SKÝRSLAN: Eyjamenn negldu nagla í kistu Skagamanna
Hvað réði úrslitum?
Skagamenn voru einfaldlega ekki rétt gíraðir í þessum leik og ÍBV liðið virsti betra á öllum sviðum í dag , það kom smá pressa frá ÍA seinustu 10-15 mínúturnar og Garðar var nálagt því að jafna en yfir höfuð voru eyjamenn mun betri á öllum stöðum vallarins
Bestu leikmenn
1. Brian Mclean (ÍBV)
Fær þetta fyrir þetta mikilvæg mark . Var mjög góður og batt vörn ÍBV saman og átti sína skalla bolta
2. Pablo Punyed (ÍBV)
Þessi gæji er nátturlega geðveikur í fótobolta allt sem hann gerir virkar svo auðvelt og létt stjórnaði spili eyjamanna vel í dag .
Atvikið
Mark Eyjamanna, herfileg mistök hjá Árna í markinu fær boltann undir sig og gefur ÍBV mark á silfurfati
Hvað þýða úrslitin?
Eyjamenn eru enn á lífi í deild þeirra bestu með þessum sigri sterkur útivallarsigur í mikilvægum leik . Skagamenn eru hinsvegar í miklum miklum erfiðleikum og þetta var mjög djúpur nagli í þeirra kistu í fallbaráttunni
Vondur dagur
Árni Snær gerði sig sekan um slæm mistök í marki eyjamanna missir boltann undir sig eftir að hafa fengið skalla beint á sig frá Brian í svona leik og í þessari deild í þessari baráttu er þetta bara alltof dýrkeypt .
Dómarinn - 8
Dæmdi leikinn vel



