Fotbolti.net
@mattimattMatthías Freyr Matthíasson
Matthías Freyr Matthíasson
Borgunarbikar karla
Kaplakrikavöllur
Frábærar aðstæður. Völlurinn frábær, veðrið gott.
FH
FH
1 - 0
Leiknir R.
Leiknir R.
Steven Lennon 93'1 - 0
Dómari: Þóroddur Hjaltalín
Myndir: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

SKÝRSLAN: Flautumark og úrslitaleikur í verðlaun

Hvað réði úrslitum?

Flautumark Steven Lennon sem var ákveðinn í því að þurfa ekki að fara í framlengingu. Hann með einstaklingsframtaki barðist eins og ljón á 93 mínútu til að skora þetta eina mark sem þurfti til.

Bestu leikmenn

1. Pétur Viðarsson

Pétur átti flottan leik í vörn FH og kom tvisvar í veg fyrir að Leiknismenn kæmust einir á móti marki FH

2. Eyjólfur Tómasson

Markmaður Leiknismanna hélt þeim inni í leiknum í 92 mínútur og ekki hægt að saka hann um þetta mark sem Lennon skoraði.

Atvikið

Flautumark Lennon á 93 mínútu er atvik leiksins. Ef þetta mark hefði ekki komið hefði niðustaðan verið framlenging sem er eitthvað sem FH vildi alls ekki enda eru þeir staddir í erfiðu prógrammi bæði í deild og evrópukeppni.

Hvað þýða úrslitin?

FH fara í úrslit Borgunarbikarsins og mæta þar ÍBV. Eitthvað sem þeim hefur ekki tekist að gera síðan 2010, það er að segja að komast í úrslitaleik bikarsins en þeir unnu þann leik einmitt. Leiknir er dottið úr bikar og geta því einbeitt sér að því að bæta stigasöfnun í Inkasso.

Vondur dagur

Enginn svosem sem átti eitthvað sérstaklega slakan leik. Atli Guðnason hefur þó oft spilað betur.

Dómarinn - 7,5

Solid leikur hjá Þóroddi Hjaltalín
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.