Fotbolti.net
@StefnirSStefnir Stefánsson
Stefnir Stefánsson
Inkasso deildin 1. deild karla 2017
Eimskipsvöllurinn
Iðagrænt og rennislétt gervigras, milt og gott mánudagsveður
Þróttur R.
Þróttur R.
1 - 0
Fylkir
Fylkir
Viktor Jónsson 1'1 - 0
Dómari: Helgi Mikael Jónasson

SKÝRSLAN: Draumabyrjun Þróttar nægði til sigurs

Hvað réði úrslitum?

Draumabyrjun Þróttara þegar þeir skora strax eftir 20 sekúndur var það sem reyndist vendipunktur þessa leiks.

Bestu leikmenn

1. Grétar Sigfinnur

Var potturinn og pannan í varnarleik Þróttar í dag. Það reyndi töluvert á vörn þeirra í dag en þeir virtust vera með svör við öllu. Liðið í heild sinni á hrós skilið fyrir þolinmæði og gríðarlega agaðann og góðan varnarleik.

2. Oddur Björnsson

Var líflegur og heilinn á bakvið ágætar skyndisóknir Þróttar í dag.

Atvikið

Markið strax eftir 20 sekúndur. Þróttarar hófu leik með boltann og spyrntu honum í átt að Vilhjámi Pálmasyni sem vann innkast, innkastið barst á pönnuna á Viktori í kjölfarið varð úr klafs í teignum og Viktor renndi boltanum í netið. Köld vatnsgusa í andlit Fylkismanna strax í byrjun.

Hvað þýða úrslitin?

Úrslitin þýða það að Þróttur fer upp að hlið Fylkis sem eru þó enn á toppi deildarinnar með betri markatölu.

Vondur dagur

Orri Sveinn Stefánsson, átti ekki sinn besta dag í dag, tapaði boltanum þrívegis á stórhættulegum stað og var tekinn af velli í kjölfarið.

Dómarinn - 8

Helgi Mikael átti mjög góðan dag í dag fannst mér. Ekkert út á hann að setja og flestar ákvarðarnir voru spot on að mínu mati. Hafði í nægu að snúast.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.