Fotbolti.net
@kristoferjonssKristófer Jónsson
Kristófer Jónsson
Breiðablik
Breiðablik
Pepsi Max-deild karla
Kópavogsvöllur
Smá vindur og skítkalt
2 - 1
Stjarnan
Stjarnan
0 - 128' Alex Þór Hauksson Viktor Karl Einarsson 34'1 - 1Thomas Mikkelsen (víti) 63'2 - 1
Dómari: Sigurður Hjörtur Þrastarson
Leik lokið!
Elfar Freyr af öllum mönnum að sleppa hérna í gegn en sending Brynjólfs er alltof sein. Í sömu andrá flautar Sigurður Hjörtur til leiksloka. Sanngjarn 2-1 sigur Blika staðreynd.
91. mín
Tveimur mínútum bætt við.
Stjarnan
88. mín
InnElís Rafn Björnsson
ÚtHalldór Orri Björnsson
Halldór búinn að vera slakur í dag.
Breiðablik
85. mín
InnAlexander Helgi Sigurðarson
ÚtViktor Karl Einarsson
Fyrri markaskorari Blika tekinn af velli.
83. mín
BRYNJAR GAUTI NÁLÆGT ÞVÍ AÐ SKORA SJÁLFSMARK!!!! Höskuldur kemur á fleygjiferð inní teig og ætlar að renna honum á Thomas. Brynjar Gauti nær að renna sér fyrir og boltinn rétt lekur yfir markið.
Stjarnan
82. mín
InnÓli Valur Ómarsson
ÚtSölvi Snær Guðbjargarson
Stjarnan
82. mín
InnÍsak Andri Sigurgeirsson
ÚtGuðjón Baldvinsson
Breiðablik
78. mín
Gult spjald

Davíð Ingvarsson

Stjarnan
78. mín
Gult spjald

Halldór Orri Björnsson

78. mín
Allt að verða vitlaust! Alex dæmdur brotlegur og fylgir eftir með tæklingu á Thomas sem að bregst illa við og ýtir í Alex. Eftir það verða allskonar menn reiðir. Davíð og Halldór Orri fara í bókina.
77. mín
Thomas Mikkelsen með tilraun eftir að boltinn dettur til hans en skot hans er hátt yfir.
72. mín
Davíð tekur spyrnuna sem að Höskuldur nær að skalla en er flaggaður rangstæður.
71. mín
Brynjar Gauti brýtur hér klaufalega á Thomasi rétt við vítateigshornið.
70. mín
Hilmar rennir honum út á Heiðar sem að reynir fyrirgjöf en Thomas Mikkelsen kastar sér fyrir hana. Boltinn hrekkur svo aftur af Heiðari og aftur fyrir endamörk. Aum tilraun.
69. mín
Guðjón vinnur hér mjög soft aukaspyrnu sem að Hilmar Árni ætlar að taka.
68. mín
Aðeins meira líf komið í Stjörnuna eftir þetta mark en bíðum ennþá eftir marktilraun frá þeim.
Breiðablik
63. mín
MAAAARK!

Thomas Mikkelsen

OG HANN SKORAR!!!! Mikkelsen gríðarlega öruggur og Halli ekki nálægt því að verja, þrátt fyrir að fara í rétt horn. Verður alvöru brekka fyrir Stjörnuna.
62. mín
BLIKAR FÁ VÍTI!!!!! Brynjólfur fer hér illa með Alex sem að tekur hann niður í teignum. Hárrétt.
61. mín
Þetta er eiginlega alveg drepleiðinlegt hérna. Stjörnumenn gríðarlega þéttir og Blikar eiga fá svör.
55. mín
Oliver með skot af 25 metrum sem að Halli ver í horn.
53. mín
Þessar fyrstu mínútur síðari hálfleiks hafa einkennst að því að Blikar sækja og Stjörnumenn koma boltanum frá. Gjörsamlega bara leikið á eitt mark.
49. mín
Viktor Karl geysist hér upp völlinn og fer illa með Alex Þór. Hann virðist vera kominn í fínt skotfæri en ákveður að reyna að lauma honum á Thomas en sendingin er afleit og sóknin rennur út í sandinn.
46. mín
Oliver með góðan snúning rétt fyrir utan teig og fínt skot sem að Halli ver vel.
Breiðablik
46. mín
InnHöskuldur Gunnlaugsson
ÚtAndri Rafn Yeoman
Leikurinn hafinn aftur og Blikar gera breytingu. Andri Rafn búinn að vera góður í dag. Höskuldur tekur við bandinu.
45. mín
Sigurður Hjörtur flautar hér til hálfleiks á Kópavogsvelli. Allt í járnum í ágætis fótboltaleik.
45. mín
Einni mínútu bætt við.
44. mín
Blikar sækja hér hratt. Brynjólfur fær boltann úti vinstra meginn og færir hann yfir á Andra Rafn hægra meginn sem að leggur hann fyrir Viktor Karl við vítateigslínuna. Viktor skýtur að marki en það er beint á Halla í markinu.
Breiðablik
39. mín
Gult spjald

Thomas Mikkelsen

Með löppina aðeins of hátt í Heiðar.
Stjarnan
35. mín
Gult spjald

Alex Þór Hauksson

Straujar Andra Rafn. Blikar kölluðu eftir öðrum lit þarna.
Breiðablik
34. mín
MAAAARK!

Viktor Karl Einarsson (stoðsending: Andri Rafn Yeoman )

BLIKARNIR BÚNIR AÐ JAFNA!!!!!! Róbert Orri með sendingu inní teig sem að er aðeins of há fyrir Mikkelsen. Andri Rafn nær hinsvegar til boltans og setur hann snöggt fyrir þar sem að Viktor Karl er mættur og neglir honum inn.
30. mín
GUÐ MINN ALMÁTTUGUR THOMAS MIKKELSEN!!!! Gísli Eyjólfs nær lúmsku skoti rétt fyrir utan teig sem að Halli missir útí teiginn á Thomas sem að er einn fyrir opnu marki en skóflar boltanum yfir. Sjaldséð sjón frá danska markahróknum.
Stjarnan
28. mín
MAAAARK!

Alex Þór Hauksson (stoðsending: Jósef Kristinn Jósefsson )

VÁ ALEX ÞÓR TAKE A BOW!!!!!! Þvert gegn gangi leiksins. Jósef rennir honum út á Alex sem að fær tíma 30 metrum frá markinu og hann þakkar pent fyrir sig og smyr honum í samskeytin. Geggjað mark.
28. mín
Damir með frábæra fyrirgjöf á Thomas sem að er aleinn en aftur er skalli hans bint á Halla.
27. mín
Brynjólfur með tilraun langt utan teigs en það er hátt yfir markið.
25. mín
Damir með fyrirgjöf beint á pönnuna á Mikkelsen en skallinn er laus og beint á Halla.
22. mín
Thomas Mikkelsen með fína tilraun úr mjög svo erfiðari stöðu en boltinn fer framhjá markinu. Blikarnir líklegri fyrstu tuttugu.
Breiðablik
20. mín
Gult spjald

Andri Rafn Yeoman

Missir boltann klaufalega til Sölva Snæs og bregst við með því að toga hann niður.
18. mín
Daníel Laxdal sendir hérna beint á Thomas Mikkelsen sem að skýtur í átt að marki en það er beint á Halla.
12. mín
Elfar Freyr með langa sendingu inná teig og Thomas er ekki langt frá því að ná að taka boltann niður en touchið svíkur hann aðeins og hann missir boltann útaf.
9. mín
Sölvi Snær með góða fyrirgjöf sem að bæði Guðjón og Þorsteinn Már missa af.
7. mín
Stjörnumenn rjúka upp í skyndisókn eftir aðra hornspyrnu Blika sem að endar með misheppnuðu skoti Sölva beint í fangið á Antoni Ara.
5. mín
Oliver með góðan bolta inní teig sem að Elfar reynir að skalla fyrir en aftur er Daníel Laxdal fastur fyrir og kemur boltanum í horn.
4. mín
Thomas Mikkelsen kominn hér í fína stöðu eftir frábæra sendingu Olivers en Daníel Laxdal er fljótur að átta sig og rennir sér fyrir hann. Góð vörn.
1. mín
Stjarnan byrjar.
Fyrir leik
Þá hlaupa leikmenn inná völlinn hver á eftir öðrum frá allskonar stöðum. Brynjólfur með bleikt og blátt hár í dag. Það er bara glæsilegt.
Fyrir leik
Byrjunarliðin eru klár. Breiðablik gerir tvær breytingar á liði sínu frá síðasta leik. Oliver Sigurjónsson kemur inn fyrir Höskuld Gunnlaugsson og tekur einnig fyrirliðabandið af honum. Þá kemur Damir Muminovic inn í stað Viktors Arnar Margeirssonar. Stjörnumenn gera einnig tvær breytingar á liði sínu. Guðjón Pétur Lýðsson er á láni frá Breiðablik og er því ekki gjaldgengur í leikinn í dag. Þá kemur Elís Rafn Björnsson einnig út. Þeir Halldór Orri Björnsson og Jósef Kristinn Jósefsson koma inn. Liðin má sjá hér til hliðar.
Fyrir leik
Jón Þór Hauksson, þjálfari A-landsliðs kvenna, er sérstakur spámaður Fótbolta.net í þessari umferð og þetta hafði hann um þennan leik að segja: Breiðablik 1 - 3 Stjarnan ,,Þetta verður svakalegur slagur. Bæði lið eru í vandræðum eftir slæm úrslit. Mínir fyrrum félagar snúa við blaðinu og taka þetta örugglega. Ævar Ingi kemur inná sem varamaður og setur setur tvö, Hilmar Árni eitt úr víti."
Fyrir leik
Breiðablik hefur tapað síðustu þremur leikjum sínum, tveimur í deild og einum í bikar, og hafa legið undir talsverðri gagnrýni. Stjörnumenn koma inní þennan leik í kjölfar 5-1 taps gegn Val á heimavelli, en var það fyrsti tapleikur liðsins í deildinni í sumar. Bæði lið hafa því fullt að sanna hér í kvöld.
Fyrir leik
Bæði lið eru í harðri baráttu um Evrópusæti en heimamenn í Breiðablik eru í 5.sæti með 23 stig á meðan að gestirnir frá Garðabæ eru í 3.sæti með 24 stig. Sannkallaður sex stiga leikur.
Fyrir leik
Komiði sæl og blessuð lesendur góðir og veriði hjartanlega velkomin í þessa beinu textalýsingu á derby leik Breiðabliks og Stjörnunnar í Pepsi Max-deild karla.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.