Arsenal og Tottenham sýna Nusa áhuga - Chelsea með augastað á samningslausum Vlahovic - Tvísýnt með framtíð Rashford
Forkeppni Sambandsdeildarinnar
Stjarnan
LL 3
1
Víkingur Götu
Besta kvenna
Fram
LL 3
2
Breiðablik
Besta kvenna
Þór/KA
LL 1
0
Gri/Nja
Besta kvenna
FH
LL 7
3
Þróttur R.
Besta kvenna
Víkingur R.
LL 1
3
ÍBV
Þór/KA
1
0
Gri/Nja
Margrét Árnadóttir '3 1-0
09.07.2026  -  19:15
VÍS völlurinn
Besta kvenna
Dómari: Sveinn Arnarsson
Áhorfendur: 93
Byrjunarlið:
12. Alessandra Dorothy Augur (m)
2. Angela Mary Helgadóttir
4. María Dögg Jóhannesdóttir
5. Karen Hulda Hrafnsdóttir
6. Hildur Anna Birgisdóttir
7. Amalía Árnadóttir
9. Karen María Sigurgeirsdóttir ('67)
11. Arna Sif Ásgrímsdóttir (f)
14. Margrét Árnadóttir
22. Hulda Ósk Jónsdóttir ('81)
26. Erin Flurey ('81)
- Meðalaldur 24 ár

Varamenn:
1. Harpa Jóhannsdóttir (m)
3. Ásta Ninna Reynisdóttir
8. Birgitta Rún Finnbogadóttir
10. Elísa Bríet Björnsdóttir ('67)
17. Emelía Ósk Kruger ('81)
18. Bríet Jóhannsdóttir ('81)
19. Agnes Birta Stefánsdóttir
25. Emelía Blöndal Ásgeirsdóttir
27. Aníta Ingvarsdóttir
- Meðalaldur 20 ár

Liðsstjórn:
Jóhann Hilmar Hreiðarsson (Þ)
Aðalsteinn Jóhann Friðriksson (Þ)
Iðunn Elfa Bolladóttir (Sjúkraþj.)
Aron Birkir Stefánsson (MÞ)
Halla Bríet Kristjánsdóttir (Leikmaður utan hóps)
Hulda Björg Hannesdóttir (Leikmaður utan hóps)
Sigurbjörn Bjarnason (Styrktarþj.)
Bríet Fjóla Bjarnadóttir (Leikmaður utan hóps)

Gul spjöld:
Hildur Anna Birgisdóttir ('75)
Bríet Jóhannsdóttir ('93)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Þór/KA vinnur sinn annan leik í röð! Grindavík/Njarðvík bankaði nokkuð fast en náði ekki inn marki.
95. mín
Færi og svo horn! Augur nær ekki að grípa boltann.
94. mín
Natasha fær mjöööög ódýra aukaspyrnu. Séns fyrir gestina.
93. mín Gult spjald: Bríet Jóhannsdóttir (Þór/KA)
93. mín
Gengur illa hjá gestunum að byggja upp sóknir núna í lok leiks.
91. mín
Fjórum mínútum bætt við
88. mín Gult spjald: Ása Björg Einarsdóttir (Gri/Nja)
Sýndist það vera Ása sem fékk spjaldið.
87. mín
Inn:Katrín Lilja Ármannsdóttir (Gri/Nja) Út:Sophia Faith Romine (Gri/Nja)
87. mín
Inn:Brynja Pálmadóttir (Gri/Nja) Út:Júlía Rán Bjarnadóttir (Gri/Nja)
86. mín
Dauðafæri Amalía Árnadóttir í dauðafæri!

Setur boltann yfir í upplögðu marktækifæri.
85. mín
Skot fyrir utan teig frá gestunum sem fer framhjá.
81. mín
Darraðadans inn á vítateig Þórs/KA, Ellie Coffield reynir svo að lyfta boltanum í netið en setur boltann yfir.
81. mín
Inn:Bríet Jóhannsdóttir (Þór/KA) Út:Erin Flurey (Þór/KA)
81. mín
Inn:Emelía Ósk Kruger (Þór/KA) Út:Hulda Ósk Jónsdóttir (Þór/KA)
77. mín
Sophia á skalla sem fer ofan á markið. Ná gestirnir að jafna?
75. mín Gult spjald: Hildur Anna Birgisdóttir (Þór/KA)
Pínu óheppin, renndi sér og missti smá stjórn á tæklingunni, fór samt mikið í boltann sýndist mér.
72. mín
Skot frá gestunum sem Augur handsamar. Grindavík/Njarðvík er að spila vel en Þór/KA er að þrauka.
71. mín
Bakvörðurinn Angela Mary er í smá brasi með Ásu Björgu, kantmaðurinn átt mjög góðan seinni hálfleik.
69. mín
Gestirnir taka hornspyrnu stutt og Sophia á svo skot úr D-boganum sem Arna Sif hreinsar í burtu.
67. mín
Inn:Elísa Bríet Björnsdóttir (Þór/KA) Út:Karen María Sigurgeirsdóttir (Þór/KA)
62. mín
Ása Björg með tilraun sem Arna Sif hreinsar burt með skalla. Hægara sagt en gert að ná skoti framhjá Örnu í þessu færi.
61. mín
Angela með tilraun af löngu færi sem fer rétt yfir mark gestanna.
60. mín Gult spjald: Sigríður Emma F. Jónsdóttir (Gri/Nja)
59. mín
Ása Björg dettur í teig Þórs/KA eftir að Angela reyndi við boltann. Ása með veikt kall eftir vítaspyrnu.
58. mín
Hildur Anna þræðir boltann í hlaupalínu Erin sem er að sleppa í gegn við miðlínu. Sigríður Emma heldur í við framherjann og truflar skotið sem Erin tók mjög snemma og boltinn fer framhjá.
56. mín
Ellie Coffield með skot úr D-boganum sem Alessandra Dorothy Augur ver.
55. mín
Hár bolti inn á teig Þórs/KA, brot dæmt á gestina og Arna Sif liggur aðeins eftir.
54. mín
Grindavík/Njarðvík kemst í hraða sókn, boltinn færist út til hægri og Ása á fastan bolta sem Emma Nicole missir af.

Skömmu síðar eiga gestirnir tilraun fyrir utan teig sem fer hátt yfir. Þær eru aðeins að banka!
52. mín
Flott sókn Flottur sprettur upp vinstri kantinn hjá Hildi Katrínu, hún finnur Emmu Nicole en skalli hennar fer framhjá nærstönginni.
50. mín
Hildur Anna með skalla sem Genevieve nær ekki að grípa en Natasha nær svo að hreinsa úr teignum.
49. mín
Tvær fyrirgjafir inn á teig heimakvenna en engin tilraun, gestirnir byrja seinni hálfleikinn af fínum krafti.
48. mín
Há fyrirgjöf sem Augur slær að óþörfu aftur fyrir og í horn fyrir gestina.
46. mín
Seinni hálfleikur hafinn
45. mín
Hálfleikur
Dúnalogn núna og þá mæta flugurnar, get ég fengið smá golu takk?
45. mín
Hálfleikur
93 áhorfendur á vellinum
45. mín
Hálfleikur
Það er kominn hálfleikur í Þorpinu. Þór/KA leiðir 1-0.
41. mín
Aukaspyrna á hættulegum stað, fastur bolti frá Hildi og Margrét á skalla sem fer rétt framhjá.
38. mín
Emma með skalla en Alessandra Augur vandanum vaxinn í marki heimakvenna.
35. mín
Finnst gestirnir svolítið ofan á, en færin láta bíða eftir sér. Eitt fínt færi komið en það náðist ekki skot á markið úr því.
32. mín
Þór/KA tekur of langan tíma í innkast og Sveinn dæmir gestunum boltann.
25. mín
Uppstilling Gri/Nja Genevieve
Júlía - Sigríður Emma - Natasha - Rakel
Ellie - Hannah
Ása Björg - Sophia - Hildur
Emma
19. mín
Bras á Augur í marki Þórs/KA, laus bolti við vítateigslínu en þetta reddast fyrir heimakonur.
13. mín
Uppstilling Þórs/KA Augur
María Dögg - Karen Hulda - Arna Sif - Angela
Hildur - Margrét
Hulda Ósk - Karen María - Amalía
Erin
7. mín
Sophia Faith Romine í góðum séns, hálf í gegn við vítateigslínuna, en setur boltann rétt framhjá nærstönginni á marki heimakvenna.
6. mín
Laus bolti inn á teignum sem Erin reynir við en Genevieve Jae Crenshaw nær að henda sér á boltann og handsama hann.
3. mín MARK!
Margrét Árnadóttir (Þór/KA)
Stoðsending: Hildur Anna Birgisdóttir
Fyrsta markið komið! Bolti inn á teiginn frá Hildi sem tók aukaspyrnuna. Margrét hittir ekki boltann almennilega í fyrstu sveiflu, en nær annarri og setur boltann örugglega í netið af stuttu færi.

Þór/KA leiðir!
3. mín
Erin Flurey vinnur aukaspyrnu á góðum stað fyrir Þór/KA.
1. mín
Leikur hafinn
Þór/KA byrjar með boltann Þetta er farið af stað!
Fyrir leik
Leikmenn ganga inn á völlinn Heimakonur spila í svörtum búningum og gestirnir spila í hvítum treyjum.
Fyrir leik
Þrjár breytingar hjá gestunum Ellie Coffield, Júlía Rán Bjarnadóttir og Rakel Sigurðardóttir koma inn í lið gestanna frá jafnteflinu gegn Víkingi.

Rúmar tvær vikur eru frá síðustu umferð en hlé var á Bestu deildinni vegna þátttöku U19 landsliðsins á EM.
Fyrir leik
Ein breyting á liði Þórs/KA Karen María kemur inn fyrir Elísu Bríeti sem tekur sér sæti á bekknum. Ásta Ninna kemur þá inn í hópinn.
Fyrir leik
Dropar aðeins Það er smá gola og það hefur aðeins dropað, en ekki hægt að kalla þetta rigningu. Það eru einhverjar tólf gráður í stúkunni.
Fyrir leik
Þriðja liðið Sveinn Arnarsson er með flautuna í kvöld og honum til aðstoðar eru þau Sváfnir Ragnarsson og Leyla Ósk Jónsdóttir.

Fjórði dómari er Aðalsteinn Tryggvason og Tryggvi Þór Gunnarsson er eftirlitsmaður.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Staðan í deildinni og gengi liðanna Heimakonur í Þór/KA sitja í 9. sæti deildarinnar sem eru mikil vonbrigði. Liðið vann sinn fyrsta sigur í síðustu umferð þegar Þróttur kom í heimsókn en fyrir það var liðið einungis með þrjú stig.

Grindavík/Njarðvík, sem kom upp úr Lengjudeildinni síðasta haust, situr í 6. sæti með sex stigum meira en Þór/KA. Nýliðarnir hafa einungis unnið einn af síðustu fimm en eru komnir í undanúrslit Mjólkurbikarsins.

Fyrri leikur liðanna endaði með 2-1 endurkomu sigri Suðurnesjakvenna en sigurmarkið kom undir lok leiks.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Thelma Karen spáir útisigri Landsliðskonan Thelma Karen Pálmadóttir spáir í leiki umferðarinnar.

Þór/KA 0 - 2 Grindavik/Njarðvík
Frekar rólegur leikur en Grindavík/Njarðvík með yfirhöndina mest megnis af leiknum. Markalaust í hálfleik. Hildur skorar svo banger í seinni hálfleik eftir að hafa sólað fjórar og skorar svo annað mark í lok leiks

Fyrir leik
Velkomin á VÍS völlinn Góða kvöldið lesendur góðir og verið þið velkomnir í beina textalýsingu frá leik Þórs/KA og Grindavíkur/Njarðvíkur í 10. umferð Bestu deildar kvenna.

Leikurinn hefst klukkan 19:15 og fer fram á VÍS vellinum á Akureyri.
Byrjunarlið:
14. Genevieve Jae Crenshaw (m)
2. Ellie Coffield
5. Natasha Anasi
12. Hannah McLaughlin
17. Sophia Faith Romine ('87)
18. Ása Björg Einarsdóttir
19. Rakel Sigurðardóttir
22. Sigríður Emma F. Jónsdóttir (f)
23. Júlía Rán Bjarnadóttir ('87)
27. Hildur Katrín Snorradóttir
28. Emma Nicole Phillips
- Meðalaldur 22 ár

Varamenn:
3. Brynja Pálmadóttir ('87)
4. Rakel Rós Unnarsdóttir
6. Rut Sigurðardóttir
8. Katrín Lilja Ármannsdóttir ('87)
11. Eydís María Waagfjörð
13. Lea Björt Kristjánsdóttir
15. Tinna Hrönn Einarsdóttir
16. Viktoría Sól Sævarsdóttir
- Meðalaldur 22 ár

Liðsstjórn:
Gylfi Tryggvason (Þ)
Lily Anna Farkas (Leikmaður utan hóps)
Þorsteinn Magnússon (MÞ)
Lúðvík Már Matthíasson (Sjúkraþj.)
Klara Bjarnadóttir (Forráðam.)
Armandas Leskys (AÞ)

Gul spjöld:
Sigríður Emma F. Jónsdóttir ('60)
Ása Björg Einarsdóttir ('88)

Rauð spjöld: