SKÝRSLAN: Skagastúlkur áfram í Inkasso
Hvað réði úrslitum?
Áræðni heimakvenna sigldi þessu fyrir þær, þær sýndu mikla baráttu og ætluðu sér greinilega að halda sæti sínu í þessari deild.
Bestu leikmenn
1. Sigrún Eva Sigurðardóttir
Skoraði fyrsta mark leiksins og átti margar hættulegar sendingar sem sköpuðu usla.
2. Niamh Monica Coombes
Gerði allt rétt í markinu í dag og hélt því hreinu, markmenn beggja liða áttu góðan leik en Coombes fær þessa tilnefningu.
Atvikið
Seinna mark heimakvenna gerði algjörlega út um leikinn en Afturelding hafði verið að vinna sig inn í leikinn. Eftir þetta mark var þetta aldrei spurning.
Hvað þýða úrslitin?
Skagakonur halda sæti sínu í deildinni og Afturelding siglir áfram lignan sjó en staða þeirra var aldrei í raunverulegri hættu.
Vondur dagur
Enginn einn leikmaður sem kemur til greina hér, sóknarlína Aftureldingar sást lítið í fyrri hálfleik en stóðu sig betur í þeim seinni svo ég hugsa að ég sleppi þessum vafasama heiðri í dag.
Dómarinn - 7
Engar vondar ákvarðanir frá teyminu í dag, dæmdi nokkrum sinnum vitlaust innkast réttilega en var of oft fyrir í augljósum sendingarleiðum og fékk boltann oftar en einu sinni í sig fyrir vikið.



