Fotbolti.net
26.06.26 - 16:19
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Víkingar halda með Alsír á HM

Nadhir Benbouali fagnar gegn Jórdan.

Nadhir Benbouali fagnar gegn Jórdan.

Canon

Mynd: EPA

Óskar Borgþórsson, leikmaður Víkings, hefur átt frábært tímabil, er í úrvalsliðið fyrstu ellefu umferða deildarinnar, og var í dag til viðtals í Útvarpsþættinum Fótbolti.net. Hægt er að hlusta á þáttinn í spilaranum neðst.

Óskar var spurður út í komandi Evrópuverkefni hjá Víkingum og þá sagði hann að Víkingar héldu með Alsír á heimsmeistaramótinu, þannig væri umræðan í klefanum.
Útvarpsþátturinn - Sá glaðasti og úrvalslið 1-11
TENGT EFNI

Útvarpsþátturinn - Sá glaðasti og úrvalslið 1-11

Það sé vegna þess að Nadhir Benbouali er í landsliðshópi Alsír. Benbouali er leikmaður ungversku meistaranna í Györ en ungverska liðið mætir Víkingi í fyrstu umferð forkeppninnar í Meistaradeildinni. Ef Alsír fer áfram úr riðlakeppninni á HM gæti það haft áhrif á það hvort Benbouali spili með ungverska liðinu gegn Víkingum.

32-liða úrslit HM fara fram 29. júní-3. júlí. Alsír þarf líklega að ná í að minnsta kosti eitt stig gegn Austurríki í lokaumferð riðlakeppninnar til að fara áfram úr riðlinum. Sá leikur fer fram aðfaranótt sunnudags. Liðið er sem stendur með þrjú stig í J-riðli og markatöluna -2. Benbouali spilaði seinni hálfleikinn gegn Jórdan og skoraði jöfnunarmark Alsíringa í leik sem endaði með 2:1 sigri Alsír. Það var hans fimmti landsleikur og annað landsliðsmarkið.

Benbouali er 26 ára framherji sem hefur skorað 22 mörk í 56 deildarleikjum fyrir Györ. Györ endaði með stigi meira en stórliðið Ferencvaros á síðasta tímabili og einungis tveir leikmenn skoruðu fleiri mörk en Benbouali sem var markahæsti leikmaður meistaranna á síðasta tímabili með 15 mörk í deildinni.

Víkingur tekur á móti Györ þriðjudaginn 7. júlí í fyrri leik liðanna og þau mætast svo viku seinna í Ungverjalandi.
Í leik með Györ í forkeppni Sambandsdeildarinnar á síðasta tímabili.

Í leik með Györ í forkeppni Sambandsdeildarinnar á síðasta tímabili.

Canon

Mynd: EPA

Útvarpsþátturinn - Sá glaðasti og úrvalslið 1-11

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.