Fyrir leik
Góða kvöldið og verið hjartanlega velkomin í beina textalýsingu frá leik Fjölnis og Breiðablik í pepsídeild karla. Leikurinn hefst kl. 19:15 verður vonandi hressandi stemmning í voginum í kvöld.
Fyrir leik
Það er hreint út sagt snilldar veður. Sól og sumar og því tilvalið að smella sér á leik og styðja sitt lið. Um að gera að nýta sólardaginn því ekki hafa þeir verið margir í sumar.
Fyrir leik
Heimamenn í Fjölni spiluðu við Valsmenn í síðustu umferð og töpuðu þeim leik 4 - 3. Eru þeir í 8 sæti með 14 stig eftir 14 umferðir.
Fyrir leik
Breiðablik tók á móti Keflavík í síðustu umferð og fór sá leikur 4 - 4 og sitja Blikar í 9 sæti deildarinnar með 14 stig einnig líkt og Fjölnir.
Fyrir leik
Í síðustu umferð spiluðu bæði þessi lið leiki sem enduðu í markasúpu eins og sjá má hér að neðan. Vonandi að framhald verði á markaskorun í kvöld.
Fyrir leik
Guðmundur Benediktsson, þjálfari Breiðabliks, var ómyrkur í máli eftir síðasta leik þar sem liðið gerði 4-4 jafntefli gegn Keflavík.
Hann gerir fjórar breytingar á byrjunarliði sínu frá þeim leik.
Út frá síðasta leik fara Gísli Páll Helgason, Ellert Hreinsson, Andri Rafn Yeoman. Inn koma Damir Muminovic, Elfar Árni Árna Aðalsteinsson og Baldvin Sturluson,
Hann gerir fjórar breytingar á byrjunarliði sínu frá þeim leik.
Út frá síðasta leik fara Gísli Páll Helgason, Ellert Hreinsson, Andri Rafn Yeoman. Inn koma Damir Muminovic, Elfar Árni Árna Aðalsteinsson og Baldvin Sturluson,
Fyrir leik
Það er gríðarlega mikil sól í Grafarvoginum sem skín beint á blaðamannastúkuna. Það eru ekki bestu vinnuskilyrðin að hafa sólina í augunum og erfitt er að sjá á tölvuskjáinn. Þannig að ef stafsetningavillur slæðast með að þá er ekki um að kenna vanhæfni blaðamanns.
Fyrir leik
Ágúst Þór Gylfasson þjálfari Fjölnis gerir tvær breytingar á sínu liði. Út hjá þeim fara Árni Kristinn Gunnarsson og Guðmundur Böðvar Guðjónsson. Inn koma Aron Sigurðarson og Gunnar Valur Gunnarsson.
Fyrir leik
Fimm mínútur í að Þóroddur blási í flautuna og gefi þar með til kynna að leikurinn sé hafinn. Honum til aðstoðar eru þeir Frosti Viðar Gunnarsson og Haukur Erlingsson.
Fyrir leik
Tannlæknir geðgóði og landsliðsþjálfari Íslands í knattspyrnu, Heimir Hallgríms er mættur í Grafarvoginn til að fylgjast með leiknum. Hann er ávallt hress.
1. mín
Leikurinn er hafinn, aðeins á eftir áætlun eða c.a. tveim mínútum. Áfram með fjörið
6. mín
Liðin eru að þreifa hvort á öðru þessar fyrstu mínútur. Ekki mikið að gerast þannig.
10. mín
Það eru engin færi enn búin að eiga sér stað. Það er vonandi að það breytist sem allra fyrst. Mætingin á Grafarvogsvöll er ágæt og það er enn fólk að bætast við. Enda veður til þess að mæta á völlinn. Það er ljóst.
12. mín
Gult spjald
Baldvin Sturluson
14. mín
Gult spjald
Bergsveinn Ólafsson
14. mín
Alþingismaðurinn og aðstoðarþjálfari Blika, Willum Þór heimtaði rautt spjald á Bergsvein fyrir þetta brot rétt í þessu en Bergveinn tók karatespark likt og í Bruce Lee mynd. Þóroddur hlustaði þó ekki á rök Willums og gaf einungis gult spjald.
17. mín
Elfar Árni með hælspyrnu að marki Fjölnis eftir fyrirgjöf frá Höskuldi, en boltinn fór framhjá.
25. mín
Við bíðum enn eftir því að það gerist eitthvað sem vert er að minnast á. Hingað til er það aðallega veðrið sem gleður augað.
30. mín
Heimir Hallgríms tók það að sér að sjá til þess að blaðamenn myndu ekki ofþorna i hitanum og kom með vatnskönnu og bolla. Topp eintak þar á ferð.
35. mín
Fjölnismenn eru búnir að vera líklegri það sem af er, þó án þess að skapa sér nein færi að ráði. Aron Sigurðarson hefur verið sprækastur allra á vellinum.
44. mín
Fyrri hálfleikur er að renna út.....sem betur fer. Þetta er búið að vera hundleiðinlegt og vonandi að liðin fari inn í klefa og komi þaðan út ákveðin í að skora í seinni hálfleik.
45. mín
Þóroddur blæs til loka fyrri hálfleiks. Við fáum okkur kaffi og komum aftur eftir 15 mínútur.
46. mín
Seinni hálfleikur hafinn. Vonandi að það komi einhver mörk í þennan leik!
52. mín
MAAAARK!
Árni Vilhjálmsson (stoðsending: Höskuldur Gunnlaugsson)
Maaaaarrrkkkkkkkk! Loksins loksins loksins að það kom mark í leikinn. Vel útfærð sókn hjá Blikum þar sem Höskuldur Gunnlaugsson átti fyrirgjöf inn í teig, þar sem Elfar Árni lét boltann fara áfram og þar kom Árni Vilhjálms á ferðinni og smellhitti boltann í markið. Vel gert!61. mín
InnMark Charles Magee
ÚtGuðmundur Karl Guðmundsson
Mark Charles Magee kemur inn á í sinum fyrsta leik fyrir Fjölni
64. mín
Þetta var rosaleg markvarsla hjá Þórði Ingasyni. Árni Vilhjálms átti þrusu skalla að marki Fjölnis en Þórður var vel á verði og varði vel.
68. mín
InnOlgeir Sigurgeirsson
ÚtElfar Freyr Helgason
75. mín
InnEllert Hreinsson
ÚtÁrni Vilhjálmsson
Markaskorarinn Árni fer af velli.
76. mín
MAAAARK!
Mark Charles Magee (stoðsending: Ragnar Leósson)
Jáhá!!! Það er komið MAAAAARRRRRKKKKK! Nýi leikmaðurinn hjá Fjölnismönnum hann Mark Charles Magee eftir stoðsendingu frá Ragnara Leóssyni sem er stoðsendingakóngur deildarinnar sem stendur.79. mín
InnGuðmundur Böðvar Guðjónsson
ÚtGunnar Valur Gunnarsson
81. mín
Fjölnismenn áttu þetta skilið, að jafna leikinn. Það er búið að vera jafnræði með liðunum og ekki auðvelt að segja að annað hvort liðið hafi verið betra.
87. mín
Fjölnismenn eru mun líkegri til að bæta við heldur en Blikar og eru aðgangsharðir á vallarhelming Blika.
89. mín
InnElvar Páll Sigurðsson
ÚtStefán Gíslason
89. mín
InnViðar Ari Jónsson
ÚtÞórir Guðjónsson
90. mín
Venjulegum leiktíma er lokið. Væntanlega tveim til þrem mínútum bætt við.
Leik lokið!
Leiknum er lokið með jafntefli. Umfjöllun og viðtöl koma innan skamms á síðuna.



