SKÝRSLAN: Baráttusigur heimamanna í Ólafsvík
Hvað réði úrslitum?
Löng og þung sókn heimamanna undir lok framleggingar sem endaði með marki sem reyndist vera sigurmark leiksins
Bestu leikmenn
1. William Dominguez da silva
Lang sprækasti maður heimamanna í öllum sóknum. Sýndi oft á tíðum brasilíska takta sem varnarmenn Þórsara áttu í mjög miklum erfiðleikum með.
2. Egill Jónsson
Mikill leiðtogi á miðjunni hjá Víkingum og mikill happafengur hjá Ejub
Atvikið
Meiðsli Reynis riðlaði vörn Þórs og gaf að lokum sigurmarkið.
Hvað þýða úrslitin?
Heimamenn í Ólafsvík lyfta sér upp í 2. sætið og uppfyrir Þórsara sem falla niður í 4.
Vondur dagur
Jónas Björgvin átti erfið uppdráttar gegn Emir og lét áhorfendur fara vel í skapið á sér.
Dómarinn - 7
Gekk á ýmsu hjá Valgeiri í dag. Gestirnir voru ekki sáttir á köflum.



