Fotbolti.net
@OrriRafnOrri Rafn Sigurðarson
Orri Rafn Sigurðarson
Inkasso deildin - 1. deild karla
Eimskipsvöllurinn
Blautt grasið, léttskýjað og ágætlega hlýtt
Þróttur R.
Þróttur R.
1 - 2
Víkingur Ó.
Víkingur Ó.
0 - 13' Jacob Getachew AndersenBirkir Þór Guðmundsson 66'1 - 11 - 277' Harley Willard
Dómari: Sigurður Hjörtur Þrastarson
Myndir: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

SKÝRSLAN: Ólsarar stálu þremur stigum í Laugardalnum

Hvað réði úrslitum?

Það er eiginlega ótrúlegt að Víkingur Ó. hafi unnið þennan leik. Þeir skora eftir 3 mínútur og fyrri hálfleikur sem var mjög bragðdaufur rennur bara út. Þróttur byrjar hinsvegar síðari hálfleik af miklum krafti og uppsker jöfnunarmark eftir mikla pressu, þeir hinsvegar nýta færin sín ekki nógu vel á meðan Víkingar kláruðu annað af sínum tveimur færum sem þeir fengu í síðari hálfleik og sigla þar með þremur stigum heim.

Bestu leikmenn

1. Emmanuel Eli Keke (Víkingur Ó)

Eins og klettur í vörninni. Hann er alltaf góður og á sjaldan slæma leiki, stóð vaktina í dag af stakri prýði. Var virkilega öflugur sérstaklega í síðari hálfleik þegar sem mest lá á vörn Ólsarar

2. Aron Þórður Albertsson (Þróttur R.)

Aron var virkilega sprækur i liði heimamanna í kvöld og ógnaði mikið. Hann átti nokkrar góðar spyrnur úr föstum leikatriðum og virtist gíraður frá fyrstu mínútu.

Atvikið

Ætla setja markið hans Harley sem sækir þessi þrjú stig á 77. mínútu eftir að Ólsara lágu nánast bara í vörn í síðari hálfleik. Einnig skemmtilegt atvik með Vignir Snær þegar hann fékk gult fyrir töf á 90. mín sem hann útskýrir nánar í viðtalið á síðunni.

Hvað þýða úrslitin?

Heimamenn í Þrótti leita enn að sínum fyrsta sigri á meðan gestirnir frá Ólafsvík eru enn taplausir eftir 3.umferðir.

Vondur dagur

Ég ætla bara setja ennan vonda dag á fyrri hálfleikinn. Hann bauð upp á nánast nákvamlega ekkert fyrir utan þetta mark á 3. mínútu.

Dómarinn - 8

Virkilega solid í dag
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.