Fotbolti.net
Magnús Þór Jónsson
Magnús Þór Jónsson
Pepsi Max-deild karla
Samsungvöllurinn
Hægur andvari í átt að Garðatorgi, 15 stiga hiti og sól. Geggjað veður fyrir fótbolta!
Stjarnan
Stjarnan
2 - 3
Keflavík
Keflavík
0 - 116' Josep Arthur Gibbs0 - 238' Josep Arthur Gibbs0 - 348' Ígnacio Heras AngladaHilmar Árni Halldórsson (víti) 57'1 - 3Þorsteinn Már Ragnarsson 69'2 - 3
Dómari: Þorvaldur Árnason

SKÝRSLAN: Fyrsti útisigur Keflavíkur síðan 2014

Hvað réði úrslitum?

Nýting færa.

Keflvíkingar stóðu af sér orrahríð fyrstu 15 mínúturnar, skoruðu svo þrjú mörk og stóðu af sér storm Stjörnumanna undir lok leiks.

Bestu leikmenn

1. Frans Elvarsson

Leiddi varnarleik liðsins af mikilli festu og þurfti virkilega að hafa fyrir því fyrstu 15 og síðustu 20. Klettur í vörninni.

2. Joey Gibbs

Hefur svarað öllum efasemdarröddum varðandi það hvort hann gæti skorað í efstu deild. Mikið markanef sem karlinn hefur en líka gott að sjá hversu mikið hann var tilbúinn að leggja á sig í varnarleiknum.

Atvikið

Ætla að gefa vörslunni hans Sindra atvikið.

Í stöðunni 3-2 átti hann rosavörslu af engu færi. Það gulltryggði stigin þrjú.

Hvað þýða úrslitin?

Keflavík fer upp í fimmta sæti með fyrsta útisigri sínum í deildinni síðan í september 2014 - þá með því að leggja ÍBV undir stjórn Sigga Ragga. Stjarnan fer niður í 7.sæti og bæði eru með 13 stig.

Vondur dagur

Varnarleikur Stjörnunnar í föstum leikatriðum var ansi dapur, tvö mörk á sig þar og sér í lagi þar sem bæði voru eftir baráttu og darraðadans.

Svoleiðis ekki til útflutnings!

Dómarinn - 9,0

Þorvaldur í fyrsta leik eftir meiðsli í sumar og það sást ekki. Verulega góð yfirferð, strákurinn í standi og allar ákvarðanir á hreinu. Teymið allt stóð sig vel en leikurinn af þeirri erfiðleikagráðu að maður getur ekki gefið fullt hús. Vel gert!
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.