Fotbolti.net
@saebjornthSæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Úrslitakeppni 4. deildar
Würth völlurinn
Talsverður vindur, rigning og 7°C.
Elliði
Elliði
4 - 1
Hvíti riddarinn
Hvíti riddarinn
Daníel Steinar Kjartansson 21'1 - 0Nikulás Ingi Björnsson 38'2 - 02 - 165' Magnús Már EinarssonÓðinn Arnarsson 68'3 - 1Aron Breki Aronsson 72'4 - 1
Dómari: Egill Arnar Sigurþórsson

SKÝRSLAN: Elliði upp í 3. deild eftir sannfærandi sigur

Hvað réði úrslitum?

Gæði Elliða voru talsvert meiri. Það kom hinsvegar upp smá kafli þar sem Hvíti jafnaði einvígið en leikmenn Elliða héldu haus og kláruðu verkefnið með prýði.

Bestu leikmenn

1. Nikulás Ingi Björnsson (Elliði)

Frábær í dag. Tvær stoðsendingar og eitt mark. Síógnandi og hljóp endalaust.

2. Pétur Óskarsson (Elliði)

Ein frábær stoðsending og jafnvel önnur í 4. marki Elliða. Stoðsendingin var hreint út sagt mögnuð. Auk hennar var Pétur með mikil gæði í sínum aðgerðum og hljóp eins og tittlingur.

Atvikið

Annað mark Elliða. Þvílíkt augnakonfekt. Pétur vippar boltanum yfir varnarlínu Hvíta og Nikulás kláraði laglega.

Hvað þýða úrslitin?

Elliði er komið upp í 3. deild og leikur til úrslita við Ægi um sigur í 4. deild. Hvíti mætir Kormák/Hvöt í leiknum um 3. sætið í deildinni sem, ef allt er eðlilegt, gefur sigurvegaranum ekkert nema stoltið.

Vondur dagur

Wentzel Steinarr og Eiríkur Þór (spilaði að vísu meiddur stærstan part leiksins) voru því miður ekki upp á marga fiska í kvöld. Sýndu einhver gæði hér og þar en ekki nóg.

Dómarinn - Átta - 8

Egill stóð sig vel í kvöld. Ekki fullkomin frammistaða en mér fannst öll spjöld og lykilatriði vera rétt metin.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.