Forkeppni Meistaradeildarinnar
Víkingur R.
LL
1
0
0
Györ
Fótbolti.net bikarinn
KFA
LL
3
2
2
Augnablik
Fótbolti.net bikarinn
Hamar
LL
1
2
2
Dalvík/Reynir

Víkingur R.
1
0
Györ

Nikolaj Hansen
'92
1-0
07.07.2026 - 19:00
Víkingsvöllur
Forkeppni Meistaradeildarinnar
Dómari: Romain Lissorgue (Frakkland)
Áhorfendur: Uppselt
Víkingsvöllur
Forkeppni Meistaradeildarinnar
Dómari: Romain Lissorgue (Frakkland)
Áhorfendur: Uppselt
Byrjunarlið:
47. Ögmundur Kristinsson (m)
2. Sveinn Gísli Þorkelsson
9. Helgi Guðjónsson
10. Gylfi Þór Sigurðsson
11. Daníel Hafsteinsson
('69)
('69)
19. Óskar Borgþórsson
21. Aron Elís Þrándarson
('83)
('83)
22. Karl Friðleifur Gunnarsson
25. Valdimar Þór Ingimundarson
28. Elías Már Ómarsson
('44)
('44)
4. Oliver Ekroth (f)
- Meðalaldur 28 ár
Varamenn:
99. Uggi Jóhann Auðunsson (m)
7. Erlingur Agnarsson
8. Viktor Örlygur Andrason
14. Jóhannes Kristinn Bjarnason
15. Róbert Orri Þorkelsson
18. Daði Berg Jónsson
20. Tarik Ibrahimagic
('69)
('69)
23. Nikolaj Hansen
('44)
('44)
24. Davíð Örn Atlason
35. Þorri Ingólfsson
69. Ármann Ingi Finnbogason
('83)
- Meðalaldur 25 ár
('83)
Liðsstjórn:
Sölvi Ottesen (Þ)
Aron Baldvin Þórðarson (AÞ)
Hajrudin Cardaklija (MÞ)
Rúnar Pálmarsson (Sjúkraþj.)
Viktor Bjarki Arnarsson (AÞ)
Kári Sveinsson (Styrktarþj.)
Þórir Ingvarsson (Liðsstj.)
Daníel Darri Arnarsson (Leikgr.)
Róbert Rúnar Jack
Gul spjöld:
Oliver Ekroth (f) ('76)
Rauð spjöld:
Leik lokið!
Ansi verðskuldaður sigur sem hefði mátt vera stærri
Víkingar fara með eins marks forskot út til Ungverjalands eftir að hafa spilað virkilega vel gegn ungversku meisturunum. Gestirnir ógnuðu afar lítið að marki Víkinga en Ögmundur fékk ekkert skot á sig.
Nú þurfa Víkingar að klára verkefnið úti í næstu viku og eru í kjörstöðu til þess.
Skýrsla og viðtöl væntanleg síðar í kvöld, takk fyrir mig.
Nú þurfa Víkingar að klára verkefnið úti í næstu viku og eru í kjörstöðu til þess.
Skýrsla og viðtöl væntanleg síðar í kvöld, takk fyrir mig.
92. mín
Gult spjald: Márk Csinger (Györ)
Gult spjald: Márk Csinger (Györ)
Í markinu sparkar í andlitið á Niko þegar hann skallaði boltann í netið.
92. mín
MARK!
MARK!Nikolaj Hansen (Víkingur R.)
JÁJÁJÁJÁJÁJÁJÁJÁJÁ
NIKOLAJ HANSEN!!!!!
Frábær bolti inn á teiginn frá Ármanni sem Óskar skallar á markið en Samuel ver enn og aftur en Niko var fyrstur á frákastið og klárar í opið markið!
Gífurlega verðskuldað mark sem kom ansi seint í leiknum. Víkingar eiga skilið að sigra þennan leik.
Frábær bolti inn á teiginn frá Ármanni sem Óskar skallar á markið en Samuel ver enn og aftur en Niko var fyrstur á frákastið og klárar í opið markið!
Gífurlega verðskuldað mark sem kom ansi seint í leiknum. Víkingar eiga skilið að sigra þennan leik.
90. mín
Gestirnir geta verið töluvert sáttari með þessi úrslit
Györ menn virðast ætla að fara heim með jafna stöðu en þeir hafa gert fáar tilraunir til þess að skora mark.
88. mín
Gult spjald: Miljan Krpic (Györ)
Gult spjald: Miljan Krpic (Györ)
Sparkar boltanum í burtu eftir að hafa brotið af sér.
86. mín
Efraín Juarez, þjálfari gestanna hefur verið mikið að kalla og hrópa á bekk Víkinga og stöðugt að láta í sér heyra og tuða í fjórða dómaranum.
84. mín
Gestirnir reyna að róa leikinn niður
Henda sér niður og eru lengi að taka aukaspyrnur. Þeir hættu einnig við að gera skiptingu á sama tíma og Víkingar en gera hana strax eftir að Ármann kemur inn á.
80. mín
Hreinsað frá
Ekkert hefur komið út úr hornspyrnum Víkinga. Annaðhvort skalla gestirnir frá eða dómarinn dæmir á eitthvað sem enginn sér.
80. mín
Víkingar fá hornspyrnu
Frábært spil upp kantinn hjá Valdimari og Helga en Helgi kemur með frábæran bolta inn á teiginn sem Márk Csinger skallar aftur fyrir.
Niko lúrði fyrir aftan hann tilbúinn að setja boltann í netið.
Niko lúrði fyrir aftan hann tilbúinn að setja boltann í netið.
77. mín
Spyrnan fer af veggnum
Györ menn fá hornpyrnu eftir góða aukaspyrnu sem fór utan í vegginn og aftur fyrir.
76. mín
Gult spjald: Oliver Ekroth (f) (Víkingur R.)
Gult spjald: Oliver Ekroth (f) (Víkingur R.)
Milán Vitális keyrir í gegnum miðju Víkinga og Oliver er næstur á hans vegi en hann stöðvar hann rétt fyrir utan teig Víkings og aukaspyrna á stórhættulegum stað sem Györ fær.
71. mín
Inn:Szabolcs Schön (Györ)
Út:Željko Gavric (Györ)
Fyrsta skipting gestanna. Željko Gavric gengur löturhægt af velli við litla hrifningu Víkinga.
69. mín
Tarik strax mættur!
Tekur fast skot fyrir utan teig eftir skoppandi bolta en Györ menn henda sér fyrir skotið.
69. mín
Inn:Tarik Ibrahimagic (Víkingur R.)
Út:Daníel Hafsteinsson (Víkingur R.)
Daníel flottur í dag en var tæpur fyrir leikinn og Sölvi tekur enga sénsa.
64. mín
Þá fá gestirnir færi
Bumba kemst í góða stöðu inni á teig Víkings og tekur skot sem lekur fram hjá fjærstönginni sem Željko Gavric var nálægt því að pota inn.
63. mín
Györ menn ekkert komist áleiðis í síðari hálfleiknum
Víkingar hafa verið með öll völd og nú vantar bara mark.
59. mín
Frakkinn í brasi
Dómari leiksins hefur ekki alveg verið með hlutina á hreinu, meðal annars kunni hann ekki á nýjar reglur um að leikmenn þurfi að vera mínútu út af vellinum eftir að fá aðhlynningu ásamt nokkrum afar slökum ákvörðunum. Við viljum hærri standard takk.
57. mín
DAUÐAFÆRI AFTUR!!
Víkingar halda áfram að ógna verulega að marki gestanna. Helgi gerir vel og kemur með góðan bolta inn á teiginn sem Valdimar kemur á markið úr afbragðsstöðu en Samuel ver mjög vel og Kalli fær síðan frákastið sem varnarmenn Györ ná að henda sér fyrir.
53. mín
DAUÐAFÆRI OG ENN MEIRA DAUÐAFÆRI!!!
Stórkostlegur bolti inn á teiginn frá Daníeli sem ratar á kollinn á Valdimar rétt fyrir utan markteiginn og skalli hans ratar í þverslánna og niður í teiginn. Frákastið fær Niko með nánast opið markið en skallar boltann fram hjá markinu.
Langlangbesta færi leiksins.
Langlangbesta færi leiksins.
45. mín
Hálfleikur
Markalaust í hálfleik
Víkingar hafa komið vel í þennan leik og verið með yfirhöndina en svarti bletturinn er meiðsli Elíasar sem litu ekki vel út.
45. mín
Aftur vilja Víkingar víti
Helgi kemur með fyrirgjöf sem fer í varnarmann og nokkrir Víkingar tryllast en þetta virðist ekki hafa verið neitt.
45. mín
Daníel Hafsteins!
Fær gott pláss á fjærsvæðinu eftir aukaspyrnu og lætur vaða en boltinn fer í varnarmann og aftur fyrir.
43. mín
Börur komnar á völlinn
Elías haltrar af velli með hjálp sjúkraþjálfara og þarf ekki börurnar og fær gott lófaklapp frá stúkunni.
Vonandi er þetta ekki alvarlegt.
Vonandi er þetta ekki alvarlegt.
40. mín
Elías Már virðist meiðast illa
Þetta lítur ekki vel út. Virtist snúa upp á hnéð og liggur sárþjáður eftir.
40. mín
Besta færi gestanna
Komast í góða stöðu en Oliver Ekroth kemst fyrir skot úr afbragðsstöðu.
38. mín
Víkingar vinna boltann strax aftur!
Langbesta færi leiksins en Óskar rennir boltanum á Elías sem er einn gegn Samuel með boltann við teigslínuna og skýtur í fyrsta en Samuel ver í horn.
38. mín
Víkingar vilja víti!
Elías virtist vera togaður niður eftir mikinn barning inni á teignum en ekkert dæmt.
34. mín
10 mínútur eftir af fyrri hálfleiknum
Víkingar hafa verið með yfirhöndina og verið meira með boltann en Györ hefur varist vel. Lítil sem engin ógn á Ögmund til þessa.
27. mín
Óskar sleppur án spjalds
Bumba labbar fram hjá honum og álitleg skyndisókn gestanna var að fæðast en Óskar togaði Bumba niður en slapp án spjalds.
Frakkinn gaf honum þó viðvörun að næsta skipti yrði spjald.
Frakkinn gaf honum þó viðvörun að næsta skipti yrði spjald.
24. mín
Víkingur fær aukaspyrnu á stórhættulegum stað
Brotið á Danna Hafsteins aðeins hægra megin við markið en Gylfi gerir sig engu að síður líklegan til að taka spyrnuna.
22. mín
Gylfi með skot
Rétt fyrir utan teiginn en það er beint á Samuel sem missir boltann þó aðeins frá sér en nær honum aftur.
20. mín
Fyrsta ógn gestanna
Györ menn komast á milli Óskars og Kalla og síðan kemur hættulegur bolti inn á teiginn.
Aðstoðardómarinn flaggar rangstöðu eftir á og leyfir atvikinu að klárast, þar sem VAR er til taks.
Aðstoðardómarinn flaggar rangstöðu eftir á og leyfir atvikinu að klárast, þar sem VAR er til taks.
16. mín
Víkingar ógna!
Óskar með frábæra takta og klobbar Štefulj og kemur með frábæran bolta á teiginn sem varnarmenn Györ voru í vandræðum með að koma í burtu.
14. mín
Fyrsta hornspyrna leiksins
Og hún er Víkinga eftir gott spil upp völlinn sem endaði með fyrirgjöf frá Kalla sem fór í varnarmann og aftur fyrir.
11. mín
Góð sókn Víkinga
Valdimar með frábæran snúning neðarlega á vellinum og stingur mann og annan af og rennir boltanum síðan á Helga sem var í álitlegri stöðu vinstra megin en sending hans rataði í hendur Samuel í markinu. Víkingar voru vel mannaðir inni á teignum svo aðeins betri bolti frá Helga hefði verið æskilegt.
5. mín
Víkingar hafa haldið í boltann nánast allan tímann
Györ komst í eina fína stöðu en Nfansu Nije tók skot í varnarmann úr erfiðri stöðu. Annars hafa Víkingar byrjað leikinn vel.
2. mín
Strax hætta á teig gestanna!
Víkingar hafa haldið í boltann frá fyrstu sekúndu og í tvígang komist inn á teig Györ. Í síðara skiptið reyndi Gylfi að vippa boltanum yfir Samuel en hann varði frá honum.
Fyrir leik
Vesen á netinu í marki Víkinga...
AD2 hefur tekið eftir einhverju gati en búið að laga!
Fyrir leik
Þetta er að bresta á!
Liðin ganga hér inn á völlinn fyrir framan fulla stúku þar sem stuðningsmenn beggja liða láta vel í sér heyra á meðan hið frækna stef Meistaradeildarinnar er spilað.
Fyrir leik
Breyting á byrjunarliði Víkings
Gunnar Vatnhamar virtist meiðast í upphitun og er farinn inn í búningsklefa. Sveinn Gísli tekur hans sæti í byrjunarliðinu. Sölvi Geir sést hér taka hann á eintal.
Fyrir leik
Liðin mætt út á völl að hita upp
Györ menn skokka hér allir saman út á völl og uppskera gríðarlega góðar móttökur frá sínum stuðningsmönnum. Ungversku stuðningsmennirnir eru mættir í stúkuna og hópa sig saman með alls kyns fána og borða og sjá um að halda stemningunni uppi.
Fyrir leik
Byrjunarlið kvöldsins eru komin inn
Hægt er að sjá þau hér til hliðar en Víkingar endurheimta menn úr meiðslum fyrir stór leik kvöldsins.
Einnig má sjá að Nadhir Benbouali er ekki í leikmannahópi ETO Györ en hann var að sjálfsögðu með Alsíringum á HM þar sem hann skoraði eitt mark. Hann glímir við smávægileg meiðsli en nær líklega seinni leiknum samkvæmt ungverskum fjölmiðlum.
Einnig má sjá að Nadhir Benbouali er ekki í leikmannahópi ETO Györ en hann var að sjálfsögðu með Alsíringum á HM þar sem hann skoraði eitt mark. Hann glímir við smávægileg meiðsli en nær líklega seinni leiknum samkvæmt ungverskum fjölmiðlum.
Fyrir leik
Verður hörkuleikur ef marka má stuðlana
Fyrir leik
Ráð frá landsliðsþjálfaranum
Arnar Gunnlaugsson, fyrrum þjálfari Víkings og núverandi landsliðsþjálfari, ræddi við Fótbolta.net í aðdraganda leiksins. Arnar hefur mikla reynslu úr Evrópueinvígjum en hann stýrði Víkingsliðinu í mörgum leikjum gegn stórum liðum síðustu ár.
Fyrir leik
Frakki á flautunni
Dómari kvöldsins er Frakkinn Romain Lissorgue en hann hefur dæmt í Ligue 1 í Frakklandi frá árinu 2021. Hann hefur dæmt einn leik í forkeppni Meistaradeildar Evrópu en það var síðasta sumar í leik Malmö gegn SK Iberia 1999 Tbilisi. Í þeim leik gaf hann sex gul spjöld og eitt rautt spjald. Síðan verður að sjálfsögðu notast við VAR-tækni ef þörf er á því.

Fyrir leik
Víkingar endurheimta menn
Víkingar fara inn í leikinn á morgun með ansi sterkan leikmannahóp en þeir eru að endurheimta menn eftir erfið meiðsli.
Daði Berg Jónsson gæti verið í hóp í fyrsta sinn í eitt ár að mati Sölva, en hann tjáði sig um málið í samtali við Fótbolta.net.
Hér má sjá það sem Sölvi hafði að segja um stöðuna á hópnum.
Daði Berg Jónsson gæti verið í hóp í fyrsta sinn í eitt ár að mati Sölva, en hann tjáði sig um málið í samtali við Fótbolta.net.

Hér má sjá það sem Sölvi hafði að segja um stöðuna á hópnum.
Fyrir leik
Víkingar sleppa við Alsíringinn knáa
Nadhir Benbouali, kantmaður Györ, var í leikmannahópi Alsírs á HM og skoraði meira að segja eitt mark á mótinu. Víkingar voru að vona að Alsír færi langt í mótinu svo Benbouali yrði ekki með í einvíginu enAlsír datt út í 32-liða úrslitum gegn Sviss. Benbouali er skráður í leikmannahóp Györ hjá UEFA fyrir komandi einvígi en miðlarnir í Ungverjalandi segja kappann þó vera aðeins meiddan og að hann muni ekki spila í kvöld.
M4Sport, fréttamiðill frá Ungverjalandi, segir Alsíringinn ekki vera með í kvöld.

M4Sport, fréttamiðill frá Ungverjalandi, segir Alsíringinn ekki vera með í kvöld.
Fyrir leik
Mótherjar Víkings
ETO Györ eru ungverskir meistarar eftir harða titilbráttu við stærsta lið Ungverjalands, Ferencváros, á síðasta tímabili. Liðið sigraði deildina með einu stigi meira en Ferencváros sem höfðu einokað deildina síðustu ár.
Györ liðið lauk keppni í ungversku deildinni í maí og hafa ekki leikið keppnisleik síðan þá. Liðið er statt á miðju undirbúningstímabili á meðan Víkingar eru sjóðandi heitir um þessar mundir.

Györ liðið lauk keppni í ungversku deildinni í maí og hafa ekki leikið keppnisleik síðan þá. Liðið er statt á miðju undirbúningstímabili á meðan Víkingar eru sjóðandi heitir um þessar mundir.
Fyrir leik
Gríðarlega mikið í húfi fyrir Víkinga
Það er ljóst að það er mikið undir fyrir Víkinga í þessu einvígi. Tapi þeir fyrir Györ þýðir það að liðið fari í 2. umferð í forkeppni Sambandsdeildarinnar og þurfi að vinna þrjú einvígi þar til þess að tryggja sæti í henni í annað sinn í sögu félagsins.
Sigur þýðir hins vegar áframhaldandi ævintýri í forkeppni Meistaradeildarinnar og aðeins eitt einvígi í viðbót sem liðið myndi þurfa að vinna til þess að tryggja sæti í Sambandsdeildinni.
Sigur þýðir hins vegar áframhaldandi ævintýri í forkeppni Meistaradeildarinnar og aðeins eitt einvígi í viðbót sem liðið myndi þurfa að vinna til þess að tryggja sæti í Sambandsdeildinni.
Byrjunarlið:
99. Samuel Petráš (m)
2. Stefan Vladoiu
6. Rajmund Tóth
10. Claudiu Bumba
('90)
('90)
11. Nfansu Njie
('84)
('84)
21. Márk Csinger
23. Daniel Štefulj
24. Miljan Krpic
27. Milán Vitális (f)
80. Željko Gavric
('71)
('71)
90. Kevin Bánáti
Varamenn:
16. Balázs Megyeri (m)
14. Márton Szép
17. Szabolcs Schön
('71)
('71)
20. Barnabás Bíró
('90)
('90)
26. Ádám Umathum
37. Norbert Urblík
47. Ádám Décsy
53. Bálint Selyem
70. Imre Tollár
75. Noel Csorba
76. Jovan Živkovic
96. Marcell Huszár
('84)
('84)
Liðsstjórn:
Efraín Juárez (Þ)
Gul spjöld:
Miljan Krpic ('88)
Márk Csinger ('92)
Rauð spjöld:






