

Norðurálsvöllurinn
Pepsi-deild karla 2015
Dómari: Garðar Örn Hinriksson
('58)
('86)
('64)
('64)
('58)
('86)
Ótrúlegum leik lokið hér á Skaganum. FH-ingar fara með öll stigin heim í Hafnarfjörðinn.
Boltinn beint í hendurnar á Róberti Erni.
Jón Vilhelm ALLT ANNAÐ EN SÁTTUR! Snýr sér við og hristir hausinn yfir þessu öllu saman. Ármann Smári setur hendur á loft og horfir á Gunnlaug Jónsson.
Skagamenn alveg brjálaðir og Marko virðist hafa sagt einhvern andskotan við Garðar. Því Marko fær rautt spjald umsvifalaust!
Gult spjald: Róbert Örn Óskarsson (FH)
FH-ingarnir komast í skyndisókn og Þórarinn Ingi er kominn einn gegn Árna Snæ sem kemur langt út á móti honum. Skot Þórarins Inga er hinsvegar afleitt, fyrsta lagi dreif hann ekki á markið og boltinn var ca. 10-15 metrum frá markinu. Serwy náði hinsvegar til boltans og kom með fyrirgjöf en boltinn yfir Þórarinn Inga á fjærstönginni.
Skot frá vítateigslínunni sem fer í stöngina og aftur fyrir. Það er líf í heimamönnum heldur betur.
Hvar eru FH-ingarnir?
MARK!Stoðsending: Árni Snær Ólafsson
Laglega klárað Garðar!
Róbert Örn liggur eftir og enn og aftur kvartar hann yfir vinstri mjöðminni. Þessi mjöðm hlýtur að vera aftra honum á vellinum.
Framhherji fyrir framherja.
Boltinn endar hjá Garðari sem reynir enn og aftur marktilraun en yfir markið fer boltinn.
Hann hefur lítið sést í leiknum og fengið úr litlu að moða. Þarna reyndi hann, fullmikil bjartsýni.
Boltinn fer yfir allan pakkann og Jón Vilhelm hreinsar frá, af fjærstönginni.
Ótrúlegt en satt, þá er það Ármann Smári sem skallar boltann frá.
Gult spjald: Ólafur Valur Valdimarsson (ÍA)
FH-ingar sóttu hratt, Þórarinn Ingi með fyrirgjöf og boltinn endaði hjá Emil sem tók skotið.
Atli Viðar er ekki í þessu til að eignast neina vini. Setur 2 og fer vælandi úr hlátri á koddann í kvöld #fotbolti
— Sigur
Serwy gefur og gefur á meðan Atli bara skorar og skorar #FH #fotboltinet
— Magnús Haukur (@Maggihodd) August 10, 2015
FH versluðu og versluðu fyrir tímabil, rándýrir leikmenn. Lánuðu Emil Páls. Svo er það hann sem stígur upp þegar mest á reynir. #fotboltinet
— Eiður Ben (@EidurEiriksson) August 10, 2015
Á nú skot fyrir utan teig sem Árni Snær blakar í fjærstöngina og aftur fyrir.
Árni Snær var heldur framarlega og í litlu jafnvægi og Atli ætlaði að notfæra sér það. Heimamenn og þá sérstaklega, Árni Snær stálheppinn en að sama skapi vel gert hjá honum að ná að blaka boltanum í burtu frá markinu.
MARK!Stoðsending: Jeremy Serwy
Serwy með fyrirgjöf frá endalínunni þar sem Atli Viðar kom á nærstöngina og skallaði boltann í netið af stuttu færi. Gott hlaup frá Atla Viðari og sendingin fullkomin frá Serwy.
Þvílík byrjun gestanna og þvílík martraðar-byrjun heimamanna!
Garðar framlengir boltann inn í markteig FH þar sem Ásgeir Marteins. og Eggert Kári voru báðir nálægt boltanum en á síðustu stundu náðu FH-ingar að hreinsa frá. Þarna munaði litlu.
Gult spjald: Kassim Doumbia (FH)
Fær spjald fyrir að sparka boltanum í burtu eftir að flautað hafi verið aukaspyrna.
MARK!Stoðsending: Jeremy Serwy
Þórarinn Ingi lék sér með boltann fyrir utan teiginn, tók sér góðan tíma með boltann, fann síðan Serwy við vítateigslínuna vinstra megin, Serwy skallaði síðan boltann fyrir markið þar sem Emil Pálsson var einn og óvaldaður og stangaði boltann í markið frá markteigslínunni.
Óverjandi fyrir Árna í markinu. - Gestirnir eru komnir yfir!
Atli Viðar kemst einn gegn Árna Snæ sem kemur vel út á móti Atla. Skot Atla endar í bringunni á Árna og síðan nær Árni boltanum fyrir utan teig og hreinsar frá. Þarna gerði Árni vel!
Hjá ÍA er Marko og Arsenij byrjaðir að hita upp.
Gult spjald: Jonathan Hendrickx (FH)
Ef þetta er ekki besta týpa sem ég hef séð á fótboltaleik á Íslandi #fotboltinet pic.twitter.com/EhtRTJ7O3S
— Páll Sindri (@pallsindri) August 10, 2015
Besta miðja Íslandssögunnar. Óli Þ-Siggi Johnson-Alli Högna. #DreamTeam pic.twitter.com/u9PhzM6FaY
— Hjörtur Hjartar (@hjorturh) August 10, 2015
Staðan jöfn í hálfleik 1-1. Skagamenn komust yfir snemma leiks en eftir það fengu FH-ingar nokkur færi til að jafna. Eftir varnarmistök ÞÞÞ kom jöfnunarmarkið.
FH-ingar verið meira með boltann í fyrri hálfleiknum og hefðu hæglega getað verið yfir. Skagamenn eru þó alltaf líklegir í sínum föstu leikatriðum eins og sást í fyrsta markinu sem kom eftir hornspyrnu.
Ásgeir Marteins. með hornspyrnu sem Róbert Örn fer út í, slær í burtu og dettur í kjölfarið. Skagamenn reyna tvær marktilraunir sem ná ekki að marki og FH-ingar ná síðan að hreinsa frá áður en þeir lenda í meiri vandræðum.
Atli Viðar verður skólastjóri í þessum strikerskóla á Íslandi #nía http://t.co/6zpQQXzjaM
— Brynjar Benediktsson (@brynjarben) August 10, 2015
Emil Páls. er hinsvegar fyrstur til að ná boltanum, sendir boltann út í teiginn á Þórarinn Inga sem nær ekki skoti á marki og sóknin rennur út í sandinn.
Eggert Kári liggur eftir og stöðva þarf leikinn. Hann var í baráttunn við Doumbia og fékk eitthvað höfuðhögg. Er hinsvegar staðinn upp.
MARK!Stoðsending: Atli Guðnason
Þórarinn Ingi keyrði upp vinstri vænginn, sendir fyrir þar sem Atli Guðna var innan teigs, framlengdi boltann á Atla Viðar sem lagði boltann í netið.
Þetta mark skrifast heldur betur á ÞÞÞ en hinsvegar laglega gert hjá Ötlunum og Þórarni. Gerðu þetta einfalt og vel.
Hann vildi síðan fá hornspyrnu en fékk ekki.
Garðar er þó drjúgur að hlaupa á milli varnarmanna FH þegar þeir eru með boltann.
Sókn FH heldur áfram en hún endar með því að Atli Viðar missir boltann aftur fyrir endamörk. Þvílík hornaveislan hérna hjá FH.
Maður leiksins hingað til: Ármann Smári sem er allt í öllu í varnarleik ÍA í föstum leikatriðum.
Og Ármann Smári skallar enn og aftur frá og FH fær síðan hornspyrnu hægra megin.
Sjöttu hornspyrnu sína...
Emil Pálsson með skalla í fjærstöngina eftir fyrirgjöf frá hægri. Þarna munaði litlu. Árni Snær stóð stjarfur á línunni og misreiknaði annað hvort boltann eða átti ekki möguleika í hann. Þetta var lúmskur skalli, sem fór fyrst í grasið og skoppaði síðan í stöngina.
Þarna voru heimamenn heppnir!
MARK!Stoðsending: Ásgeir Marteinsson
1-0 fyrir heimamenn! Ja hérna hér, hver hefði búist við þessu?
Ásgeir Marteins. tekur spyrnuna og mark!
Atli Viðar fær boltann inn í teig Skagamanna. Skagamenn heldur værukærir, Atli tekur við boltann og reynir skot en Arnór Snær nær að tækla fyrir boltann.
FH-ingar fá hornspyrnu sem Ármann Smári hreinsar frá.
Darren Lough og ÞÞÞ í bakvörðunum. Ármann Smári og Arnór Snær í miðvörðunum.
Atli Viðar Björnsson, Garðar Gunnlaugsson, Darren Lough og Arnór Snær Guðmundsson.
Þeir eru allir í stuttermatreyju og ekkert væl!
Það verður því athyglisvert að sjá hvernig Marko standi sig, þegar hann kemur inná, ef úr því verður það er að segja.
Ef það er einhverntímann tilefni til að vinna FH er það í dag! Kalt og smá rok, alvöru veður! Ætla spá 2-1 ÍA sigri #fotboltinet #bjartsýni
— Sigrún Dóra (@SigrunDora7) August 10, 2015
Steven Lennon er enn frá vegna meiðsla og Brynjar Ásgeir er hvergi sjáanlegur í leikmannahóp FH, hann handleggsbrotnaði í seinni leik FH í Evrópukeppninni. Þá er Sam Hewson enn frá vegna meiðsla.
Jón Vilhelm og Hallur Flosason detta út og í þeirra stað koma þeir Eggert Kári og Ingimar Elí.
Bjarni er kominn með fjórar áminningar og tekur því út leikbann.
Bjarni hefur verið að leika vel í undanförnum leikjum fyrir Fimleikafélagið en hann skoraði í 2-1 sigrinum gegn Val í síðustu umferð.
ÍA eru fjórum stigum frá fallsæti og á leikinn í kvöld til góða á bæði ÍBV og Leikni sem eru fyrir neðan þá.
Skagamenn sátu vart til sólar í þeim leik. FH komst í 4-0 áður en Arsenij Buinickij minnkaði muninn á 79. mínútu leiksins, þá nýkominn inn á sem varamaður.
Í síðustu 12 innbyrðis viðureignum hefur FH unnið 11 og liðin gert eitt jafntefli. Þetta er frá tímabilinu 2006 til 2015. Jafnteflið kom á Kaplakrikavelli sumarið 2007. Þar skoraði Tryggvi Guðmundsson úr víti í byrjun leiks en enginn annar en Ellert Jón Björnsson jafnaði fyrir Skagamenn stuttu fyrir leikslok.
Markatalan í þessum 12 leikjum er: 40-15 FH í vil.
ÍA 0 - 1 FH (mánudag 19:15)
Atli Viðar byrjar aftur og skorar eina markið í leik þar sem einhver FH-ingur fær beint rautt spjald!
('78)
('71)
('78)
