Fotbolti.net
Jóhann Ingi Hafþórsson
Pepsi-deild karla 2015
Vodafonevöllurinn
Völlurinn er flottur. Fínt fótboltaveður en nokkuð hvasst.
Valur
Valur
1 - 1
ÍBV
ÍBV
0 - 139' Jonathan Ricardo Glenn (víti)Kristinn Freyr Sigurðsson 70'1 - 1
Dómari: Valdimar Pálsson

SKÝRSLAN: Sprækir Eyjamenn komu Valsmönnum á óvart

Hvað réði úrslitum?

Flestir bjuggust við sigri Vals í dag. Eyjamenn voru hins vegar staðráðnir í að sýna sitt rétta andlit eftir dapurt gengi hingað til á leiktíðinni. Bæði lið hefðu í raun getað unnið leikinn með betri afgreiðslum í góðum færum. Yfir heildina nokkuð jafn leikur.

Bestu leikmenn

1. Kristinn Freyr Sigurðsson

Kristinn var hve sprækastur Valsmanna í annars lélegum fyrri hálfleik liðsins. Hann hélt uppteknum hætti í síðari hálfleik, var mjög góður á boltanum og alltaf ógnandi. Hann kórónaði góðan leik sinn með góðu marki í seinni hálfleik. Kristinn er að eiga frábæra leiktíð hjá Hlíðarenda liðinu.

2. Hafsteinn Briem

Hafsteinn var klettur í miðverðinum hjá ÍBV í dag. Hann vann alla skallabolta sem fóru á hann og gerði hann mjög vel í að stöðva markahæsta mann deildarinnar, Patrick Pedersen, í dag. Hann fékk svo vítaspyrnuna sem Eyjamenn skoruðu úr.

Atvikið

Kristinn Freyr Sigurðsson vann aukaspyrnu seint í leiknum en það hefði átt að vera vítaspyrna. Patrick Pedersen hefði farið á punktinn og hefði hann verið afar líklegur til að skora. Það hefði verið erfitt fyrir Eyjamenn að koma til baka eftir það.

Hvað þýða úrslitin?

Þetta eru leikir sem lið sem ætla sér að berjast á toppnum verða einfaldlega að vinna. Neðsta liðið á heimavelli er skildusigur. Valsmenn eiga í hættu á að falla niður töfluna eftir leikinn og geta þeir farið niður í 6. sæti á meðan sigur hefði getað fær þeim 3. sætið. Eyjamenn fara af botninum og eru nú stigi á undan Keflavík og aðeins einu stigi frá öruggu sæti.

Vondur dagur

Daði Bergsson var áberandi ekki maður leiksins. Hann var mjög lítið í leiknum og þegar hann var með, kom afar lítið úr honum. Valsmenn bundu miklar vonir við Daða er hann kom til liðsins en hann verður að gera meira en þetta. Hann var síðan tekinn útaf í seinni hálfleik.

Dómarinn - 5

Valdimar átti ekki sinn besta leik. Hann dæmdi jú, réttilega vítaspyrnu í fyrri hálfleik sem Eyjamenn skoruðu úr. Þess fyrir utan voru nokkrir furðulegir dómar. Valsmenn hefðu síðan átt að fá vítaspyrnu stuttu fyrir leikslok en Valdimar dæmdi aukaspyrnu.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.