Man Utd og Arsenal vilja Guehi - Osimhen gæti farið til Chelsea eða PSG - Geertruida gæti fylgt Slot til Liverpool
Grótta
1
2
HK
0-1 Danielle Marcano '15
0-2 Danielle Marcano '18
María Lovísa Jónasdóttir '45 1-2
22.06.2021  -  19:15
Vivaldivöllurinn
Lengjudeild kvenna
Aðstæður: Kvöldsól og fínasti hiti
Dómari: Ágúst Hjalti Tómasson
Maður leiksins: Danielle Marcano
Byrjunarlið:
12. Maggie Ann Smither (m)
Eydís Lilja Eysteinsdóttir
Sigrún Ösp Aðalgeirsdóttir
4. Sara Dögg Ásþórsdóttir ('80)
5. Rakel Lóa Brynjarsdóttir
9. Tinna Jónsdóttir
10. Bjargey Sigurborg Ólafsson ('67)
17. Patricia Dúa Thompson ('67)
21. Diljá Mjöll Aronsdóttir
29. María Lovísa Jónasdóttir
39. Lilja Davíðsdóttir Scheving ('80)

Varamenn:
3. Margrét Rán Rúnarsdóttir
6. Helga Rakel Fjalarsdóttir ('80)
7. Jórunn María Þorsteinsdóttir
8. Guðfinna Kristín Björnsdóttir ('67)
16. Elín Helga Guðmundsdóttir
23. Eva Karen Sigurdórsdóttir ('80)
24. Lovísa Davíðsdóttir Scheving ('67)

Liðsstjórn:
Pétur Rögnvaldsson (Þ)
Magnús Örn Helgason (Þ)
Garðar Guðnason
Björn Valdimarsson

Gul spjöld:
Pétur Rögnvaldsson ('91)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Leik lokið á Seltjarnarnesi.

Lífsnauðsynlegur sigur fyrir HK en dýrkeypt tap fyrir Gróttu.

Ég þakka fyrir mig, viðtöl og skýrsla fylgja innan skamms.
92. mín
Bryndís fær högg á magan eða í beinið aðeins neðar. Þarfnast aðhlynningar og fer útaf í smástund.
91. mín Gult spjald: Pétur Rögnvaldsson (Grótta)
Gult fyrir kjaft.
90. mín
4 mínútum bætt við.
89. mín
Hrikalega tæpt er Eva kemst ein í gegn í lokin, ein á móti Björk en hún ver mjög vel.
85. mín
Diljá kemur með aukaspyrnuna í átt að Björ í markinu en Eydís skallar hann úr höndunum hennar og út fyrir endamörk.
85. mín
María fær takkana á Bryndísi í ökklann. Aukaspyrna hjá hornfánanum fyrir Gróttu.
82. mín
Guðfinna með skemmtilegan klobba á Magðalenu. Sá frægi, no touch klobbinn.
80. mín
Inn:Eva Karen Sigurdórsdóttir (Grótta) Út:Sara Dögg Ásþórsdóttir (Grótta)
80. mín
Inn:Helga Rakel Fjalarsdóttir (Grótta) Út:Lilja Davíðsdóttir Scheving (Grótta)
80. mín
Inn:Ester Lilja Harðardóttir (HK) Út:Arna Sól Sævarsdóttir (HK)
79. mín
HK undirbýr skiptingu líka. Ester Lilja að koma inná.
78. mín
Grótta undirbýr aðra tvöfalda skiptingu. Helga Rakel og Eva Karen á leiðinni inná.

Lilja og Sara myndi ég búast við koma út af.
75. mín
Mist uppsker hornspyrnu fyrir HK.
74. mín
Eydís öskrar hærra en hefur heyrst í nokkrum manni hér í dag og óskar eftir standard fram á við. Leiðtogi þarna á ferð.
72. mín
Lovísa bara hreinlega trukkar Ísabellu. Aukaspyrna og þær ætla að setja ennan inn í teig.
71. mín
Tinna reynir háan bolta inn á teig fyrir Lilju en skotið hennar framhjá.

HK vörnin farin að þreytast hérna í síðari hálfleik.
67. mín
Inn:Lovísa Davíðsdóttir Scheving (Grótta) Út:Patricia Dúa Thompson (Grótta)
Tvöföld skipting hjá Gróttu.
67. mín
Inn:Guðfinna Kristín Björnsdóttir (Grótta) Út:Bjargey Sigurborg Ólafsson (Grótta)
Tvöföld skipting hjá Gróttu.
66. mín
Inn:Mist Funadóttir (HK) Út:Karen Sturludóttir (HK)
Lykilmaður HK kemur útaf.
65. mín
HK undirbýr skiptingu. Mist Funadóttir að koma inná.
64. mín
Grótta fá hornspyrnu.
59. mín
Magðalena fær boltann á miðjunni og kemur með snyrtilegan bolta yfir vörn Gróttu á Karen sem kemur með krossinn en í gegnum alla og út aftur á Magðalenu sem á skot framhjá.
57. mín
Diljá með skot af um það bil 35 metra færi. Engin hætta fyrir Björk í markinu.
55. mín
Sara brýtur á Örnu áður en hún kemst á ferðina upp vinstri kantinn. Aukaspyrna í góðu sendingarfæri fyrir HK.
53. mín
Inn:Magðalena Ólafsdóttir (HK) Út:Ísold Kristín Rúnarsdóttir (HK)
Ísold fer útaf með einhvernskonar verk. Vonum að það sé í lagi með hana.
51. mín
NEGLA FRÁ DANIELLE!!

Danielle með neglu fyrir utan teig en Maggie geri vel í markinu til að blaka boltanum yfir.
47. mín
VÁ ÞESSI VARSLA!!

Boltinn skoppar fyrir utan teig á Eydísi sem á rosalegt skot í fjærhornið með vinstri en Björk er eins og köttur í markinu og flýgur hreinlega til að verja þetta.

Frábært skot en betri varsla.
46. mín
Leikurinn farinn aftur af stað.

Það eru HK sem hefja síðari hálfleikinn.
45. mín
Hálfleikur
Ekki neinu bætt við og flautað til hálfleiks.

Grótta geta andað léttar eftir mark Maríu.
45. mín MARK!
María Lovísa Jónasdóttir (Grótta)
MIKILVÆGT MARK FYRIR GRÓTTU!!

Lífsnauðsynlegt mark fyrir Gróttu. Boltinn skoppar út á Maríu eftir horn. Hún á fast skot í gegnum alla í vinstra hornið og framhjá Björk í markinu.

LÍFSnauðsynlegt, 1-2!
44. mín
Skyndisókn hjá Gróttu, hraði og samspil. Endar í hornspyrnu.
42. mín
Eydís með skemmtilega hælsendingu á Tinnu en boltinn endar hjá Láru og síðan í innkast fyrir Gróttu.
40. mín
Brotið á Bjargey á miðjunni. Diljá ætlar að koma þessum inní.

Hún gerir það en boltinn skoppar af nokkrum hausum og endar af Maríu og aftur fyrir.
38. mín
Varnarshapeið hjá HK farið að hleypa Gróttu í mikið fleiri færi. Sjálfstraustið hægt og rólega farið að koma til baka hjá Gróttu.
36. mín
Hornspyrna sem Diljá tekur fyrir Gróttu, dettur á Rakel fyrir utan teig en skotið hennar hátt yfir.
33. mín
Skólabókardæmi af því sem ég var að tala um. Skyndisókn hjá HK eftir að þær vinna boltann og varnarmenn Gróttu komnar hátt upp, ein sending upp og Danielle er komin í 1 on 1 stöðu við Rakel inni í teig en Sigrún fljót til baka og vinnur boltann er hún leikur á Rakel.
32. mín
HK byrjaðar að færa sig aftar og spila meiri skyndisóknarbolta, hleypa Gróttu ofar og sækja svo hratt á þær þegar þær vinna hann.
29. mín
María Lovísa á fínt skot fyrir utan teig en Björk örugg í markinu og grípur boltann.
28. mín
Eydís kemur með góða stungusendingu á Tinnu en Lára kemst fram fyrir hana og nær að tækla hana. Góð vörn en loksins fínt spil hjá Gróttu.
24. mín
TÆPT!!

Karen laumar boltanum í gegnum 3 leikmenn Gróttu beint í hlaup Regnheiðar í teignum. Hvílík kúla en Ragnheiður óheppin að setja þennan framhjá fjærhorninu.
20. mín
Það er komin pirringur í Lilju, byrjuð að ýta í Ísold. Með þessu áframhaldi styttist í gula spjaldið.
18. mín MARK!
Danielle Marcano (HK)
Stoðsending: Ragnheiður Kara Hólm Örnudóttir
DANIELLE!! AFTUR!!

Danielle ætlar sér að skora slatta í dag. Ísabella aftur með svipaðan bolta og áðan nema núna á Ragnheiði á hægri kantinum. Hún á lágan kross á Danielle sem á fast skot í hliðarnetið fjær.

Annað vel unnið mark, 0-2!
15. mín MARK!
Danielle Marcano (HK)
Stoðsending: Isabella Eva Aradóttir
MAAAAARK!!

Ísabella með frábæran bolta yfir vörnina hjá Gróttustelpum, þar er Danielle komin í gegn og tekur boltann framhjá Maggie í markinu og setur hann í autt markið. Flott mark og áfram gengur ekkert upp hjá Gróttu en allt upp hjá HK.

Korter búið, 0-1!
13. mín
Grótta gefa boltann frá sér í vörninni, Ísold á skot utan teigs en skotið hátt yfir.

Grótta ekki að ná að setja saman meira en 3 sendingar hingað til.
6. mín
Spil Gróttu og vinnusemi ekki að fara eins og þær vilja og eru Maggi og Pétur ekki sáttir með þessar fyrstu mínútur.
4. mín
HK vinna hornspyrnu.

Maggie í engum vandræðum með þessa.
4. mín
Tinna Jóns á skalla framhjá eftir góða sendingu hjá Patriciu.
1. mín
Leikur hafinn
Leikurinn er farinn af stað og Grótta hefur leik.
Fyrir leik
Byrjunarliðin eru komin inn og liðin að ganga inn á völlinn.
Fyrir leik
Dómarinn

Dómari leiksins er Ágúst Hjalti Tómasson og honum til aðstoðar verða Sigurbaldur P. Frímannsson og Hugo Miguel Borges Esteves.


Hugo Miguel til hægri
Fyrir leik
HK
Nýliðarnir úr Kórahverfinu eru í 9. sæti fyrir leikinn í dag en geta farið upp í 7. sæti ef þær vinna í kvöld með 3 mörkum eða meira, stóra orðið í þeirri setningu er þó að sjálfsögðu ef. HK hafa verið að stríða sumum liðunum í deildinni en eru þó bara með 4 stig. Þær unnu Hauka á Ásvöllum og rétt töpuðu gegn FH í seinustu umferð en er þá einmitt bara með -1 í markatölu úr seinustu 3 leikjum sem voru gegn FH, Haukum og ÍA. Þær koma inn í leikinn fullar af sjálfstraustu sem Grótta eru kannski ekki og veður þetta því mjög líklega sénsinn fyrir HK að stimpla sig inn sem lið sem gæti gert hluti í sumar.

Fyrir leik
Grótta

Heimaliðin situr í 7. sæti með 7 stig en geta farið upp í 4. sæti með sigri hér. Þær koma inn í þennan leik eftir 4 stig úr seinustu 5 deildarleikjum og hafa ekki unnið leik síðan 21. maí. Þjálfarar Gróttu, Magnús Örn Helgason og Pétur Rögnvaldsson munu vilja fá sigurbragðið aftur og koma með sínar konur inn í þennan leik með 100% baráttu og greddu. Það verður spennandi að sjá hvernig þær koma inn í þennan leik.

Fyrir leik
Deildin

Grótta og HK eru í botnbaráttunni eins og er. Það eru aðeins 3 stig sem aðskilja liðin eins og er en sitja HK í 9. sæti og Grótta í 7. sæti.

Staðan í deildinni núna er svona:

1. KR L6, +11, S15

2. Afturelding L6, +10, S14

3. FH L6, +6, S12

4. ÍA L6, -4, S9

5. Víkingur R. L6, +/-0, S8

6. Haukar L6, -2, S7

7. Grótta L6, -3, S7

8. Augnablik L6, -4, S5

9. HK L6, -8, S4

10. Grindavík L6, -6, S3

L = Leikir
+/- = Markatala
S = Stig
Fyrir leik
Leikurinn hefst klukkan 19:15 á hinum gullfallega Vivaldivelli á Seltjarnarnesinu.

Heil umferð er spiluð í Lengjudeildinni í kvöld:

Grótta-HK 19:15
KR-Afturelding 19:15
Augnablik-Haukar 19:15
FH-Grindavík 19:15
ÍA-Víkingur 19:15

Ásamt þessum leik verður bein textalýsing frá Kópavogsvelli þar sem Augnablik tekur á móti Haukum en verður Sigríður Dröfn með lýsinguna þar.

Fyrir leik
Gott kvöld gott fólk og verið velkomin í beina textalýsingu á leik Gróttu og HK í sjöundu umferð Lengjudeild kvenna.
Byrjunarlið:
20. Björk Björnsdóttir (m)
Karen Sturludóttir ('66)
7. Ragnheiður Kara Hólm Örnudóttir
10. Isabella Eva Aradóttir (f)
13. Ísold Kristín Rúnarsdóttir ('53)
14. Arna Sól Sævarsdóttir ('80)
17. Danielle Marcano
21. Gígja Valgerður Harðardóttir
25. Lára Einarsdóttir
26. Bryndís Gréta Björgvinsdóttir
107. Valgerður Lilja Arnarsdóttir

Varamenn:
28. Anna Ragnhildur Sól Ingadóttir (m)
3. Sofia Takamaki
6. Ester Lilja Harðardóttir ('80)
9. María Lena Ásgeirsdóttir
15. Magðalena Ólafsdóttir ('53)
23. Ragnheiður Erla Garðarsdóttir
33. Mist Funadóttir ('66)

Liðsstjórn:
Jakob Leó Bjarnason (Þ)
Úlfur Blandon
Ragnheiður Lóa Stefánsdóttir
Sara Kristín Víðisdóttir
Birkir Örn Arnarsson

Gul spjöld:

Rauð spjöld: