SKÝRSLAN: Stórsigur Keflvíkinga og fyrsta þrennan í 6 ár
Hvað réði úrslitum?
Stórkostlegur fyrri hálfleikur Keflvíkinga með Adam Árna fremstan í flokki réði úrslitunum í dag. Brekkan varð of brött fyrir Mosfellinga í seinni hálfleikinn og erfitt verkefni varð að vonlausu þegar Keflvík skoraði strax í upphafi síðari hálfleiks.
Bestu leikmenn
1. Adam Árni Róbertsson
Adam skoraði þrennu í dag. Þrennan var sú fyrsta sem karlalið Keflavíkur skorar í deildarkeppni síðan árið 2013.
2. Rúnar Þór Sigurgeirsson
Rúnar var baneitraður í vinstri bakverði í kvöld og átti fullt af flottum sprettum upp kantinn sem varnarmenn Aftureldingar áttu fá svör við.
Atvikið
Þriðja mark Adams á 44' mínútu sem gerði nánast útum leikinn. Hörður Sveinsson var síðasti leikmaður Keflavíkur sem skoraði þrjú mörk í deildarkeppni árið 2013, þá var Adam Árni aðeins 14 ára gamall.
Hvað þýða úrslitin?
Úrslitin þýða að Keflavík trónir eitt á toppi Inkasso deildarinar. Þórsarar geta þó náð þeim að stigum með sigri gegn Gróttu á morgun.
Vondur dagur
Varnarlína Aftureldingar hefði mátt vera betri og má deila með sér þessum skammarverðlaunum. Ondo hefur átt betri daga í boltanum, fyrsta snertingin hans klikkaði of oft í kvöld.
Dómarinn - 8
Ekki mikið að vafa atriðum í kvöld nema eitt tilkall sem Mosfellingar gerðu til að fá vítaspyrnu. Heilt yfir hafi Guðmundur góð tök á leiknum.



