Fotbolti.net
@AddiLaufArnar Laufdal Arnarsson
Arnar Laufdal Arnarsson
Inkasso deild kvenna
Varmárvöllur - gervigras
Logn og skýjað
Afturelding
Afturelding
1 - 0
ÍA
ÍA
Samira Suleman 39'1 - 0
Dómari: Eysteinn Hrafnkelsson
Myndir: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

SKÝRSLAN: Yfirburðir Aftureldingar í Mosfellsbæ

Hvað réði úrslitum?

Mark Samiru skildi liðið að í kvöld, Afturelding átti helling af færum og hefðu mörkin geta verið mun fleiri í kvöld, en þetta eina mark dugði til sigurs.

Bestu leikmenn

1. Samira Suleman

Samira átti frábæran leik á kantinum, mikill hraði og áræðni og hefði getað skorað meira en eitt mark í þessum leik. Skorar markið sem skilur liðin að

2. Hafrún Rakel Halldórsdóttir

Skagastelpur voru í miklum vandræðum með Hafrúnu sem var gríðarlega hættuleg á hægri kantinum og skapaði líklegast mest fyrir þær rauðu í leiknum.

Atvikið

Frábæra Mark Samiru sem skilur liðin að, gefur Aftureldingu frábær 3 stig til að taka með sér inn í næsta leik.

Hvað þýða úrslitin?

Úrslitin þýða einfaldlega að Afturelding er komið 2 stigum fyrir ofan ÍA í töflunni, Skagastelpur eiga hinsvegar einn leik til góða á Aftureldingu og liðin fyrir ofan, sá leikur er gegn unglingaliði Augnabliks og getur ÍA komist í 4. sæti með sigri þar.

Vondur dagur

Framlína ÍA í dag var ekki upp á marga fiska í dag og sköpuðu þær sér rosa lítið í kvöld. Þær þurfa klárlega að vera hættulegari í næsta leik ef skaginn ætlar að ná í úrslit í næstu leikjum.

Dómarinn - 6,5

Stóð sig ágætlega í þessum leik, líklegast rétt dæmt hjá honum að dæma ekki vítin sem skaginn vildi fá, annars var ekki mikið sem hægt er að segja um frammistöðu hans í kvöld.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.