Fotbolti.net
@mattimattMatthías Freyr Matthíasson
Matthías Freyr Matthíasson
Pepsi-deild karla 2017
Víkingsvöllur
Víkingur R.
Víkingur R.
0 - 1
KA
KA
0 - 112' Vedran Turkalj
Dómari: Vilhjálmur Alvar Þórarinsson
Myndir: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

SKÝRSLAN: Jafnteflishrina KA stöðvuð í Víkinni

Hvað réði úrslitum?

Varnarleikur KA sem gerði það að verkum að þrátt fyrir stífa pressu Víkinga að þá náðu þeir ekki að setja mark og jafna leikinn. Þrátt fyrir að vera manni færri stóran hluta leiks að þá áttu Víkinga skilið að fá í það minnsta stig úr leiknum. En það er ekki spurt að því og KA náði þremur stigum og stoppuðu þar með jafnteflishrinu sem þeir hafa verið í.

Bestu leikmenn

1. Srdjan Rajkovic

Það er erfitt að velja einhvern til að vera maður leiksins. Enginn sem stóð beint upp úr en Rajko er sá sem hélt KA inni sigri með vörslum á loka mínútum

2. Darko Bukatovic

Stóð sig príðilega í vörn KA og er afskaplega hraður leikmaður.

Atvikið

Rauða spjaldið sem Tufa fékk sem lýst er nánar í ,,vondur dagur\" dálkinum

Hvað þýða úrslitin?

KA fjarlægist fallbaráttuna og kemst upp í 7.sæti deildarinnar með 21 stig. Stigi færra en Víkingur sem er í 6. sæti með 22 stig og. Það er samt þannig að bæði lið, ef önnur úrslit falla með þeim, að þá eiga bæði lið enn möguleika á að vera að berjast um Evrópusæti. Ef KR,Grindavík og FH tapa stigum að þá er þetta allt galopið

Vondur dagur

Vladimir Tufeqdzic fékk að líta rauða á 31 mínútu. Beint rautt spjald eftir að hafa sparkað hátt upp í loftið og virtist fara í andlitið á Callum sem þó sagði eftir leik að hann hefði sparkað í viðbeinið á sér. Rautt spjald var samt niðurstaðan og það skiljanlega.

Dómarinn - 5

Línan sem Vilhjálmur setti í leiknum var ekki nógu skýr og missti hann öll tök. 11 spjöld og þar af 1 rautt.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.