
Haukar
1
1
ÍR

0-1
Axel Sigurðarson
'6
Gunnar Gunnarsson
'85
, víti
1-1
07.09.2018 - 18:30
Ásvellir
Inkasso deildin - 1. deild karla
Dómari: Helgi Mikael Jónasson
Maður leiksins: Frans Sigurðsson (Haukar)
Ásvellir
Inkasso deildin - 1. deild karla
Dómari: Helgi Mikael Jónasson
Maður leiksins: Frans Sigurðsson (Haukar)
Byrjunarlið:
12. Óskar Sigþórsson (m)
Indriði Áki Þorláksson
6. Þórður Jón Jóhannesson
6. Gunnar Gunnarsson (f)
7. Davíð Sigurðsson
7. Aron Freyr Róbertsson
8. Ísak Jónsson (f)
('73)
('73)
9. Elton Renato Livramento Barros
('73)
('73)
11. Arnar Aðalgeirsson
16. Birgir Magnús Birgisson
24. Frans Sigurðsson
('90)
- Meðalaldur 27 ár
('90)
Varamenn:
2. Kristinn Pétursson
4. Ísak Atli Kristjánsson
13. Aran Nganpanya
16. Oliver Helgi Gíslason
('73)
('73)
17. Gylfi Steinn Guðmundsson
('90)
('90)
Liðsstjórn:
Kristján Ómar Björnsson (Þ)
Hilmar Rafn Emilsson
Hilmar Trausti Arnarsson
Árni Ásbjarnarson
Þórður Magnússon
Ríkarður Halldórsson
Sigurður Stefán Haraldsson
Sigmundur Einar Jónsson
Hólmsteinn Gauti Sigurðsson
Gul spjöld:
Davíð Sigurðsson ('10)
Rauð spjöld:
Leik lokið!
90+6
ÞESSI VARSLA!!!! HELGI BJARGAR STIGI FYRIR ÍR MEÐ STÓRKOSTLEGRI MARKVÖRSLU!!
Arnar Aðalgeirs með skot frá vítateigslínu á lofti sem Helgi ver ótrúlega aftur fyrir. Helgi Mikael flautar svo leikinn af!
Frábær leikur hér á Ásvöllum þar sem bæði lið naga sig líklega í handarbökin að hafa ekki klárað.
Viðtöl og skýrsla koma seinna í kvöld.
ÞESSI VARSLA!!!! HELGI BJARGAR STIGI FYRIR ÍR MEÐ STÓRKOSTLEGRI MARKVÖRSLU!!
Arnar Aðalgeirs með skot frá vítateigslínu á lofti sem Helgi ver ótrúlega aftur fyrir. Helgi Mikael flautar svo leikinn af!
Frábær leikur hér á Ásvöllum þar sem bæði lið naga sig líklega í handarbökin að hafa ekki klárað.
Viðtöl og skýrsla koma seinna í kvöld.
90. mín
Inn:Gylfi Steinn Guðmundsson (Haukar)
Út:Frans Sigurðsson (Haukar)
Bensíndvergurinn kemur inn til að sigla stigi heim að minnsta kosti.
88. mín
Leikurinn er stöðvaður hérna. Þórður Jón og Brynjar Óli skalla hér saman. Standa báðir á fætur og halda leik áfram.
85. mín
VÍTI SEM HAUKAR FÁ!!! Brotið á Frans í teignum. Gunnar Gunnarsson fer á punktinn
83. mín
Inn:Björgvin Stefán Pétursson (ÍR)
Út:Guðfinnur Þórir Ómarsson (ÍR)
Síðasta skipting ÍR í dag.
82. mín
Jón Gísli með enn eina tilraunina, núna fyrir utan teig en Óskar sér aftur við honum. Horn.
78. mín
FÆRI!
Jón Gísli kemst einn inn fyrir en Óskar sér við honum. Vel varið hjá Óskari en Strömvélin hefði getað gert betur
Jón Gísli kemst einn inn fyrir en Óskar sér við honum. Vel varið hjá Óskari en Strömvélin hefði getað gert betur
75. mín
ÞETTA ERU SENUR!! Eftir frábært spil kemst varamaðurinn Oliver í gegn, hann táar boltann en enn og aftur bjarga ÍR á línu. Ég hef varla séð annað eins!!
73. mín
Inn:Oliver Helgi Gíslason (Haukar)
Út:Ísak Jónsson (Haukar)
Tvöföld skipting hjá Haukum.
72. mín
Birgir Magnús með góða fyrirgjöf frá vinstri sem endar í miðjum teignum en enginn mættur á endann á henni!
68. mín
DAUÐAFÆRI!! Andri Jónasson sleppur einn í gegn eftir hroðaleg mistök í vörn Hauka en Óskar gerir frábærlega í markinu og ver frá Andra í horn. Tuttugasta hornspyrna leiksins takk fyrir!
66. mín
Enn eitt færið eftir hornspyrnu Hauka! Nú fer boltinn í þverslánna og yfir. Haukum virðist fyrirmunað að skora hérna!
63. mín
Gult spjald: Axel Sigurðarson (ÍR)
Gult spjald: Axel Sigurðarson (ÍR)
Hamrar aftan í Indriða sem var að æða upp vænginn. Reyndi ekki við boltann, þetta var appelsínugult
61. mín
ÞETTA ER ÓTRÚLEGT!! ENN OG AFTUR BJARGA ÍR Á LÍNU!!! Sá ekki hvernig þetta gerðist nákvæmlega en boltinn var dauður í teignum og menn nánast byrjaðir að fagna.
58. mín
ÓTRÚLEGT!! HVERNIG VAR ÞETTA EKKI MARK? Haukar fá þrjá tilraunir í teignum. Indriði Áki fær boltann upp hægri Kaninn snýr af sér mann og kemur boltanum á Ísak Jóns sem á skot í varnarmann, þaðan dettur boltinn á Aron Frey sem á skot sem Helgi ver og þaðan fer boltinn til Arnars sem á skot sem Helgi ver aftur!!
55. mín
ÍR fá enn eitt hornið í þessum leik. Eftir smá Ping pong endar boltinn hjá Halldóri Arnarssyni en skot hans langt fram hjá.
52. mín
ÍR nálægt aftur. Haukar tapa boltanum á sínum vallarhelming. Endar með því að Aleksandar Kostic fær boltann fyrir utan teig og hann á skot rétt fram hjá markinu.
51. mín
FÆRI! Guffi með sendingu inn fyrir þar sem Jón Gísli kemst einn inn fyrir en í þröngri stöðu og hann þrumar boltanum yfir og fram hjá.
49. mín
Nú fá Haukar hornspyrnu. Frans tekur hana og rís Davíð Sigurðsson hæst í teignum en skalli hans ekki góður og fer langt fram hjá.
48. mín
Þarna munaði litlu! Axel með annað skot úr teignum í þetta skiptið og það sleikir þverslánna!
45. mín
Hálfleikur
Helgi flautar til hálfleiks. Gestirnir eru yfir hér á Ásvöllum eftir 45 mínútur.
45. mín
Arnar Aðalgeirs fellur í teignum og vill fá víti. Helgi segir nei og Aleksandar Kostic ausar sér yfir Arnar og vill meina að hann hafi verið að dýfa sér. Aleksandar verður að passa sig, fékk spjald fyrir það nákvæmlega sama fyrr í leiknum.
43. mín
ÍR fá aukaspyrnu á vitateigshorninu vinstra megin. Boltinn hár inn í teiginn en Haukar vinna á endanum markspyrnu.
42. mín
Frans aftur með tilraun, núna úr aukaspyrnu frá miðjum vallarhelmingi ÍR. Notar vindinn en boltinn fram hjá.
41. mín
Frans með skot af 40 metrunum. Dapurt og langt fram hjá, ætlaði að nota vindinn, tókst ekki.
38. mín
VÁ!! Andri Jónasson fær frían skalla á markteig sem fer beint í hendurnar á Óskari í markinu. Andri var gjörsamlega brjálaður að hafa ekki fengið víti og hoppaði um eins og kengúra fyrir framan Helga dómari. Sá ekki hvað hann vildi fá dæmt á.
34. mín
Aleksandar Kostic tekur spyrnuna upp í vindinn og Haukar skalla í horn. Ekkert varð nema markspyrna úr horninu.
31. mín
JAHÁ!!! Frans með aukaspyrnu lengst utan af kanti sem hann þrumar upp í vindinn og Helgi Freyr þarf að taka á honum stóra sínum til að bjarga í markinu
30. mín
AFTUR!!! Indriði Áki með skalla efir hornspyrnu og nú bjarga ÍR-ingar bókstaflega á marklínu!!
26. mín
Þarna munaði litlu!! Darraðadans eftir horn Haukamanna. Endar með því að Aron Freyr á skot sem ÍR-ingar bjarga nánast á marklínu. Liggur mark í loftinu hjá heimamönnum
24. mín
Ísak Jóns með fína tilraun sem ÍR-ingar komast fyrir og í horn. Ekkert kemur upp úr horninu
22. mín
Haukar sækja hart að marki ÍR þessa stundina en hafa ekki náð að skapa sér færi.
18. mín
Gunnar Gunnarsson þrumar boltanum beint í vegginn og í hausinn á Má fyrirliða ÍR. Hann liggur óvígur eftir, vonum að hann sé í lagi
16. mín
Ísak Jóns með skot á lofti frá vítateigslínunni eftir fyrirgjöf frá Arnari. Skotið töluvert yfir
10. mín
Gult spjald: Aleksandar Alexander Kostic (ÍR)
Gult spjald: Aleksandar Alexander Kostic (ÍR)
Davíð með tæklingu á miðjum velli og ÍR-í var gjörsamlega sturlast. Helgi spjaldar Davíð fyrir brotið og Aleksander fyrir að hlaupa í átt að Davíð og lesa honum pistilinn
8. mín
Annað horn hjá ÍR þar sem það skapast hætta. Haukar ná þó að bægja hættunni frá að lokum
6. mín
MARK!
MARK!Axel Sigurðarson (ÍR)
MAAAARK!!
ÍR eru komnir yfir!! Hornspyrna sem var tekin föst og lágt á nærstöngina þar sem Axel var mættur og setti boltann í nær hornið fram hjá Óskari í markinu! Þetta byrjar fjörlega hérna í rokinu!!
ÍR eru komnir yfir!! Hornspyrna sem var tekin föst og lágt á nærstöngina þar sem Axel var mættur og setti boltann í nær hornið fram hjá Óskari í markinu! Þetta byrjar fjörlega hérna í rokinu!!
1. mín
Fyrsta hornið er Haukamanna. Vindurinn mun spila stóra rullu hérna í dag það er ljóst.
Fyrir leik
Styttist í að leikurinn hefjist, bæði lið farin inn í klefa og nokkrar hræður mættar í stúkuna. Það blæs ansi hressilega á Blásvöllum í dag.
Fyrir leik
Liðin mættust í Breiðholtinu fyrr í sumar, nánar tiltekið þann 29.júní og þá völtuðu Haukamenn yfir Breiðhyltinga. Lokatölur þann daginn voru 4-0.
Eftir þann sigurleik unnu hins vegar Hafnfirðingar ekki leik fyrr en í þar síðustu umferð þegar þeir lögðu Fram af velli og í kjölfarið unnu þeir svo óvæntan sigur á Þrótturum í Laugardalnum.
ÍR-ingar hafa aðeins náð í einn sigur í síðustu fimm leikjum sínum og þyrstir þá líklega í að hefna fyrir ófarirnar gegn Haukum fyrr í sumar.
Eftir þann sigurleik unnu hins vegar Hafnfirðingar ekki leik fyrr en í þar síðustu umferð þegar þeir lögðu Fram af velli og í kjölfarið unnu þeir svo óvæntan sigur á Þrótturum í Laugardalnum.
ÍR-ingar hafa aðeins náð í einn sigur í síðustu fimm leikjum sínum og þyrstir þá líklega í að hefna fyrir ófarirnar gegn Haukum fyrr í sumar.
Fyrir leik
Haukar eru aðeins betur settir en Breiðhyltingar fyrir leikinn í dag og sitja í 8.sæti með 20 stig. ÍR-ingar eru tveimur sætum neðar í töflunni eða í 10.sæti og hafa náð í 17 punkta.
Með sigri í dag geta Haukar nánast endanlega tryggt sæti sitt í deildinni en það veltur líka á öðrum úrslitum í þessari umferð.
ÍR getur komið sér einnig í mjög vænlega stöðu með sigri á Ásvöllum í dag og því um sannkallaðan sex stiga leik að ræða.
Með sigri í dag geta Haukar nánast endanlega tryggt sæti sitt í deildinni en það veltur líka á öðrum úrslitum í þessari umferð.
ÍR getur komið sér einnig í mjög vænlega stöðu með sigri á Ásvöllum í dag og því um sannkallaðan sex stiga leik að ræða.
Fyrir leik
Leikur dagsins er afar mikilvægur fyrir bæði lið en þau eru bæði að berjast við falldrauginn fræga og reyna að forðast það að lið þeirra spili í 2.deild að ári.
Byrjunarlið:
Helgi Freyr Þorsteinsson
Halldór Arnarsson
4. Már Viðarsson (f)
('60)
('60)
6. Gísli Martin Sigurðsson
7. Jón Gísli Ström
8. Aleksandar Alexander Kostic
('65)
('65)
11. Guðfinnur Þórir Ómarsson
('83)
('83)
13. Andri Jónasson
15. Teitur Pétursson
16. Axel Sigurðarson
24. Halldór Jón Sigurður Þórðarson
- Meðalaldur 30 ár
Varamenn:
1. Steinar Örn Gunnarsson (m)
9. Björgvin Stefán Pétursson
('83)
('83)
10. Viktor Örn Guðmundsson
17. Jesus Suarez Guerrero
('65)
('65)
19. Brynjar Óli Bjarnason
('60)
('60)
Liðsstjórn:
Ásgeir Aron Ásgeirsson (Þ)
Brynjar Þór Gestsson (Þ)
Styrmir Erlendsson
Eyjólfur Þórður Þórðarson
Davíð Örn Aðalsteinsson
Gul spjöld:
Aleksandar Alexander Kostic ('10)
Axel Sigurðarson ('63)
Rauð spjöld:
