Liverpool sýnir Senesi áhuga - Napoli kaupir Höjlund - Ensk félög sýna Conceicao áhuga
   mið 06. maí 2026 08:30
Elvar Geir Magnússon
Liverpool sýnir Senesi áhuga - Napoli kaupir Höjlund
Powerade
Marcos Senesi, varnarmaður Bournemouth.
Marcos Senesi, varnarmaður Bournemouth.
Mynd: EPA
Napoli kaupir Höjlund alfarið.
Napoli kaupir Höjlund alfarið.
Mynd: EPA
Casemiro.
Casemiro.
Mynd: EPA
Við óskum stuðningsmönnum Arsenal til hamingju með sætið í úrslitaleik Meistaradeildarinnar! Búdapest bíður. Hér er slúðurpakki dagsins og þar er víða komið við. BBC tók saman.

Liverpool hefur sýnt áhuga á að fá argentínska varnarmanninn Marcos Senesi (28) frá Bournemouth. Hann hefur gert munnlegt samkomulag um að fara til Tottenham ef félagið nær að forðast fall úr ensku úrvalsdeildinni. (Talksport)

Eddie Howe, stjóri Newcastle United, mun fá tækifæri til að leiða stærstu endurnýjun liðsins síðan Sádi-arabarnir tóku við 2021. Búist er við miklum breytingum á St James' Park í sumar. (i sport)

Napoli segir að félagið muni kaupa Rasmus Höjlund (23), sóknarmann Manchester United, alfarið til félagsins. Ítalska félagið er nálægt því að tryggja sér Meistaradeildarsæti og það virkjar 38 milljóna punda kaupákvæði fyrir danska sóknarmanninn. (Mirror)

Crysencio Summerville (24), sóknarmaður West Ham, er undir smásjám ýmissa félaga í Evrópu. Verðmiðinn á Hollendingnum mun lækka verulega ef Hamrarnir falla. (Telegraph)

Chelsea er að íhuga að reyna að fá Xavi Hernandez fyrrum stjóra Barcelona til að taka við á Brúnni. (Independent)

Ítalski markvörðurinn Guglielmo Vicario (29) hjá Tottenham og enski miðjumaðurinn Curtis Jones (25) hjá Liverpool eru á radarnum hjá Inter. (Gazzetta dello Sport)

Arne Slot, stjóri Liverpool, verður áfram hjá enska félaginu. Ajax hefur sýnt honum áhuga. (Mirror)

Barcelona hefur sýnt Junior Kroupi (19) framherja Bournemouth áhuga en mun fá samkeppni frá Manchester City og fleiri félögum í ensku úrvalsdeildinni. (Sky Sports)

Mörg ensk úrvalsdeildarfélög horfa til portúgalska framherjans Francisco Conceicao (23) hjá Juventus. (Gazzetta dello Sport)

Bandarísku MLS félögin LA Galaxy og Inter Miami leiða baráttuna um brasilíska miðjumanninn Casemiro (34) en samningur hans við Manchester United rennur út í sumar. Einnig er áhugi frá Sádi-Arabíu og Tyrklandi. (TalkSport)

Löngun Casemiro til að spila með Lionel Messi (38) gerir það að verkum að hann er tilbúinn að lækka launakröfur sínar til að verða samherji argentínsku goðsagnarinnar hjá Inter Miami. (Sky Sports)

Vinicius Jr (25) vill breytingar hjá Real Madrid áður en hann skrifar undir nýjan samning. (Radio Marca)

Uli Höness heiðursforseti Bayern München segir að miðjumaðurinn Konrad Laimer (28) sé 'ekki Maradona' en erfiðlega gengur að gera við hann nýjan samning. (Sky Sport Þýskalandi)

Ólíklegt er að Barcelona takist að landa ítalska varnarmanninum Alessandro Bastoni (27) sem vill vera áfram hjá Inter. (Gazzetta dello Sport)
Slapp
banner
banner