Fotbolti.net
09.07.26 - 16:40
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Spámaður

Thelma Karen spáir í 10. umferð Bestu kvenna

Thelma Karen Pálmadóttir.

Thelma Karen Pálmadóttir.

Canon

Mynd: KSÍ

Besta deild kvenna snýr aftur í kvöld eftir nokkra vikna hlé á meðan EM U19 landsliða fór fram.

Það eru fjórir áhugaverðir leikir á dagskrá í kvöld og umferðin klárast svo á morgun. Við fengum Thelmu Karen Pálmadóttur, efnilegasta leikmann deildarinnar frá því í fyrra, til að spá í spilin. Hún spilar í dag með Häcken í Svíþjóð.
Víkingur R. 2 - 2 ÍBV (18:00 í kvöld)
Víkingur kemst í 2-0 en einhvernveginn ná Eyjakonur að koma með gott comeback og jafna leikinn. Frekar ómerkilegur leikur

Þór/KA 0 - 2 Grindavik/Njarðvík (19:15 í kvöld)
Frekar rólegur leikur en Grindavík/Njarðvík með yfirhöndina mest megnis af leiknum. Markalaust í hálfleik. Hildur skorar svo banger í seinni hálfleik eftir að hafa sólað fjórar og skorar svo annað mark í lok leiks

FH 3 - 1 Þróttur R. (19:15 í kvöld)
Klárlega leikur umferðarinnar! Spennandi barrátta! Leikurinn byrjar frekar jafn þangað til að Ingibjörg skorar fyrsta markið. Einstefna hjá Hafnfirðingum eftir það. FH hendir í annað mark. Þróttar minnka muninn í seinni hálfleik og setja smá spennu í leikinn en ekki í langan tíma því Haffa klárar leikinn.

Fram 0 - 2 Breiðablik (19:15 í kvöld)
Blikar miklu sterkari í þessum leik enda með betra lið. Tekur smá tíma hjá blikunum að brjóta Frammara en ná að skora tvö góð mörk þó þær hefðu getað skorað sjö í viðbót.

Valur 1 - 0 Stjarnan (18:00 á morgun)
Nú kviknar á Valskonum! Hafa fengið á sig tvö mörk í síðustu fimm leikjum og Stjörnukonur munu ekki ná að brjóta Valsliðið. Mark Vals kemur í lok seinni hálfleiks og það er að sjálfsögðu Aufí.

Fyrri spámenn:
Arnar Páll (5 réttir)
Aldís Kara (4 réttir)
Ásta Eir (4 réttir)
Fanndís Friðriks (3 réttir)
Mist Rúnars (3 réttir)
Katrín Ásbjörns (3 réttir)
Arna Eiríks (2 réttir)
Magnús Haukur (2 réttir)
Jóhann Fjalar (1 réttur)
Thelma spáir marki frá Ingibjörgu.

Thelma spáir marki frá Ingibjörgu.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Arnfríður Auður, betur þekkt sem Aufí.

Arnfríður Auður, betur þekkt sem Aufí.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Breiðablik16+2636
2FH16+2333
3Stjarnan16+626
4ÍBV16-324
5Grindavík/Njarðvík16-222
6Þróttur R.16-321
7Þór/KA16-318
8Valur16-1216
9Fram16-1716
10Víkingur R.16-1514
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.