Fotbolti.net
Arnar Laufdal Arnarsson
Arnar Laufdal Arnarsson
Pepsi Max-deild karla
Kópavogsvöllur
Smá vindur, gervigrasið blautt og síðdegis sólin fer að segja sitt síðasta bráðum
Breiðablik
Breiðablik
1 - 1
KA
KA
0 - 118' Sveinn Margeir HaukssonViktor Karl Einarsson 53'1 - 1
Dómari: Þorvaldur Árnason
Áhorfendur: 303

SKÝRSLAN: Blikar og KA tóku bæði með sér eitt stig

Hvað réði úrslitum?

Eins og svo oft áður í sumar hjá báðum liðum þá eru Blikar mikið með boltan og að koma sér í mikið af góðum stöðum en ná ekki að skora þegar þörf er á marki og KA voru bara eins og svo oft áður virkilega flottir varnarlega og þéttir og gáfu ekki mörg dauðafæri á sig.

Bestu leikmenn

1. Viktor Karl Einarsson

Frábær í kvöld, skorar virkilega gott mark þegar hann labbaði framhjá Hrannari Birni og Hrannar var í tómu tjóni með VKE í allt kvöld. Viktor hljóp eins og óður maður í allt kvöld og var með hættulegri mönnum Blika.

2. Brynjar Ingi Bjarnason

Íslenski John Stones virkilega flottur í dag, hélt Mikkelsen og Brynjólfi í skefjum og var góður á boltanum þegar þess þurfti og skallaði mikið frá og var bara rock solid í kvöld.

Atvikið

Færið sem Mikkelsen klikkar þegar 2 mínútur eru eftir af venjulegum leiktíma, frábær fyrirgjöf frá Viktori Erni á fjær og Mikkelsen skallar framhjá, sá danski hefði átt að skora þarna.

Hvað þýða úrslitin?

Blikar fara í 3. sæti deildarinnar með 28 stig og KA menn sigla lygnan sjó í 8. sæti með 20 stig

Vondur dagur

Thomas Mikkelsen var í miklu basli með að koma sér í færi í kvöld og vörn KA gerðu honum virkilega erfitt fyrir í kvöld og MIkkelsen sást bara lítið og klikkaði dauðafæri undir lokin.
Anton Ari gerði sig líka sekan um mistök í marki KA en það átti slatti eftir að gerast og skotið hjá Sveini frábært.

Dómarinn - 9

Þorvaldur frábær í kvöld, frábært flæði í leiknum og dæmdi réttilega ekki vítapsyrnu í fyrri hálfleik, var með allt á hreinu í kvöld að mínu mati.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.