Fotbolti.net
Orri Rafn Sigurðarson
Orri Rafn Sigurðarson
Fótbolta.net mótið - A deild - Úrslit
Kórinn
Stjarnan
Stjarnan
1 - 0
Grindavík
Grindavík
Þorsteinn Már Ragnarsson 29'1 - 0Jósef Kristinn Jósefsson 60'
Dómari: Helgi Mikael Jónasson
Myndir: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

SKÝRSLAN: Stjarnan er Fótbolti.net meistari eftir sigur á Grindavík

Hvað réði úrslitum?

Stjarnan var mikið betra liðið fyrstu 60 mínúturnar þar til að Jósef fær rauða spjaldið. Grindvíkingar lágu aftarlega og leyfðu Stjörnunni svolítið að eiga boltann. Stjarnan er með gæði fram á við og það er erfitt að verjast þeim í 90 mínútur. Grindvíkingar fengu færi til að jafna en nýttu þau ekki

Bestu leikmenn

1. Baldur Sigurðsson (Stjarnan)

Það var enginn sem stóð upp úr en Baldur Sig fær þetta í dag skilaði frábærri vinnu varnarlega og sóknarlega og leiddi liðið til sigurs í mótinu með 4 sigra í 4 leikjum

2. Ævar Ingi Jóhannesson (Stjarnan)

Átti flottan leik og ógnaði vel með hraðanum. Lagði upp mark Stjörnunar í Leiknum

Atvikið

Rauða spjaldið hjá Jósef gat orðið vendipunktur í þessum leik og var það einnig þó að Grindvíkingar náðu ekki að jafna. Grinvíkingar sóttu mun meira eftir að þeir urðu manni fleiri.

Hvað þýða úrslitin?

Stjarnan er Fótbolti.net meistari árið 2018 og vel að því komnir. Þeir verða sterkir í sumar

Vondur dagur

Jósef Kristinn fær það í dag, hann fékk gult spjald fyrir grimma tæklingu þótt hann hafi tekið boltann og aðeins 7 mínútum síðar ´togar hann í Jóhann Helga og stoppar álitlega skyndisókn og fær sitt seinna gula spjald.

Dómarinn - 9

Helgi Mikael hafði góð tök á leiknum
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.