Fotbolti.net
Arnar Laufdal Arnarsson
Arnar Laufdal Arnarsson
Pepsi Max-deild karla
Kópavogsvöllur
Smá vindur, gervigrasið blautt og síðdegis sólin fer að segja sitt síðasta bráðum
Breiðablik
Breiðablik
1 - 1
KA
KA
0 - 118' Sveinn Margeir HaukssonViktor Karl Einarsson 53'1 - 1
Dómari: Þorvaldur Árnason
Áhorfendur: 303
Leik lokið!
1-1 niðurstaða hér í Kópavogi..

Þakka fyrir samfylgdina í kvöld og minni á viðtöl og skýrslu á eftir.
KA
91. mín
InnÞorri Mar Þórisson
ÚtHallgrímur Mar Steingrímsson
90. mín
+2
88. mín
Dauðafæri!!

Viktor Örn með frábæra sendingu á fjærstöng og þar er Mikkelsen sem var í dauðafæri en skallar framhjá....
85. mín
KA fær aukaspyrnu á stórhættulegum stað bara á vítateigshorninu!

Hallgrímur Mar tekur hana en spyrnan fer rétt yfir...
KA
81. mín
InnSteinþór Freyr Þorsteinsson
ÚtBjarni Aðalsteinsson
Gamli Blikinn kemur inn á
77. mín
KA heppnir!

Yeoman á sendingu á fjær og þar ætlar Andri Fannar leikmaður KA bara að drepa boltann niður en rennur á rassinn og Gísli hirðir boltann en á skot í hliðarnetið....
74. mín
FÆRI!!!

Boltinn dettur út í teiginn eftir hornspyrnu og þar er Gísli sem á skot sem fer af varnarmanni KA og dettur fyrir Róbert Orra sem er inn í markteignum og reynir skot en fer af Jajalo sýnist mér og í hornspyrnu!!
73. mín
Annað mark Blika liggur í loftinu!

Gísli finnur Andra Yeoman við endamörkin, Andri leggur hann út á Binna W sem á skot að marki en Qvist skallar í horn...
Breiðablik
70. mín
InnRóbert Orri Þorkelsson
ÚtDamir Muminovic
Damir fer meiddur af velli
69. mín
Hallgrímur Mar fær frítt inn í teig en Anton ver þetta vel!

"Það var Anton sem bjargaði mér" syngur Kópacabana stuðningsmannasveit Blika
67. mín
Blikar brjálaðir yfir að Þorvaldur Árnason dómari stöðvar leikinn þegar Blikar liggja á KA mönnum við teig Akureyringa en Þorvaldur neyddist til að stöðva leikinn vegna höfuðmeiðsla...
KA
64. mín
InnGuðmundur Steinn Hafsteinsson
ÚtÁsgeir Sigurgeirsson
Fyrsta skipting kvöldsins
61. mín
Gísli Eyjólfs eins og svo oft áður í sumar fær boltann úti vinstra megin, fer inn á völlinn og á fast skot en í þetta skipti fór það vel framhjá..

Blikar liggja á KA-mönnum
57. mín
ALMAR SKALLAR Í SLÁNNA!!

Hallgrímur fær boltann úti vinstra megin og á geggjaða fyrirgjöf og skallar yfir Anton Ara en í slánna og yfir fer boltinn!!
Breiðablik
53. mín
MAAAARK!

Viktor Karl Einarsson (stoðsending: Andri Rafn Yeoman )

BLIKAR JAFNA!!!

Andri Yeoman er úti hægra megin, leggur hann á Viktor Karl sem labbar framhjá Hrannari og hamrar boltanum í hærhornið, alltof fast fyrir Jajalo!!

Hann skorar alltaf í öðrum hverjum leik þessi drengur!!
46. mín
Seinni farinn af stað
45. mín
Hálfleikur
KA-menn fara með 0-1 forystu inn í hálfleikinn eftir geggjað mark frá Sveini Margeiri, Blikar að koma sér í mikið af flottum stöðum en það kemur ekki mikið úr því..

Trúi ekki öðru en Blikar skori í seinni ef þetta heldur svona áfram..
43. mín
ÚFF!!

Boltinn lagður út í teiginn á Gísla Eyjólfs sem á skot í fyrsta að marki en fer af varnarmanni KA og réééétt framhjá markinu...
41. mín
Blikar brjálaðir og vilja fá vítaspyrnu eftir að Höskuldur fellur í teignum en fá ekki

Vel gert hjá Þorvaldi að dæma ekki, enda aldrei vítaspyrna....
32. mín
Viktor Örn finnur Binna Andersen inn í teig KA-manna, Binni nær að snúa inn að marki og á skot í fjær en skotið var ekki nógu utarlega þannig Jajalo greip þetta bara...

Blikar liggja vel á KA-mönnum
29. mín
21. mín
Þvílik varsla hjá Jajalo!!!

Blikar taka stutt horn sem endar á því að Brynjólfur gefur út á Gísla Eyjólfs sem fær nóg pláss rétt fyrir utan teig og á frábært skot í fjær sem var á leið í netið en Jajalo ver stórkostlega..
KA
18. mín
MAAAARK!

Sveinn Margeir Hauksson

ÞVÍLIKT MARK!!!

Anton Ari er að taka markspyrnu, ætlar að senda háan bolta á Viktor Margeirsson en sparkar bara í bringuna á Sveini Margeiri, boltinn dettur svo fyrir Svein sem hamrar honum í fyrsta í fjærhornið! Geggjað mark!!

Anton Ari leit illa út þarna það verður að segjast bara eins og er.....
14. mín
Viktor Karl reynir sendingu inn á teig KA-manna sem hrekkur af Mikkel Qvist til Thomas Mikkelsen sem á fast skot með vinstri en beint á Jajalo í markinu sem grípur þetta auðveldlega
9. mín
Blikar fá aðra hornspyrnu, nú frá hægri!

Oliver spyrnir boltanum á nærstöng og þar er Damir sem á skalla vel yfir markið..
7. mín
Blikar fá hornspyrnu frá vinstri

Oliver tekur hana stutt á Gísla sem leggur boltann fyrir Oliver sem spyrnir honum fyrir markið en fer aftur fyrir endamörk...
4. mín
Fyrsta hornpsyrnan er KA-manna!

Ásgeir tekur hana og þetta er há fyrirgjöf á fjærstöng og Anton slær boltann yfir og önnur hornspyrna verður úr þessu..

Ekkert varð úr seinni hornspyrnuni..
1. mín
Leikur hafinn
Veislan er farin af stað, góða skemmtun!
Fyrir leik
Þegar þessi lið mættust í fyrri umferðinni á Greifavellinum endaði það með svaka dramatík!

Það var 1-1 þangað til á 90 min þá fengu KA menn vítaspyrnu sem Guðmundur Steinn skoraði úr.... svo tóku Blikar miðju, bombuðu fram og þar rennur varnarmaður KA í teignum og fær þá boltann í höndina, Blikar fá víti og þar skorar Mikkelsen og leikar enduðu 2-2
Fyrir leik
Fyrir þennan leik sitja Blikar í 4. sæti deildarinnar með 26 stig, einu stigi á eftir Fylki sem eru í því 3. en Blikar eiga reyndar leik inni á Fylki...

KA menn sigla lygnan sjó í 8. sæti með 19 stig, tveimur stigum á eftir ÍA sem sitja í 7. sæti en KA á leik inni á ÍA..
Fyrir leik
Arnar Grétarsson þjálfari KA er lifandi goðsögn í Kópavoginum og er þetta í fyrsta skipti sem Arnar snýr aftur á Kópavogsvöll eftir að hafa verið rekinn frá Breiðablik fyrir 3 árum síðan..

Hefndarför Arnars kannski?
Fyrir leik
Heilt og sælt verið fólkið og verið hjartanlega velkomin í þráðbeina textalýsingu frá Breiðabliks og KA í Pepsi-Max deild karla en leikurinn hefst núna klukkan 18:00 á Kópavogsvelli..
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.