

Kópavogsvöllur
Pepsi-deild karla 2017
Aðstæður: Rok og rigning. Mjög blautur völlur.
Dómari: Ívar Orri Kristjánsson
Áhorfendur: 1141
('80)
('61)
('87)
('61)
('87)
('80)
Skýrsla og viðtöl frá Tómasi Meyer á leiðinni.
MARK!Skotið var ekki fast og ég set nokk stórt spurningamerki við Rajko þarna.
MARK!Stoðsending: Hallgrímur Mar Steingrímsson
Ásgeir smellhitti boltann, glæsilegt skot upp í fjærhornið!
Blikar eru í bullinu!
Búið að vera þungt yfir Blikum í vetur...þessi fyrri kemur mér ekki á óvart. KA þurftu ekkert pepp fyrir þennan, koma klárir. #fotboltinet
— Magnús Þór Jónsson (@maggimark) May 1, 2017
Vá hvað blikarnir eru daprir! Og KA menn reyndar öflugir á móti. #fotboltinet
— Sindri R. Sindrason (@Sindrason) May 1, 2017
MARK!Hallgrímur Mar með aukaspyrnu, sem Blikar voru ósáttir við að fá dæmda á sig, og sendir boltann inn í teiginn.
Elfar Árni á skalla sem Gunnleifur blakar frá, Elfar tekur frákastið sjálfur og skorar.
Gunnleifur var ekki í jafnvægi þarna og leit ekki vel út.
Hallgrímur Mar fær óvænt dauðafæri! Lúrir þarna í teignum þar sem boltinn fellur fyrir hann. Hallgrímur tekur boltann á lofti en skýtur framhjá!
Vissi ekki að Kópacabana væri orðin solo artist. #fotboltinet
— Hörður Óskarsson (@hoddioskars) May 1, 2017
MARK!Stoðsending: Steinþór Freyr Þorsteinsson
Steinþór renndi boltanum til vinstri þar sem vinstri bakvörðurinn Darko var mættur og náði að koma boltanum í netið úr nokkuð þröngri stöðu.
Vörn Blika leit ekki vel út þarna. Gísli og Guðmundur Friðriks í miklum vandræðum.
Bara 3 Völsungar í byrjunarliði KA. Mér finnst það ekki nægilega hátt hlutfall. #fotboltinet #pepsi365
— Ármann Örn (@armannorn) May 1, 2017
Ömurlegar aðstæður fyrir þunnhærða í dag. #fotboltinet #pepsideildin
— Rúnar Gissurarson (@RnarGissurarson) May 1, 2017
Gulli
Guðmundur - Gísli - Damir - Davíð
Oliver - Arnþór - Andri Rafn
Aron - Tokic - Martin Lund
Uppstilling KA (4-3-3):
Rajko
Bjarki - Guðmann - Callum - Darko
Trninic - Steinþór - Almarr
Ásgeir - Elfar - Hallgrímur
Hjá KA vantar Hrannar Björn Steingrímsson en ekki hef ég upplýsingar um ástæðuna. Að öðru leyti ekkert óvænt í byrjunarliðinu þar. Archie Nkumu og Davíð Rúnar Bjarnason eru meiddir.
Blautur Kópavogsvöllur. @zicknut að gefa skipanir. Breiðablik gegn KA 17:00 #fotboltinet pic.twitter.com/dfaNRp4w0d
— Elvar Geir Magnússon (@elvargeir) May 1, 2017
Það er spenna hjá mér, leikmönnum og öllum sem koma nálægt þessu. Við höfum beðið lengi eftir þessu. Það er rúta klár sem fer frá Akureyri og það er líka mikið af stuðningsmönnum KA fyrir sunnan. Schiötharar eru með þetta allt á hreinu. Ég reikna með mörgum KA mönnum á vellinum.
Breiðabliki gekk ekki nægilega vel í markaskorun í fyrra og Arnar Grétars skellti sér út á markaðinn og náði í þrjá sóknarmenn á einu bretti. Króatinn Hrvoje Tokic, Daninn Martin Lund Pedersen og Reykvíkingurinn Aron Bjarnason eiga að búa til mörk í Kópavoginum.
KA er með öflugan hóp og leikmenn sem eru ákveðnir í að sanna sig i Pepsi-deildinni. Þar á meðal er hinn tvítugi Ásgeir Sigurgeirsson, stórskemmtilegur leikmaður sem vert er að gefa gaum.
Í hjarta varnar KA er svo Guðmann Þórisson sem lék með meistaraflokki Breiðabliks 2005-2009 áður en hann fór til FH. Öflugur varnarmaður sem er algjör lykilhlekkur í Akureyrarliðinu.
KA er komið aftur upp í deild þeirra bestu eftir tólf ára fjarveru. Gaman að fá þá gulu aftur upp og það er mikil eftirvænting í þeirra röðum fyrir þessum leik. Það verður góð mæting að norðan í Kópavoginn í dag.
Við erum mættir og okkur á bara eftir að fjölga!! #LifiFyrirKA #pepsi365 #fotboltinet #BKKjúklingur pic.twitter.com/Hkoh5o1UwU
— Schiöthararnir (@Schiotharar) May 1, 2017
Miðjumaðurinn Gísli Eyjólfsson á að fá það hlutverk að spila með Damir Muminovic í hjarta varnar Breiðabliks í dag samkvæmt okkar heimildum. Elfar Freyr Helgason er á láni í Danmörku og þá er Viktor Örn Margeirsson ekki kominn í stand eftir meiðsli.
"Það lið sem leggur sig meira fram sækir stigin" - Arnar Grétars um leik Breiðabliks og KA sem verður klukkan 17 #fotboltinet pic.twitter.com/MUiJh6sR9y
— Fótbolti.net (@Fotboltinet) May 1, 2017
('75)
('81)
('34)
('75)
('81)
('34)