndisókn þegar Israel Garcia lætur sig falla og tekur um andlitið.
Keflavík var að komast í yfirtölu á síðasta þriðjung.

Gat ekki séð að það hafi verið neitt að þessu en Gunnar Oddur stöðvar leikinn við litla hrifningu Keflvíkinga.
48. mín
Keflavík við stýrið hérna í upphafi seinni.
46. mín
Seinni hálfleikur hafinn Keflavík sparkar þessu af stað aftur.

Væri gaman að fá mörk í þetta hérna í seinni.
45. mín
Hálfleikstölfræði

45. mín
Hálfleikur
Liðin fara markalaus inn til búningsklefa í hálfleik.

Keflavík átt hættulegasta færið en Frammarar verið heilt yfir með betri stjórn á leiknum.

Tökum okkur stutta pásu en fáum vonandi einhver mörk og frekari skemmtun í seinni hálfleik.
45. mín
Alpha Conteh að komast í flotta stöðu en Viktor Freyr lokar vel á hann í þröngu færi.
45. mín
Einni mínútu bætt við
41. mín
Frammarar eru hættulegir þegar þeir komast á síðasta þriðjung. Verið duglegir að vinna hornspyrnur en eiga enn eftir að nýta sér þær að einhverju viti.
39. mín
Keflavík sækir hratt og Marin Mudrazija kemur með boltann í svæði fyrir Muhamed Alghoul og hann vippar boltanum laflaust framhjá.

Þarna var svo sannarlega tækifæri fyrir Keflavík.
35. mín
Boltinn fellur fyrir Kennie Chopart sem ætlar að smella honum en hittir hann ekki betur en það að boltinn fer í innkast.

Leit fáránlega vel út allt þar til hann hitti boltann svona líka illa.
31. mín Gult spjald: Marin Brigic (Keflavík)
Fyrstur í svörtu bókina.
28. mín
ALPHA CONTEH!! Viktor Freyr kemur út í skógarhlaup og Alpha Conteh fer framhjá honum og er ekki með markmann í markinu en nokkra Frammara sem detta neðar á línuna en hann þrumar boltanum framhjá!

Hvernig tókst honum ekki að skora!?!
25. mín
Alpha Conteh að ógna með hraða sínum og krafti. Búið að taka hann tvisvar niður og fékk loksins aukaspyrnu núna.
21. mín
Skemmtileg barátta milli Vuk Oskars og Ásgeirs Páls úti vinstra megin.
18. mín
Fram vinnur boltann á miðjunni og Freyr Sigurðsson á huggulegan bolta fyrir markið en Vuk nær honum ekki á fjær.
16. mín
Már Ægis með fyrir fyrirgjöf fyrir markið sem Keflvíkingar skalla aftur fyrir.

Ekki langt frá því að skalla í eigið net sýndist manni.
14. mín
Marin Mudrazija reynir skot af löngu færi en það er tilturlega þægilegt fyrir Viktor Freyr í marki Fram.
8. mín
Frammarar sækja hratt á Keflavík og komast í frábæra stöðu en skotið hátt yfir.

Gestirnir grimmir.
7. mín
Keflavík verst tveimur hornspyrnum frá Fram vel.
5. mín
Vuk með tilraun sem fer af varnarmanni og Framamrar fá fyrsta horn leiksins.
3. mín
Vuk gripinn í rangstöðu þegar Frammarar eru að sækja. Það er kraftur í gestunum hér í upphafi.
1. mín
Leikur hafinn
Það eru gestirnir í Fram sem sparka þessu af stað.
Fyrir leik
Enginn Rúnar Kristins á skýrslu Rúnar er veikur og því ekki með sínu liði í dag.

Helgi Sig stýrir liðinu í hans fjarveru.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Enginn Atli Þór Jónasson í dag Byrjunarliðin eru klár og má sjá hér til hliðar.

Keflavík gera engar breytingar á sínu liði sem vann öflugan sigur gegn KR í síðustu umferð.

Fram gera eina breytingu á sínu liði sem vann sterkan útisigur gegn ÍA í síðustu umferð. Vuk Oskar Dimitrijevic kemur inn í byrjunarliðið fyrir Atla Þór Jónasson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Spákona umferðarinnar Við fengum Helgu Rut Einarsdóttur, fyrirliða U19 landsliðs kvenna, til að spá í spilin fyrir umferðina. Helga er þessa stundina í Bosníu á lokakeppni Evrópumótsins með U19.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Keflavík 1 - 2 Fram
Fram búnir að vera a góðu runni og taka þennan leik. Sigurjón Rúnarsson skorar með góðum skalla!

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Innbyrðis viðreignir Þessi lið hafa marga fjöruna sopið saman og vilja Keflvíkingar sennilega sem minnst muna eftir leik liðana í lokaumferðinni 2008 þegar Fram stal undan Keflvíkingum Íslandsmeistaratitlinum með 1-2 sigri sem varð til þess að FH urðu Íslandsmeistarar það ár.



Þessi lið hafa mæst 140 sinnum.



Keflavík hefur unnið 57 sinnum.


Fram 45 sinnum.


Liðin hafa skilið jöfn 38 sinnum.


Mynd: Fotbolti.net-Davíð Örn Óskarsson


Fyrri leikur liðana í deildinni í sumar endaði með 3-1 sigri Fram.


Fyrir leik
Keflavík Keflavík hefur komið skemmtilega á óvart á tímabilinu og verið mun beittari en flestir héldu fyrir mót. Keflavík hefur verið að tengja saman góðar frammistöðu og sótt flott úrslit þar sem af er tímabils og sitja í 7. sæti deildarinnar með 15 stig en geta með sigri lyft sér upp í efri hluta deildarinnar.



Eftir að hafa aðeins misst dampinn og tapað gegn ÍBV og FH hafa Keflvíkingar verið að finna gott form og sóttu gott stig á Hlíðarenda og unnu frábæran sigur á KR í síðustu umferð 3-2 en það var jafnframt þeirra fyrsti sigur á KR í 18 ár.



Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Fram Fram hafa átt magnað tímabil til þessa og geta með sigri í kvöld jafnað KR af stigum í 2. sæti deildarinnar og eiga að auki leik til góða til þess að komast átta stigum frá Víkingum á toppi deildarinnar.



Frammarar hafa unnið fjóra af síðustu fimm leikjum sínum en eini tapleikur liðsins kom gegn toppliði Víkinga.
Í síðustu umferð unnu Frammarar góðan 0-2 útisigur á ÍA þar sem Atli Þór Jónasson skoraði bæði mörkin en hann er markahæsti leikmaður Fram í deildinni með sjö mörk.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Dómarareymið í kvöld Gunnar Oddur Hafliðason verður á flautunni í kvöld og honum til aðstoðar verða Eysteinn Hrafnkelsson og Kristofer Bergmann.
Róbert Þór Guðmundsson er fjórði dómari og eftirlitsmaður KSÍ er Ingvar Örn Gíslason.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Lokaleikur þrettándu umferðar Leikur Keflavíkur og Fram lokar 13. umferð Bestu deild karla.



Umferðin hefur farið svona fram:


Þór Ak. 3-3 KR

Víkingur 3-2 KA

FH 2-2 Stjarnan

ÍA 1-2 Breiðablik

ÍBV 1-0 Valur



Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Velkomin á HS Orku völlinn! Heil og sæl og verið hjartanlega velkomin í þessa þráðbeinu textalýsingu frá HS Orku vellinum í Keflavík þar sem heimamenn í Keflavík taka á mót Fram í Bestu deild karla.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Byrjunarlið:
22. Viktor Freyr Sigurðsson (m)
3. Þorri Stefán Þorbjörnsson
9. Róbert Hauksson
10. Fred Saraiva ('80)
16. Israel Garcia
18. Ægir Jarl Jónasson
19. Kennie Chopart (f)
23. Már Ægisson ('92)
25. Freyr Sigurðsson
26. Sigurjón Rúnarsson
29. Vuk Oskar Dimitrijevic ('73)
- Meðalaldur 26 ár

Varamenn:
1. Sigurjón Daði Harðarson (m)
4. Arnar Daníel Aðalsteinsson
7. Kristófer Konráðsson
8. Haraldur Einar Ásgrímsson
12. Simon Tibbling ('80)
14. Bjarni Páll Linnet Runólfsson ('92)
15. Jakob Byström ('73)
- Meðalaldur 26 ár

Liðsstjórn:
Sævar Halldórsson (Leikgr.)
Benjamín Þór Benjamínsson (Sjúkraþj.)
Friðgeir Bergsteinsson (Liðsstj.)
Guðmundur Gígjar Sigurbjörnsson (Styrktarþj.)
Kristján Finnbogi Finnbogason (MÞ)
Magnús Þorsteinsson (Liðsstj.)
Helgi Sigurðsson (AÞ)

Gul spjöld:
Már Ægisson ('52)
Jakob Byström ('88)

Rauð spjöld: