SKÝRSLAN: HK halda áfram að safna stigum í Inkasso deildinni
Hvað réði úrslitum?
Það er mikill gæðamunur á þessum tveimur liðum og HK var í sókn mest allan leikinn þeir hafa menn eins og Ásgeir Marteinsson sem geta klárað leiki þeir gerðu það sem þurfti í dag til þess að fá 3 stig
Bestu leikmenn
1. Ásgeir Marteinsson ( HK )
Var augljós fra´fyrstu mínútu að hann ætlaði að skora í dag var sí ógnandi með hraða sínum og krafti og skapaði fullt af færum fyrir sjálfan sig og liðsfélaga
2. Robert Winogrodzki ( Leiknir F )
Markmaðurinn stóð sig vel og varði meistarlega á köflum í þessum leik . Ein helsta ástæða þess að HK skoraði ekki fleiri mörk
Atvikið
Markið hans Ásgeirs það vantaði þetta mark Leiknis menn voru aldrei líklegir til að skora í þessum leik þó þeir hafi átt nokkra skyndisóknir. Mjög vel klárað hjá Ásgeiri
Hvað þýða úrslitin?
HK eru búnir að ná í 12 stig af síðustu 15 og fara upp í 7 sæti með jafnmörg stig og Selfoss í sæti . Leiknis menn sitja enn á botninum með 7 stig og þetta lítur ekki vel út fyrir þá en á meðan liðinn í kring eru ekki að vinna þá eru þeir enn í baráttunni
Vondur dagur
Valdimar Ingi Jónasson ( Leiknir F ) Réði lítið við Ásgeir og Hörð Inga í hægri bakverðinum sem fóru oft á tíðum full auðveldlega upp kantinn . Hefði mátt fá meiri hjálp frá liðsfél-gum sínum í tveir á einn stöðunni
Dómarinn - 8
Ekkie rfiðasti leikurinn til að dæma en hann gerði sitt vel



