Liverpool rennur löngunaraugum til Camavinga - Barca og Juve vilja Bernardo Silva - Juventus vill Ugarte
   þri 07. apríl 2026 08:45
Elvar Geir Magnússon
Liverpool rennur löngunaraugum til Camavinga
Powerade
Eduardo Camavinga.
Eduardo Camavinga.
Mynd: EPA
Juve vill Ugarte.
Juve vill Ugarte.
Mynd: EPA
Liverpool vill leikmann Real Madrid og Juventus vill leikmenn frá Manchester liðunum. Þetta og fleira í slúðrinu. Vonandi voru páskarnir ykkur ánægjulegir og umfram allt hressandi.

Liverpool hefur lengi horft löngunaraugum til franska miðjumannsins Eduardo Camavinga (23) og er meðvitað um að Real Madrid er opið fyrir því að selja hann. (L'Equipe)

Barcelona og Juventus eru meðal félaga sem vilja fá portúgalska miðjumanninn Bernardo Silva (31) á frjálsri sölu frá Manchester City í sumar. (Sky Sports)

Juventus telur að það muni koma liðinu í lykilstöðu að fá úrúgvæska miðjumanninn Manuel Ugarte (24) ef liðið nær Meistaradeildarsæti. Manchester United verðmetur leikmanninn á um 35 milljónir punda. (Corriere dello Sport)

Arsenal er aðeins líklegra en Liverpool til að fá Fílabeinsstrendinginn Yan Diomande (19) frá RB Leipzig. (Caught Offside)

Tottenham mun ekki hlusta á tilboð undir 50 milljónum evra (43,6 milljónum punda) í fyrirliðann Cristian Romero (27). Atletico Madrid hefur áhuga á argentínska landsliðsmanninum. (Fichajes)

Ef brasilíski framherjinn Vinicius Jr. (25) ákveður að yfirgefa Real Madrid er það bara enska úrvalsdeildin eða Paris St-Germain sem eru raunhæfir kostir. (ESPN)

Liverpool og Manchester United hafa aukinn áhuga á franska vængmanninum Maghnes Akliouche (24) hjá Mónakó. (TeamTalk)

Borussia Dortmund hefur áhuga á belgíska vinstri bakverðunum og kantmanninum Diego Moreira (21) hjá Strasbourg en Chelsea er með klásúlu um að geta keypt hann til baka. (Florian Plettenberg)

Roma vill fá Dario Osorio (22) og Franculino (21) frá danska félaginu Midtjylland. Þessi síleski kantmaður og framherji frá Gínea-Bissá eru samanlagt verðmetnir á 55 milljónir evra. (Gazzetta dello Sport)

Newcastle mun veita evrópskum félögum samkeppni um þýska varnarmanninn Karim Coulibaly (18) hjá Werder Bremen. (Fabrizio Romano)
Slapp
banner