SKÝRSLAN: Fáránlegur sjö marka leikur í Egilshöllinni
Hvað réði úrslitum?
Fylkismenn mættu einfaldlega ekki til leiks og fengu á sig tvö mörk á fyrstu tíu mínútunum. Ná að koma sér aftur inní leikinn með marki frá Daða en korteri síðar eru þeir lentir 4-1 undir. Þá var leikurinn svo sannarlega búinn.
Bestu leikmenn
1. Kennie Chophart
Var síógnandi í leiknum og átti þátt í þremur af mörkum KR. Reyndist varnarmönnum Fylkis mjög erfiður og á þennan titil skuldlaust.
2. Pálmi Rafn Pálmason
Skoraði tvö mörk í fyrri hálfleik og skilaði sinni vinnu vel frá sér. Hvarf eilítið í seinni hálfleik en gerði sitt annars bara vel.
Atvikið
Fyrstu tvö mörk KR gerðu í rauninni bara útum þennan leik og fá þau að deila þessum kafla, enda komu þau með mínútu millibili.
Hvað þýða úrslitin?
KR-ingar lyfta sér upp í sjötta sæti á meðan að Fylkir situr enn í næstneðsta sæti.
Vondur dagur
Varnarlína Fylkis var hreinlega ekki til staðar í upphafi leiks og hleypa inn fjórum mörkum á hálftíma. Ari Leifsson braut klaufalega af sér inní teig og tekur því þennan vafasama titil í dag. Hákon Ingi sá einnig aldrei til sólar í leiknum.
Dómarinn - 5
Helvíti kaflaskipt hjá Þóroddi í dag. Gerði hárrétt í vítinu en tók nokkrar skrítnar ákvarðanir. Rétt náði prófinu í dag.



