SKÝRSLAN: Ægismenn sigldu þægilega aftur upp í 3.deild
Hvað réði úrslitum?
Liðsframmistaða Ægis í þessum leik. Ægismenn komust snemma í 2-0 og einfaldlega lokuðu á allar sóknaraðgerðir gestanna og sigldu sigrinum þægilega heim.
Bestu leikmenn
1. Goran Potkozorac
Var hættulegur allan leikinn og var að valda varnarmönnum Kormáks Hvatar vandræði allan leikinn. Skoraði fyrsta markið sem gaf tóninn fyrir það sem koma skyldi
2. Stefan Dabetic
Erfitt að taka einn leikmann útúr liðsframmistöðu en Stefan hélt Diego Moren Minguez algjörlega í skefjum sem komst lítt áleiðis í dag
Atvikið
Lokaflautið sem endanlega tryggði Ægismönnum þátttöku í 3.deild á næsta ári og áhorfendum tækifæri að komast aftur heim í hlýjuna.
Hvað þýða úrslitin?
Ægismenn spila í 3.deild á næsta ári á meðan Kormákur/Hvöt þarf að bíta í það súra epli að spila aftur í 4.deild á næsta ári.
Vondur dagur
Juan Carlos Dominguez átti ekki góðan dag, var sífröflandi og brjótandi á sér í leiknum, stálheppinn að fá ekki annað gula spjaldið sitt og endaði á því að meiðast. Slakur dagur þar. Þá átti markamaskínan Diego Moreno Minguez afar erfitt uppdráttar og komst ekkert áleiðis gegn sterkri vörn Ægismanna
Þá er vert að nefna kuldabola sem átti afar slæman dag og frysti nær alla áhorfendur í dag. Hrikalega kalt úti.
Dómarinn - 7
Heilt yfir flottur en það sem dregur hann niður eru nokkrir skrítnir dómar og ódýrar aukaspyrnur sem voru engan vegin í takt við línuna sem hann hafði lagt auk þess sem hann hefði hreinlega átt að henda Juan Carlos í sturtu fyrir almenn leiðindi



