0. mín
Komiði sæl og verið velkomin í beina textalýsingu frá viðureign Keflavíkur og Selfoss í 9. umferð Pepsi-deildar karla.
0. mín
Hjá Keflavík er gerð ein breyting frá síðasta leik sem var 0-2 sigur á Fram. Denis Selimovic kemur inn fyrir Einar Orra Einarsson sem er í leikbanni.
0. mín
Hjá Selfoss koma Sigurður Eyberg Guðlaugsson og Andri Freyr Björnsson og Joe Tillen inn fyrir Ivar Skjerve, Moustapha Cisse og Endre Ove Brenne frá síðasta leik sem var 1 - 2 tap gegn Fylki.
1. mín
Leikurinn er hafinn. Selfyssingar byrja með boltann og leika í átt að íþróttahúsinu. Þeir leika í argentíska landsliðsbúningnum, röndóttum hvítum og lljósbláum treyjum og svörtum buxum. Keflavík er í hefbundnum dökkbláum búningum.
5. mín
Arnór Ingvi var kominn í gott færi í teignum en setti boltann í þverslá og þaðan aftur fyrir endamörk.
10. mín
Sigurbergur Elísson var kominn í gott færi í teignum eftir gott samspil sem endaði á að Jóhann Birnir lagði á hann, hann tók fast skot sem Ismet Duracak markvörður Selfoss varði.
19. mín
Arnór Ingvi skallaði rétt framhjá marki Selfyssinga. Bæði lið hafa skipst á að sækja og þó svo Keflavíkur liðið hafi átt betri færi hefur Selfoss verið meira með boltann fram á við.
25. mín
Gult spjald
Ingvi Rafn Óskarsson
Babacarr Sarr fær áminningu fyrir að fara aftan í Guðmund Steinarsson. Stuðningsmenn Selfyssinga ósáttir við það því hinum megin á vellinum slapp Denis Selimovic við spjald skömmu áður fyrir vel spjaldavert brot. Einn stuðningsmaður gekk svo langt að kalla Örvar Sæ rasista úr stúkunni en eins og fólki er kunnugt um er Sarr svartur á hörund.30. mín
Keflvíkingar halda áfram að vera miklu líklegra liðið til að skora hérna í kvöld. Núna átti Guðmundur Steinarsson skot rétt yfir mark Selfyssinga úr aukaspyrnu á hættulegum stað.
38. mín
MAAAARK!
Jóhann Birnir Guðmundsson
Keflvíkingar eru komnir yfir. Frans Elvarsson átti frábæra sendingu út á vinstri kantinn á Jóhann Birni sem fór framhjá tveimur og skoraði með föstu skoti úr teignum á markið.45. mín
Sigurbergur Elísson kom upp hægri kantinn á miklum spretti, framhjá varnarmönnum og var að keyra inn í teiginn þegar Babacarr Sarr braut á honum og dæmd aukaspyrna rétt fyrir utan vítateigslínuna. Sarr var kominn með gult fyrir og heppinn að fá ekki annað þarna. Ekkert kom úr aukaspyrnunni.
45. mín
Það er kominn hálfleikur. Keflavík leiðir í hálfleik með einu marki gegn engu.
46. mín
Síðari hálfleikur er hafinn. Engin breyting hefur verið gerð á liðunum.
47. mín
MAAAARK!
Arnór Ingvi Traustason
Arnór Ingvi var fljótur að bæta við öðru marki Keflavíkur. Jóhann Ragnar sendi boltann af vinstri kantinum inn í teiginn, Guðmundur Steinarsson flikkaði honum aftur fyrir sig á Arnór Ingva sem skoraði af öryggi með skoti í teignum.49. mín
Joe Tillen í dauðafæri en vippaði boltanum upp í hendurnar á Ómari markverði Keflavíkur.
54. mín
InnAndrew James Pew
ÚtÞorsteinn Daníel Þorsteinsson
60. mín
Guðmundur Steinarsson gerði heiðarlega tilraun til að skora frá miðjum vellinum með þrumuskoti sem fór rétt framhjá marki Selfyssinga.
62. mín
InnÓlafur Karl Finsen
ÚtJoe Tillen
62. mín
InnMoustoupha Cissé
ÚtTómas Leifsson
63. mín
Gult spjald
Tómas Leifsson
Tómas var farinn af velli en Örvar Sær dómari elti hann og gaf honum spjald. Eflaust fyrir kjaftbrúk.66. mín
Ómar er búinn að verja í tvígang frá Jóni Daða. Síðara skotið var beint úr aukaspyrnu og Ómar rétt náði að koma boltanum í horn.
66. mín
Gult spjald
Frans Elvarsson
Frans fær verðskuldað spjald fyrir brot á Robert Sandnes á miðjum vallarhelmingi Keflvíkinga. Í kjölfarið fékk Selfoss aukaspyrnu sem Viðar Örn skallaði beint á Ómar eftir.69. mín
InnMagnús Sverrir Þorsteinsson
ÚtArnór Ingvi Traustason
Arnór Ingvi fer meiddur af velli.
72. mín
Haraldur Freyr brýtur á Cisse innan teigs en Örvar Sær dæmir ekkert. Selfyssingar eru vægast sagt ósáttir í stúkunni.
73. mín
InnBojan Stefán Ljubicic
ÚtJóhann Birnir Guðmundsson
74. mín
Viðar Örn í góðu færi í teignum en skaut beint á Ómar sem bjargaði í horn.
75. mín
Fljótlega brestur þessi stífla. Selfoss sækir stíft á mark Keflavíkur síðan markið kom. Núna átti Agnar Bragi fast skot á markið sem Ómar mátti hafa sig allan við að verja.
79. mín
Ólafur Karl kom upp að vítateignum og þrumaði á markið, boltinn hafði viðkomu í varnarmanni og fór rétt yfir markið.
84. mín
MAAAARK!
Ingvi Rafn Óskarsson
Þar brast stíflan. Babacarr Sarr minnkar muninn með skalla eftir hornspyrnu Ólafs Karls Finsen.89. mín
InnHilmar Geir Eiðsson
ÚtSigurbergur Elísson
90. mín
MAAAARK!
Jón Daði Böðvarsson
Selfyssingar jafna metin verðskuldað eftir að hafa legið á marki Keflavíkur allan seinni hálfleikinn. Eftir kiks inn í teiginn endaði boltinn hjá Jóni Daða sem afgreiddi færið vel.Leik lokið!
Leiknum er lokið með 2 - 2 jafntefli. Viðtöl og frekari umfjöllun koma hér á Fótbolta.net síðar í kvöld.



