Morgan Rogers, Yan Diomande, Mohamed Salah og Jack Grealish koma allir við sögu í Powerade-slúðurpakka dagsins.
Morgan Rogers (23), leikmaður Aston Villa, er opinn fyrir því að fara frá Aston Villa í sumar. Chelsea, Liverpool, Arsenal og Manchester United eru öll sögð á með hann á óskalistanum. (Sun)
RB Leipzig hefur sett 87 milljóna punda verðmiða á Fílabeinsstrendinginn Yan Diomande (18), sem bæði Liverpool og Manchester United eru á eftir. (Sky Sports)
Sádi arabíska deildin hefur tekið næsta skref í viðræðum við Mohamed Salah (33), leikmann Liverpool og eru stjórnendur deildarinnar fullvissir um að það náist samkomulag áður en HM fer af stað. (Teamtalk)
Everton hefur mikla trú á því að enski vængmaðurinn Jack Grealish, sem er á láni frá Manchester City, muni spila með liðinu á næstu leiktíð. (Daily Mail)
Man City, PSG og Arsenal hafa öll áhuga á spænska landsliðsmanninum Dani Olmo (27) sem er á mála hjá Barcelona, en félagið er sagt opið fyrir því að selja þennan öfluga sóknartengilið. (Fichajes)
Atlético Madríd er að ganga frá kaupum á brasilíska landsliðsmanninum Ederson (26) frá Atalanta, en Man Utd og Man City hafa einnig sýnt honum áhuga. (Fabrizio Romano)
Pep Guardiola, stjóri Man City, mun ekki taka ákvörðun um framtíð sína fyrr en eftir tímabilið. (Telegraph)
Man Utd vill bæta tveimur miðjumönnum við hópinn í sumar en ensku landsliðsmennirnir Elliot Anderson (23, sem spilar með Nottingham Forest, og Adam Wharton (22) hjá Crystal Palace eru á óskalistanum ásamt Sandro Tonali (25) sem spilar með Newcastle United. (Givemesport)
Arsenal hefur áfram áhuga á spænska varnarmanninum Victor Valdepenas (19) hjá Real Madrid, en félagið mun fá samkeppni frá ítalska félaginu AC Milan. (Caughtoffside)
Portúgalski miðjumaðurinn Bernardo Silva mun yfirgefa Man City er samningur hans rennur út í sumar. Hann er sagður vera að meta og vega kostina sem eru í boði. (Fabrizio Romano)
Barcelona er með auga á Karim Adeyemi (24), leikmanni Borussia Dortmund fyrir sumarið. (Fichajes).
Crysencio Summerville (24), sóknarmaður West Ham, er í sigtinu hjá Aston Villa, Everton, Marseille, Napoli og Tottenham. (Teamtalk).
Crystal Palace er í leit að nýjum stjóra fyrir sumarið en það er talið ólíklegt að Andoni Iraola muni hætta með Bournemouth og taja við liðinu í sumar. (Sky Sports)

