Besta karla
FH
LL
2
0
0
Valur
Besta karla
Fram
LL
6
1
1
Þór
Besta karla
KA
LL
3
2
2
ÍA
Besta karla
KR
LL
5
2
2
ÍBV

KR
5
2
ÍBV

0-1
Omar Sowe
'4
Aron Sigurðarson
'24
, víti
1-1
Arnór Ingvi Traustason
'28
2-1
Aron Sigurðarson
'58
3-1
Orri Hrafn Kjartansson
'60
4-1
Eiður Gauti Sæbjörnsson
'68
5-1
5-2
Vicente Valor
'76
, víti
12.07.2026 - 18:00
Meistaravellir
Besta karla
Aðstæður: Vindasamt
Dómari: Ívar Orri Kristjánsson
Áhorfendur: 927
Maður leiksins: Aron Sigurðarson
Meistaravellir
Besta karla
Aðstæður: Vindasamt
Dómari: Ívar Orri Kristjánsson
Áhorfendur: 927
Maður leiksins: Aron Sigurðarson
Byrjunarlið:
12. Halldór Snær Georgsson (m)
7. Finnur Tómas Pálmason
9. Eiður Gauti Sæbjörnsson
('70)
('70)
11. Aron Sigurðarson (f)
('70)
('70)
17. Luke Rae
22. Ástbjörn Þórðarson
23. Arnór Ingvi Traustason
26. Hrafn Tómasson
28. Hjalti Sigurðsson
45. Galdur Guðmundsson
('84)
('84)
77. Orri Hrafn Kjartansson
- Meðalaldur 26 ár
Varamenn:
1. Sigurpáll Sören Ingólfsson (m)
8. Stefán Árni Geirsson
('70)
('70)
15. Gyrðir Hrafn Guðbrandsson
18. Jón Ernir Ragnarsson
20. Tristan Gauti Línberg Arnórsson
24. Fannar Heimisson
('84)
('84)
29. Aron Þórður Albertsson
30. Sigurður Breki Kárason
('70)
('70)
33. Birgir Kjartan Ísleifsson
- Meðalaldur 21 ár
Liðsstjórn:
Óskar Hrafn Þorvaldsson (Þ)
Hilmar Árni Halldórsson (AÞ)
Guðmundur Óskar Pálsson (Leikgr.)
Magnus Börheim (Sjúkraþj.)
Björn Valdimarsson (Forráðam.)
Lúðvík Júlíus Jónsson (Liðsstj.)
Guðjón Örn Ingólfsson (Styrktarþj.)
Jamie Paul Brassington (MÞ)
Gul spjöld:
Ástbjörn Þórðarson ('25)
Rauð spjöld:
Leik lokið!
Sannfærandi sigur heimamanna
KR vinnur 5-2 sigur á ÍBV í stórskemmtilegum leik.
Skýrsla og viðtöl væntanleg síðar í kvöld. Ég þakka fyrir mig.
Skýrsla og viðtöl væntanleg síðar í kvöld. Ég þakka fyrir mig.
86. mín
Fannar nálægt því að skora strax!
Fær boltann í gegn frá Orra Hrafni og tekur skot í fjærhornið sem Ari ver vel.
84. mín
Inn:Fannar Heimisson (KR)
Út:Galdur Guðmundsson (KR)
15 ára Fannar að koma inn á.
83. mín
Skalli frá Alex Frey
Eyjamenn reyna að bæta við öðru marki þessa stundina en Alex fékk fínasta skallafæri en náði ekki að setja boltann á markið.
76. mín
Mark úr víti!
Mark úr víti!Vicente Valor (ÍBV)
Vinstri fótur vinstra horn
Öruggt víti og sendir Halldór í vitlaust horn.
73. mín
KR-ingar sækja hratt!
Orri með gott hlaup og tekur skotið í varnarmann, þá hrekkur boltinn á Ástbjörn sem skýtur einnig í varnarmann en boltinn aftur fyrir endamörk.
68. mín
MARK!
MARK!Eiður Gauti Sæbjörnsson (KR)
Eiður Gauti kemst loksins á blað!
Fær boltann inni í teig Eyjamanna og tekur hann vel með sér og klárar með vinstri í nærhornið.
Var búinn að fá nokkur færi en tekst loksins að skora.
5-1!!
Var búinn að fá nokkur færi en tekst loksins að skora.
5-1!!
65. mín
Leikurinn talsvert opinn þessa stundina
Eyjamenn eru ekki hættir og eru að leita að marki en KR-ingar sækja hratt við hvert tilefni.
60. mín
MARK!
MARK!Orri Hrafn Kjartansson (KR)
ORRI ER AÐ KLÁRA LEIKINN!
Markið kom upp úr innkasti en boltinn fellur fyrir Orra í teignum og hann neglir honum bara í markið. Vel klárað og nú ættu KR-ingar að vera nokkuð öruggir með stigin þrjú.
58. mín
MARK!
MARK!Aron Sigurðarson (KR)
Að sjálfsögðu sýtur hann bara!!
Frábær spyrna sem fer rakleiðis uppi í fjærhornið en vinkillinn var nokkuð þröngur. Enn og aftur sýnir fyrirliðinn mikil gæði og kemur KR í 3-1.
57. mín
Gult spjald: Eiður Atli Rúnarsson (ÍBV)
Gult spjald: Eiður Atli Rúnarsson (ÍBV)
Brýtur á Aroni Sig við teig Eyjamanna. Aron gerir sig kláran í að koma með fyrirgjöf.
56. mín
Dauðafæri hjá KR!!
Finnur Tómas mættur í fremstu línu og rennir boltanum í gegn á Eið Gauta sem er einn á móti Ara en setur boltann fram hjá.
52. mín
KR-ingar liggja á Eyjamönnum
Eru með þá í þessum frægu köðlum þessar upphafsmínútur síðari hálfleiks.
50. mín
ORRI HRAFN!!!
Með þvílíka neglu með vinstri fæti sem virtist vera á leiðinni í skeytin en rétt fer af varnarmanni og aftur fyrir.
48. mín
KR fær horn
Luke Rae gerði vel og kom boltanum á Galdur sem var í fínu færi en Eyjamenn komast fyrir skot hans.
46. mín
Gult spjald: Bjarki Björn Gunnarsson (ÍBV)
Gult spjald: Bjarki Björn Gunnarsson (ÍBV)
Langur bolti strax úr miðjunni sem Bjarki Björn eltir en Halldór Snær er á undan í boltann og Bjarki virðist fara aðeins í Halldór.
Spjaldaður 10 sekúndum eftir upphafsflaut síðari hálfleiksins!
Spjaldaður 10 sekúndum eftir upphafsflaut síðari hálfleiksins!
45. mín
Hálfleikur
KR leiðir 2-1 í hálfleik
Fjörugum fyrri hálfleik lokið. Tökum okkur 15 mínútna hlé.
45. mín
Stórhætta!
Seinasta spyrna leiksins kemur frá Aroni Sig en boltinn lekur í gegnum allan pakkan og sleikir fjærstöngina og fer aftur fyrir.
45. mín
Fyrsta hornspyrna leiksins
Aron Sig með skot sem fer í varnarmann og aftur fyrir.
43. mín
Vel spilað!
Felix kemur með góðan bolta inn fyrir á Sesar sem missir hann aðeins of langt frá sér og Finnur Tómas hreinsar.
40. mín
Gult spjald: Milan Tomic (ÍBV)
Gult spjald: Milan Tomic (ÍBV)
Í þriðju skyndisókninni á sömu mínútunni reynir Tomic að stöðva Arnór Ingva en tekst það ekki þar sem Ívar Orri beitti hagnaði og spjaldaði hann síðan eftir á.
39. mín
Fram og til baka þessa stundina!
Bæði lið sækja en hvorugt lið nær að komast í alvöru færi.
33. mín
Eyjamenn hóta
Omar Sowe nálægt því að koma boltanum yfir Halldór í marki KR sem var kominn langt út á móti en hann nær til boltans og kemur í veg fyrir mark frá Eyjamönnum.
28. mín
MARK!
MARK!Arnór Ingvi Traustason (KR)
Stoðsending: Eiður Gauti Sæbjörnsson
Stoðsending: Eiður Gauti Sæbjörnsson
Frábært spil hjá KR!!!
Aron Sig kom með góðan bolta á Eið Gauta inni á teig Eyjamanna sem var með varnarmann í bakinu og kom honum í fyrstu snertingu á Arnór sem kláraði á lofti einnig í fyrsta í nærhornið.
Virkilega flott mark hjá KR-ingum og þeir komnir yfir!
Virkilega flott mark hjá KR-ingum og þeir komnir yfir!
26. mín
Eyjamenn fá færi!
Komast í góða stðu á teig KR en skotið fer fram hjá markinu frá Vicente Valor.
24. mín
Mark úr víti!
Mark úr víti!Aron Sigurðarson (KR)
Fyrirliðinn með allt á hreinu!
Góð spyrna niðri í vinstra hornið. Ari fer í rétt horn en nær ekki til boltans.
23. mín
KR fær víti!
Aron Sig tæklaður í teignum eftir vesen í vörn Eyjamanna. Ari í markinu tapaði boltanum og Luke renndi honum á Aron sem var tekinn niður.
19. mín
Eyjamenn ógna
Frábær bolti inn fyrir vörnina frá Felix sem Milan Tomic og Vicente Valor voru báðir að elta en Tomic rennir honum á Valor sem nær ekki að pota boltanum á markið.
18. mín
Luke Rae!
Með gríðarlega skemmtilegt skot sem var á leið upp í vinstri skeytin en Ari i Haraldstovu greip bara boltann!
17. mín
Leikurinn hefur aðeins róast
KR-ingar sóttu mikið eftir mark Eyjamanna en síðustu mínútur hafa einkennst af miklu miðjumoði og vindurinn spilar þar inn í.
9. mín
KR-ingar mjög líklegir þessa stundina!
Luke Rae kemur með fasta fyrirgjöf sem Ari slær á Galdur á fjærsvæðinu sem tekur skot sem fer rétt yfir markið.
7. mín
Aftur Arnór Ingvi
Ástbjörn Þórðar með skemmtilega hreyfingu og kemst fram hjá Felix og kemur með sendingu á Arnór sem er í miðjum teignum en skýtur rétt fram hjá nærstönginni.
6. mín
Fyrsta færi KR
Góður bolti inn á teiginn frá Galdri sem Arnór Ingvi skallar fast á markið en Ari grípur hann.
4. mín
MARK!
MARK!Omar Sowe (ÍBV)
Stoðsending: Felix Örn Friðriksson
Stoðsending: Felix Örn Friðriksson
EYJAMENN BYRJA MEÐ LÁTUM!
Luke Rae með lélega sendingu sem Eyjamenn komast inn í og allt er galopið á vinstri væng Eyjamanna. Omar Sowe fær boltann frá Felix við teig KR og lætur vaða niðri í nærhornið.
KR-ingar kærulausir og Eyjamenn refsa. 0-1!
KR-ingar kærulausir og Eyjamenn refsa. 0-1!
2. mín
Varamannaskýlin hinum megin í dag
Varamannaskýlin á Meistaravöllum eru stúku megin í dag og koma í veg fyrir að hægt sé að sitja í neðstu röðum stúkunnar fyrir aftan þau. Vallarþulur segir að það sé vegna veðurs.
Fyrir leik
Vindasamt í Vesturbænum
Það er hvasst hér á Meistaravöllum og spurning hvort það muni hafa áhrif á leikinn en liðin eru að ganga inn á völlinn svo þetta er alveg að bresta á!
Fyrir leik
Leikir KR eru yfirleitt markamiklir
KR -1,5 á Epic er gott veðmál en það eru engar líkur a því að KR vinni 2-0 svo eg ætla í KR yfir 2,5 mörk á stuðlinum 1,73.
— Kristalkúlan (@kristalkulan) July 12, 2026
Fyrir leik
Byrjunarliðin eru komin inn
Það sem vekur athygli er að Óskar Hrafn gerir aftur markvarðarbreytingu en Sigurpáll Sören fer út úr liðinu eftir erfiðan leik gegn Þór og Halldór er mættur aftur í markið. Óskar gerir einnig þrjár aðrar breytingar en inn frá síðasta leik koma þeir Eiður Gauti, Ástbjörn Þórðar og Hjalti Sig.
Linta gerir eina breytingu en Omar Sowe kemur inn fyrir Róbert Elís.
Linta gerir eina breytingu en Omar Sowe kemur inn fyrir Róbert Elís.
Fyrir leik
Fyrsti leikurinn án Amins
Amin Cosic var seldur út til Viking í Noregi á dögunum en hann spilaði sinn síðasta leik fyrir KR gegn Þór í síðustu umferð.
Það sem vakti athygli var að Amin sást traðka á leikmanni Þórs en dómari leiksins missti af því en aganefnd úrskurðaði hann í eins leiks leikbann sem hann mun þá taka út eftir einhver ár líklega.

Það sem vakti athygli var að Amin sást traðka á leikmanni Þórs en dómari leiksins missti af því en aganefnd úrskurðaði hann í eins leiks leikbann sem hann mun þá taka út eftir einhver ár líklega.
Fyrir leik
Rosalegur leikur fyrr á tímabilinu
Liðin mættust í 3. umferð deildarinnar á Hásteinsvellinum þar sem leiknum lauk með 2-6 útisigri KR-inga. KR var komið í 0-6 eftir rúmar 60 mínútur en Eyjamenn potuðu inn tveimur mörkum og löguðu aðeins stöðuna. Eins og áður sagði byrjuðu Eyjamenn tímabilið hrikalega illa en spurning hvernig þeir mæta til leiks í dag.

Fyrir leik
Dómarateymið
Ívar Orri Kristjánsson er dómari leiksins en honum til aðstoðar eru þeir Birkir Sigurðarson og Gylfi Már Sigurðsson. Fjórði dómari er Arnar Þór Stefánsson og dómaraeftirlitsmaður er Einar Örn Daníelsson.

Fyrir leik
ÍBV
ÍBV kemur á fljúgandi siglingu inn í þennan leik en liðið er í 8. sæti með 15 stig eftir 13 leiki. Það sem er merkilegt að athuga er að eftir fyrstu sjö umferðir Bestu deildarinnar var ÍBV með eitt stig en í síðustu sex leikjum hefur liðið náð í 14 stig. Í síðustu umferð vann liðið 1-0 sigur á Val þar sem Valsliðið var án Hermanns Hreiðarsonar í fyrsta sinn á tímabilinu.

Fyrir leik
KR
Eins og flestir vita fóru KR-ingar ansi vel af stað í Bestu deildinni í ár en hefur aðeins fatast flugið í síðustu leikjum. Liðið er enn í 2. sæti, Fram er tveimur stigum á eftir þeim með leik til góða, en liðið er núna 11 stigum á eftir toppliði Víkings. KR er með 29 stig eftir 14 leiki en liðið hefur aðeins sótt fjögur stig í síðustu fjórum leikjum. Í síðustu umferð gerði liðið ótrúlegt 3-3 jafntefli gegn Þór á Akureyri þar sem Þór komst í 3-0 eftir 14 mínútur.

Byrjunarlið:
33. Ari i Haraldstovu Petersen (m)
4. Mattias Edeland
6. Milan Tomic
('66)
('66)
7. Sesar Örn Harðarson
('66)
('66)
8. Bjarki Björn Gunnarsson
('66)
('66)
22. Eiður Atli Rúnarsson
23. Arnór Ingi Kristinsson
25. Alex Freyr Hilmarsson (f)
('85)
('85)
26. Felix Örn Friðriksson
30. Vicente Valor
67. Omar Sowe
('66)
- Meðalaldur 26 ár
('66)
Varamenn:
2. Sigurður Arnar Magnússon
3. Alexander Örn Friðriksson
5. Sturla Sagatun-Kristjánsson
('66)
('66)
10. Viggó Valgeirsson
('66)
('66)
11. Þorri Heiðar Bergmann
14. Arnar Breki Gunnarsson
('66)
('66)
16. Sigurður Valur Sigursveinsson
('85)
('85)
42. Pisco
('66)
- Meðalaldur 22 ár
('66)
Liðsstjórn:
Aleksandar Linta (Þ)
Jakob Fannar Möller (Liðsstj.)
Óskar Elías Zoega Óskarsson (AÞ)
Filipe Andre Alexandre Machado (MÞ)
Branisalv Bajic (AÞ)
Elías Árni Jónsson (Styrktarþj.)
Elías J Friðriksson (Sjúkraþj.)
Gul spjöld:
Milan Tomic ('40)
Bjarki Björn Gunnarsson ('46)
Eiður Atli Rúnarsson ('57)
Mattias Edeland ('90)
Rauð spjöld:











